Endalok COVID-19 – Eða hvað?

Árið 2022 átti að marka enda­lok heims­far­ald­urs COVID-19. Öllum tak­mörk­unum var aflétt hér á landi í febr­úar en kór­ónu­veiran virð­ist ekki alveg ætla að yfir­gefa heims­byggð­ina.

Upplýsingafundir almannavarna urðu yfir 200 talsins. Nú heyra þeir sögunni til, þó svo að kórónuveiran sé enn aðeins á kreiki.
Upp­lýs­inga­fundir almanna­varna urðu yfir 200 tals­ins. Nú heyra þeir sög­unni til, þó svo að kór­ónu­veiran sé enn aðeins á kreiki. Mynd: Lögreglan

Það kann að hljóma ein­kenni­lega, en á þessum tíma fyrir ári síðan voru tak­mark­anir vegna COVID-19 enn í gildi hér­lendis. Fjöldi fólks eyddi jólum og/eða ára­mótum í ein­angrun eða sótt­kví og Land­spít­al­inn var á neyð­ar­stigi vegna hraðrar útbreiðslu COVID-19. Ómíkron-afbrigðið var alls­ráð­andi.

Þótt mörgum finn­ist eins og far­ald­ur­inn hafi staðið yfir í tíu ár fyrir tíu árum síðan þá var tak­mörk­unum vegna sótt­varna ekki aflétt að fullu og end­an­lega, jafnt inn­an­lands sem á landa­mær­unum, fyrr en 25. febr­úar á þessu ári, tveimur árum eftir að veiran lét fyrsta á sér kræla hér­lend­is.

Frá 25. febr­úar kvöddu lands­menn það sem hafði verið hluti af hvers­dags­leik­anum í tæp­lega tvö ár, þar á meðal fjölda­tak­mark­anir, nálægð­ar­mörk, grímunotkun og tak­mark­aðan afgreiðslu­tíma vín­veit­inga­staða. Daglegir upp­lýs­inga­fundir heyrðu sög­unni til og heim­sóknum á covid.is snar­fækk­aði. Áfram var þó hvatt til per­sónu­legra smit­varna og fólk var hvatt til að fara í sýna­töku ef það fann fyrir ein­kennum.

Fjórum sinnum neyðarstig og óvissustig en í gildi

Óvissu­stigi almanna­varna var lýst yfir 27. jan­úar 2020 og hættu- eða neyð­ar­stig almanna­varna var sam­fellt í gildi frá því að fyrsta kór­ónu­veirusmitið greind­ist 28. febr­úar 2020 til 29. apríl á þessu ári þegar hættu­stigið var fært niður á óvissu­stig, sem gildir enn. Neyð­ar­stig almanna­varna var virkjað fjórum sinnum, hættu­stig fimm sinnum og óvissu­stig tvisvar á meðan far­ald­ur­inn stóð yfir.

Upp­lýs­inga­fundir almanna­varna voru meðal vin­sæl­ustu dag­skrár­liða Rík­is­út­varps­ins þegar far­ald­ur­inn stóð sem hæst og urðu yfir 200 tals­ins. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá fyrsta upp­lýs­inga­fund­inum sem hald­inn var í Sam­hæf­ing­ar­mið­stöð almanna­varna 27. febr­úar 2020, degi áður en fyrsta smitið greind­ist hér á landi, þar sem sótt­varna­læknir var full­viss um að heil­brigð­is­kerfið myndi ráða við verstu mögu­legu sviðs­mynd vegna veirunnar: 300 til­felli og tíu dauðs­föll.

Smitin urðu aðeins fleiri en 300, eða alls 207.874 sam­kvæmt nýj­ustu tölum. 55,3 pró­sent lands­manna hafa greinst með COVID-19.

Einu sinni máttu bara 10 manns koma saman

Sem fyrr segir greind­ist fyrsta COVID-smitið á Íslandi 28. febr­úar 2020. Sam­komu­bann var fyrst sett 16. mars 2020 og voru mörkin sett við sam­komur með 100 manns eða fleiri. Tveimur dögum seinna voru regl­urnar enn hertar og fjölda­tak­mörkin sett við 20 manns.

[links]Fjölda­tak­mark­anir voru nýttar allan far­ald­ur­inn, með hléum þó, allt fram til 25. febr­úar 2022 þegar allar tak­mark­anir voru afnumdar hér­lendis. Þegar regl­urnar voru harðastar máttu ein­ungis 10 manns koma saman en þegar mest var voru tak­mark­anir settar við 2000 manns. Enn strang­ari til­mæli voru þó við lýði á stundum, til dæmis á norð­an­verðum Vest­fjörðum þar sem öllu var skellt í lás og fjölda­tak­mark­anir mið­uð­ust við fimm manns í apríl 2020.

Í lok ágúst 2021 var tekin upp sú nýlunda að leyfi­legt var að taka á móti fleirum en almennt gilti, eða jafn­vel víkja frá reglum um hámarks­fjölda á við­burðum, að því gefnu að allir gestir fram­vís­uðu nei­kvæðu hrað­prófi sem ekki væri eldra en 48 klst gam­alt. Þannig var þess vænst að hægt væri að draga úr sér­stak­lega nei­kvæðum áhrifum COVID-19 á sviðs­listir og menn­ingu.

Sóttvarnalæknir ákvað að láta gott heita

COVID-19 hefur kannski ekki alveg sagt skilið við okkur en það gerði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sem lét af störfum í lok ágúst. Bæði fag­legar og per­sónu­legar ástæður voru fyrir ákvörð­un­inni að hans sögn.

Fáir vissu hver sótt­varna­læknir var fyrir far­ald­ur­inn. Þórólfur sinnti starf­inu í tutt­ugu ár og verður alltaf mað­ur­inn sem leiddi íslensku þjóð­ina í gegnum heims­far­ald­ur, mað­ur­inn sem brýndi enda­laust fyrir okkur að við­hafa per­sónu­bundnar sótt­varnir – sagði okkur að þvo hendur og spritta oftar er nokkur ann­ar. Kenndi okkur að lesa í kúrf­ur, hvað R-tala væri, hjarð­ó­næmi, rað­grein­ing, nýgengi og svo mætti áfram telja enda­laust.

Þórólfur greindi frá ákvörðun sinni í maí og sagði stöð­una í COVID-19 einmitt meðal ástæða þess að hann ákvað að hætta á þessum tíma­punkti, við værum komin á góðan stað í þeirri bylgju far­ald­urs­ins sem gengið hafði yfir vik­urnar og mán­uð­ina á undan.

En Þórólfur ítrek­aði, eins og margoft áður, að far­ald­ur­inn væri ekki búinn. Það reynd­ist rétt og þegar líða fór á árið fóru að ber­ast fregnir af tíð­ari and­látum vegna COVID-19.

180 andlát á árinu – 219 í heildina

Guðrún Aspelund, sem tók við starfi sótt­varna­læknis í sept­em­ber, bað lands­menn í byrjun nóv­em­ber að nálg­ast umræðu um and­lát vegna COVID-19 af virð­ingu og vin­semd.

180 lét­ust hér á landi á árinu, beint af völdum COVID-19 eða COVID-19 var með­virk­andi þáttur and­láts, að því er fram kemur í pistli sótt­varna­læknis. Fjöldi and­láta frá upp­hafi far­ald­urs­ins í febr­úar 2020 er 219.

129 létu lífið vegna COVID-19 frá febr­úar fram í apríl og 25 lét­ust í júlí. Fimm and­lát voru skráð í ágúst og sept­em­ber. Sótt­varna­læknir segir líkur á að fjöldi and­láta á árinu sé afleið­ing af mik­illi útbreiðslu á COVID-19 á þessu tíma­bili enda gengu þá yfir tvær stærstu bylgjur frá upp­hafi.

Er þetta ekki alveg búið?

Lítið fer fyrir kór­ónu­veirunni í íslensku sam­fé­lagi nú í lok árs en veiran er enn þarna úti. Í Kína er ný COVID-bylgja á upp­leið eftir að stjórn­völd sögðu lok skilið við „núll-stefn­una“ og afléttu hörðum sam­komu­tak­mörk­unum.

Þar er COVID-19 að sækja veru­lega í sig veðrið. Fáir eru bólu­settir í Kína, íbúar eru 1,4 millj­arða manna í víð­feðmu landi þar sem erfitt getur reynst að veita heil­brigð­is­þjón­ustu. Ástandið virð­ist þó enn sem komið er verst í borg­un­um, m.a. í Pek­ing. Þar anna bál­stofur og lík­hús þó enn eft­ir­spurn en í öðrum borg­um, m.a. Chongqing, þar sem 30 millj­ónir búa, er allt orðið yfir­fullt og ekki hægt að taka við fleiri líkum að svo stöddu.

Dr. Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, for­stjóra Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar, WHO, ættu flestir að kann­ast við eftir frétta­flutn­ing síð­ustu tveggja ára en hann er veru­leggja áhyggju­fullur yfir stöð­unni í Kína.

Áhyggj­urnar tengj­ast ekki síst upp­lýs­inga­gjöf kín­verskra yfir­valda um stöðu mála. Samkvæmt opin­berum tölum hafa aðeins 5.242 lát­ist af völdum COVID-19 í Kína.

Frá því að núll-­stefnan svo­kall­aða, það er að segja að stefna að engu smiti af kór­ónu­veiru í land­inu með mjög hörðum tak­mörk­un­um, var aflétt nýverið hafa sjúkra­hús yfir­fyllst af fólki og hillur apó­teka standa tóm­ar. Þetta tvennt þykir sterk vís­bend­ing um að eitt­hvað meiri­háttar sé á seyði og flestir benda á kór­ónu­veiruna.

Þetta er því ekki alveg búið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár