Kaupfélagið setti tugi millljóna í markaðsstarf á íslenskum mat í Katar

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga stofn­aði félagið Scandinavian Finest í Katar. Félagið átti að selja skyr, lamba­kjöt og íslenskan fisk til emír­dæm­is­ins. Engar upp­lýs­ingar eru um félagið í árs­reikn­ingum kaup­fé­lags­ins.

Kaupfélagið setti tugi millljóna í markaðsstarf á íslenskum mat í Katar
Horft til Katar Þórólfur Gíslason, kaup­fé­lags­stjóri KS, hefur horft til Rúss­lands í sölu og mark­aðs­stafi fyr­ir­tæk­is­ins en það hefur einnig fjár­fest í mark­aðs­setn­ingu á íslenskum mat­vælum í emír­dæm­inu Katar. Þórólfur sést hér með Bjarna Mar­ons­syni, stjórn­ar­for­manni KS.

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga setti tugi millj­óna króna í mark­aðs­starf á íslenskum mat­vælum í  Katar á Arab­íu­skag­anum í árs­lok 2019. Kaup­fé­lagið stofn­aði sér­stakt félag, Scandinavian Finest, í Katar ásamt sam­starfs­að­ilum sínum utan um verk­efnið sem gekk út á að opna fyrir mögu­leik­ana á því að selja íslenskt lamba­kjöt, skyr, eld­is­lax og -bleikju, og þorsk til Mið-Aust­ur­landa. Að stóru leyti var því um að ræða vörur frá fyr­ir­tækjum sem Kaup­fé­lag Skag­firð­inga á að ölllu leyti eða að hluta, meðal ann­ars Mjólk­ur­sam­söl­unni, þar sem kaup­fé­lagið er næst­stærsti hlut­haf­inn á eftir sam­eign­ar­fé­lagi kúa­bænda, Auðhumlu. 

Félagið stóð meðal ann­ars fyrir sér­stakri kynn­ing­ar­helgi á mat­væl­unum á hót­eli í höf­uð­borg Katar, Doha, undir heit­inu „Icelandic weekend“ þar sem 500 manns var boðið í mat sam­kvæmt Magnúsi Jón­atans­syni, athafna­manni og einum af for­svars­mönnum verk­efn­is­ins. Tengiliður kaup­fé­lags­ins og íslenskra sam­starfs­að­ila þess var kat­arskur við­skipta­maður að nafni Abdel Hadel Elsami. „Við héldum þarna fyrstu Íslands­kynn­ing­una í Mið-Aust­ur­löndum og gerðum flotta hluti …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár