Núll-stefnan loks frá og COVID-bylgja á uppleið

Eftir að hörðum aðgerðum vegna COVID-19 var loks aflétt í Kína nýverið hóf bylgja smita að rísa. Tug­þús­undir gætu lát­ist.

Maður fer í PCR-próf í bás úti á götu í Shanghaí.
Maður fer í PCR-próf í bás úti á götu í Shanghaí. Mynd: EPA

Bál­stofur vítt og breitt um Kína eiga orðið í mestu erf­ið­leikum með að anna eft­ir­spurn þar sem líkum nán­ast rignir inn í kjöl­far stórrar bylgju af dauðs­föllum vegna COVID-19. Heil­brigð­is­yf­ir­völd eiga að sama skapi í vand­ræðum með að anna eft­ir­spurn sjúkra. Reynt er að koma fyrir sem flestum sjúkra­rúmum á spít­ölum og setja upp aðstöðu til að taka á móti fólki til grein­ingar.

Eftir að hörðum sam­komu­tak­mörk­unum vegna kór­ónu­veirunnar var aflétt í Kína er COVID-19 að sækja veru­lega í sig veðrið meðal þjóðar sem er lítið bólu­sett, telur 1,4 millj­arða manna í víð­feðmu landi þar sem erfitt getur reynst að veita heil­brigð­is­þjón­ustu. Ástandið virð­ist þó enn sem komið er verst í borg­unum, m.a. í Peking. Þar anna bál­stofur og lík­hús þó enn eft­ir­spurn en í öðrum borgum, m.a. Chongqing, þar sem 30 millj­ónir búa, er allt orðið yfir­fullt og ekki hægt að taka við fleiri líkum að svo stöddu.

[adspot]

Flestir eru á því að skýr­ingin á auknum fjölda and­láta teng­ist COVID-19 en yfir­völd í Kína eru þó ekki á því. Þau segja að á þriðju­dag hafi orðið þrjú stað­fest and­lát vegna sjúk­dóms­ins og að um væri að ræða fyrstu dauðs­föllin vegna hans í fleiri vikur.

Raun er það svo að frá því að heims­far­aldur COVID-19 braust út hafa aðeins 5.242 mann­eskjur lát­ist af völdum hans sam­kvæmt opin­berum tölum. Það er langan veg frá því sem gerst hefur í öðrum ríkjum heims­ins.

Þess vegna efast flestir um að þetta sé rétt og telja að and­látin séu miklu fleiri.

Frá því að núll-stefnan svo­kall­aða, það er að segja að stefna að engu smiti af kór­ónu­veiru í land­inu með mjög hörðum tak­mörk­unum, var aflétt nýverið hafa sjúkra­hús yfir­fyllst af fólki og hillur apó­teka standa tómar. Þetta tvennt þykir sterk vís­bend­ing um að eitt­hvað meiri­háttar sé á seyði og flestir benda á kór­ónu­veiruna.

Í frétta­skýr­ingu Al Jazeera um málið er haft eftir sér­fræð­ingum í smit­sjúk­dómum að um 60 pró­sent kín­versku þjóð­ar­innar eigi eftir að sýkj­ast af COVID-19 á næstu mán­uðum. Þá telja þessir sömu sér­fræð­ingar að um 2 millj­ónir gætu lát­ist.

[adspot]

Rík­is­rekna dag­blaðið Global Times afneitar ekki smit­bylgj­unni nú en hefur eftir sínum sér­fræð­ingum að um 2,7 millj­ónir Kínverja gætu þurft á gjör­gæslu­inn­lögn að halda á næstu mán­uðum. Þess vegna væru sjúkra­hús að efla starf­semi sína, m.a. með því að stækka gjör­gæslu­deildir. Í borg­inni Guangzhou á til að mynda að fjölga gjör­gæslu­rýmum úr 455 í 1.385. Þá segir dag­blaðið að búist sé við því að bylgjan nái hámarki snemma í jan­úar.

Einnig hefur blaðið eftir heim­ild­ar­mönnum sínum að koma eigi fyrir grein­ing­ar­stöðvum víðs vegar í borgum, m.a. á íþrótta­leik­vöngum. Í Shanghai hefur verið komið upp yfir 2.500 básum þar sem fólk getur látið mæla hita og farið í PCR-próf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár