Þeir tekjulægstu eyða hlutfallslega mestu í húsnæði og mat

Yfir þriðj­ungur af útgjöldum tekju­lægstu heim­il­anna fer í hús­næð­is­kostnað. Tekju­hæstu heim­ilin eyða nærri því helm­ingi meira í tóm­stundir og menn­ingu en þau tekju­lægstu.

Þeir tekjulægstu eyða hlutfallslega mestu í húsnæði og mat
Eyða mestu í nauð­synjar Tekju­lægstu heim­ilin eyða stærstum hluta í mat og hús­næði. Mynd: Heiða Helgadóttir

Í rann­sókn á útgjöldum heim­il­anna á árunum 2013 til 2016, sem Hag­stofan vann og birti árið 2018, eru birtar nið­ur­stöður um neyslu­út­gjöld íslenskra heim­ila á tíma­bil­inu. Ekki eru til nýrri gögn í opin­berri birt­ingu hjá Hag­stof­unni. Þar er horft til útgjalda, meðal ann­ars eftir tekju­hópum og stuðst við útgjalda­flokka heim­il­anna. Er þeim skipt niður í fjórð­unga og með­al­talsneysla hvers fjórð­ungs sem hlut­falls af útgjalda­flokkum þannig birt.

Í rann­sókn­inni kemur fram að stærri hluti útgjalda þeirra heim­ila sem eru í lægsta fjórð­ungi útgjalda­flokka, það er tekju­lægstu heim­ilin, fer í hús­næð­is­kostnað, hita og raf­magn og kaup á mat og drykkj­ar­vöru, heldur en hjá þeim heim­ilum sem eru útgjaldahá og hafa hæstar tekjur. Þannig má sjá að 37,2 pró­sent af útgjöldum þess fjórð­ungs sem er tekju­lægstur fara í hús­næð­is­kostnað en aðeins 28,8 pró­sent af útgjöldum tekju­hæsta fjórð­ungs­ins. Að sama skapi fara 13,3 pró­sent útgjalda lægsta útgjalda­fjórð­ungs­ins í kaup á mat og drykkj­ar­vörum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár