Assange hafður í glerbúri í réttarhöldunum: Glæpurinn er blaðamennska

Þetta er fram­lína þar sem barist er, ekki bara um líf Julian Assange, heldur um fram­tíð blaða­mennsk­unnar. Þessarar sem núna er jöfnuð við njósnir og ógn við þjóðar­ör­yggi og kraf­ist er 175 ára fang­elsis yfir þeim sem hana ástunda. Þetta er upp­lifun Kristins Hrafns­sonar, rit­stjóra WikiLeaks, af rétt­ar­höld­unum yfir ástr­alska blaða­mann­inum Julian Assange sem nú fara fram í London.

Assange hafður í glerbúri í réttarhöldunum: Glæpurinn er blaðamennska
Julian Assange Mynd: Shutterstock

Rétt­ar­höldin yfir Julian Assange eru grimmt sjón­ar­spil. Þar situr hann inni lok­aður inni í gler­búri þar sem hann hefur enga mögu­leika á að vera í beinum sam­skiptum við lög­menn sína. Sjálfur seg­ist hann vera eins og áhorf­andi á Wimbledon. 

Þetta kemur fram í Facebook-færslu Kristins Hrafns­sonar, rit­stjóra WikiLeaks, en Kristinn er við­staddur rétt­ar­höldin yfir Assange sem hófust á mánu­dag­inn og fara fram í rétt­ar­sal, sem er við hlið­ina á Belmarsh-fang­elsi. Þar hefur Assange verið vistaður síðan í apríl í fyrra, þegar hann var sóttur í sendi­ráð Ekvador í Bret­landi þar sem hann hafði dvalið frá árinu 2012. Belmarsh er svo­kallað Category A fang­elsi sem er sú teg­und fang­elsa í Bret­landi þar sem þeir fangar eru vistaðir sem mest ógn er talin stafa af og hafa framið glæpi á borð við morð, nauðg­anir, mann­rán, vopnuð rán og tengsl við hryðju­verk.

Banda­rísk stjórn­völd krefj­ast fram­sals Assange, sem hefur verið ákærður fyrir 18 brot á lögum um njósnir og með­ferð leyni­legra gagna á skjölum Banda­ríkja­hers og utan­rík­is­þjón­ust­unnar. Verði hann sak­felldur fyrir öll brotin gæti hann verið dæmdur til 175 ára fang­els­is­vistar. 

Meina átti Kristni aðgang að rétt­ar­salnum í gær. Þegar honum var til­kynnt það sagði John Shipton, faðir Assange, að fjöl­skyldan myndi þá sömu­leiðis yfir­gefa dóms­húsið. Þau greindu frá þessu á Twitter-síðu sinni og í kjöl­farið var ákveðið að leyfa Kristni að vera í dóm­salnum.

Handjárnaður 11 sinnum, berstrípaður tvisvar og í 5 klefum

 „Það er þung upp­lifun að sitja á palli í rétt­ar­höldum og horfa á Julian Assange í gler­búri, við hlið tveggja fanga­varða að reyna af veikum mætti fylgj­ast með mál­flutn­ingi um fram­tíð sína - lík­leg­ast um líf og dauða. Hann er berj­ast gegn fram­sali til Banda­ríkj­anna. Glæp­ur­inn er blaða­mennska,“ skrifar Kristinn í færslu sinni. 

„Á degi eitt, á mánu­dag var hann hand­járn­aður 11 sinnum, ber­stríp­aður í lík­ams­leit tvisvar sinnum, settur í 5 mis­mun­andi bið­klefa og þegar hann fór til baka í fang­elsið voru öll lög­fræði­gögn tekin af honum. Hvaða rugl er þetta!?“ spyr Kristinn. „Ég sit með erlendum þing­mönnum, frá Þýska­landi, Frakk­landi, Írlandi, Evr­ópu­þing­inu, ásamt eft­ir­lits­mönnum frá Blaða­mönnum án landamæra (RSF), Amnesty, norska PEN og for­manni Breska blaða­mann­na­fé­lags­ins (NUJ). Það á engin orð yfir því sem við erum vitni að.“ 

Reyndi að tjá sig í gegnum rifu á búrinu

Kristinn skrifar að síð­degis í gær hafi soðið upp úr. Dómarinn hafi spurt Assange hvort hann væri orð­inn þreyttur og þyrfti hlé og þá hafi hann reynt að tjá sig milli­liða­laus við dóm­ar­ann í gegnum rifu á gler­búr­inu. „Hvernig á ég að geta fylgst með? Ég heyri varla nokkuð, ég á erfitt með að tala við lög­menn mína án þess að full­trúar banda­rískra stjórn­valda heyri hvað okkur fer á milli. Ég er eins og áhorf­andi á Wimbeldon. Á enga aðild!“ skrifar Kristinn að Assange hafi sagt.

Í færslu Kristins kemur fram að þar hafi Assange verið að vísa til veru þriggja banda­rískra full­trúa í rétt­ar­salnum.

„Hvernig á ég að geta fylgst með? Ég heyri varla nokkuð“

Kristinn skrifar að þá hafi lög­maður Assange end­ur­flutt þessi skila­boð skjól­stæð­ings síns með beiðni um að honum yrði leyft að yfir­gefa búrið og sitja með lög­mönnum sínum í rétt­ar­salnum til að geta verið milli­liða­laust í sam­bandi við lög­menn sína. Dómarinn hafi svarað því til að hún hefði ekki vald til að leyfa slíkt og gæti ekki metið þá almanna­hættu sem myndi skap­ast yrði sak­born­ingnum hleypt út úr gler­búr­inu. 

Ed Fitzgerald, lög­maður Assange, hafi þá bent á að um væri að ræða frið­saman mann sem ekki væri þekktur af ofbeldi. „Hún (dóm­ar­inn) gekk svo langt að spyrja ákæru­valdið (breskan lög­mann Banda­ríkj­anna) hvað honum fynd­ist og hvort það væru for­dæmi fyrir slíku. John Lewis, mál­flutn­ings­maður Ameríku, varð hálf vand­ræða­legur og varð að við­ur­kenna að vissu­lega væru for­dæmi fyrir því að ákærðir menn í varð­haldi sætu með lög­mönnum sínum í rétt­ar­salnum sjálfum, - en var fljótur að bæta því við að stundum væru þeir hlekkj­aðir við fanga­vörð ef um ofbeld­is­glæpi var að ræða. Enn var dóm­ar­inn ekki sann­færð og heimt­aði lög­bók­ar­stuðn­ing - frá sak­sókn­ara­lög­mann­inum, and­stæð­ingi Julians, til stuðn­ings því að hann fengi óhindrað aðgengi að lög­mönnum sínum, í rétt­ar­haldi um eigið líf og dauða. Hún bað ekki um slíkan rök­stuðn­ing frá verj­end­unum,“ skrifar Kristinn.

„Ógeðsleg grimmd og hatur“

Þegar hér var komið sögu seg­ist Kristinn hafa gefið upp alla von um að rétt­læti væri að fá í þessum rétt­ar­sal. „Við erum hér að tala um for­vera minn í starfi, sem birti upp­lýs­ingar um stríðs­glæpi, mann­rétt­inda­brot gegn föngum í Guant­anamo Bay, þyrlu­árás­ar­mynd­bandið frá Bagdad (í sam­starfi við RÚV). Sá sem fletti ofan af stríð­glæp­unum, mann­rétt­inda­brot­unum og öðrum óhæfu­verkum er á gapa­stokki.
Ekki þeir sem frömdu glæp­ina - bara sá sem sagði frá. Reiðin svellur í manni yfir öllu þessu hróp­lega mis­rétti og þeirri ógeðs­legu grimmd sem felst í þessu hatri sem þarna birt­ist og aumk­un­ar­verðir þjónkun breskra yfir­valda, -stjórn­mála­manna og dóm­stóla, gagn­vart grimmd­ar­kröf­unum og ofbeld­inu,“  skrifar Kristinn.  

„Sá sem fletti ofan af stríð­glæp­unum, mann­rétt­inda­brot­unum og öðrum óhæfu­verkum er á gapa­stokki“

„Þetta er slagur sem á eftir að taka tíma, slagur við eitt­hvað óhreint og myrkt sem er að læð­ast yfir okkur öll, smám saman. Það er ekki hægt að hlaupa úr víg­lín­unni því hún er mörkuð hér, - í ömur­legu úthverfi Lundúna. Þetta er fram­lína þar sem barist er, ekki bara um líf Julian Assange, heldur um fram­tíð blaða­mennsk­unnar. Þessarar sem núna er jöfnuð við njósnir og ógn við þjóðar­ör­yggi og kraf­ist er 175 ára fang­elsis yfir þeim sem hana ástunda. Þetta er styrj­öld um grund­vall­ar­rétt­indi borg­ar­anna, fyrir aðgangi að upp­lýs­ingum, fyrir aðhaldi gagn­vart ógeð­felldu, freku og ofbeld­is­fullu valdi, fyrir sann­leik­ann og von­andi með­fylgj­andi rétt­læti. 

Þetta er mín borg­ara­styrj­öld,“  skrifar Kristinn. 

Meinað að taka í hönd lögmanns síns

Meðal þeirra sem hafa fylgst með rétt­ar­höld­unum yfir Assange er Craig Murray sem er sagn­fræð­ingur, bar­áttu­maður fyrir mann­rétt­indum og fyrr­ver­andi sendi­herra. Á blogg­síðu sinni lýsir Murray því að lög­maður Assange hafi reynt að taka í hönd hans í gegnum rifu í gler­búr­inu í rétta­salnum í gær. Assange reisti sig upp til að taka í hönd lög­manns síns. „Örygg­is­verð­irnir tveir, sem eru í búr­inu með honum, stukku sam­stundis á fætur, lögðu á hann hendur og neyddu hann til að setj­ast niður til að koma í veg fyrir handa­bandið,“ skrifar Murray.

„Þetta var alls ekki það versta í dag, skrifar Murray. En þetta var slá­andi birt­ing­ar­mynd þess til­gangs­lausa ofbeldis sem er ítrekað beitt gegn manni sem er sak­aður um að hafa birt skjöl. Að maður geti ekki tekið í hönd lög­manns síns stríðir gegn þeim stoðum rétt­ar­kerf­is­ins sem svo gjarnan er talað um að það sé reist á.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár