Kínverskt flugfélag aflýsir áætlunarflugi til Íslands

Frestað vegna útbreiðslu Wuhan-kór­óna­veirunnar. Íslenskar ferða­skrif­stofur hafa hætt við ferðir til Kína eða bíða átekta.

Kínverskt flugfélag aflýsir áætlunarflugi til Íslands
Fresta flug fram í apríl Juneyao Air hefur fresta flug til lands­ins vegna Wuhan kór­óna­veirunnar. Mynd: Juneyao Air

Kín­verska flug­fé­lagið Juneyao Air, sem hugð­ist hefja áætl­un­ar­flug til Íslands í næsta mán­uði hefur frestað jóm­frú­ar­flugi sínu hingað fram í apríl. Er það gert vegna heims­far­ald­urs Wuhan-kór­óna­veirunnar sem geisar nú, einkum í Kína en einnig víðar. Þá hafa íslenskar ferða­skrif­stofur ýmist fellt niður pakka­ferðir sem búið var að selja í til Kína eða bíða átekta og fylgj­ast með.

Til stóð að Juneyao Air hæfi áætl­un­ar­flug hingað til lands allt að þrisvar í viku með vor­inu. Fljúga átti frá borg­inni Sjanghæ hingað til Íslands með við­komu í Helsinki í Finn­landi. Guðjón Helgason, upp­lýs­inga­full­trúi Isavia, stað­festir að Juneyao Air hafi verið búið að tryggja sér lend­ing­ar­tíma og þjón­ustu í Keflavík, og þegar hafi verið hafin sala á ferðum til lands­ins. Hins vegar hafi flug­fé­lagið nú frestað öllu flugi til Íslands. Til stóð að fyrsta ferðin yrði farin 31. mars næst­kom­andi en búið er að fresta fyrsta flug­inu til 25. apríl. „Samkvæmt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár