Tíu eftirminnileg atriði á tímum sóttvarnaaðgerða

Tvö áru síðan óvissu­stigi vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins var fyrst lýst yfir á Íslandi. Á þessum tíma hefur veiran haft ýmis áhrif á dag­legt líf lands­manna. Hér eru tíu atriði sem vert er að rifja upp þegar leiðin út úr far­aldr­inum virð­ist loks greið.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hefur haldið ófáar hvatningaræðurnar á tímum kórónuveirufaraldursins hér á landi.
Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn hefur haldið ófáar hvatn­inga­ræð­urnar á tímum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hér á landi.

Óvissu-, hættu- og neyð­ar­stig almanna­varna frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn braust út hér á landi hefur níu sinnum verið lýst yfir og upp­lýs­inga­fundir almanna­varna eru orðnir 196 tals­ins. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá fyrsta upp­lýs­inga­fund­inum sem hald­inn var í Sam­hæf­ing­ar­mið­stöð almanna­varna 27. febr­úar 2020, degi áður en fyrsta smitið greind­ist hér á landi, þar sem sótt­varna­læknir var full­viss um að heil­brigð­is­kerfið myndi ráða við verstu mögu­legu sviðs­mynd vegna veirunnar. 300 til­felli og tíu dauðs­föll. Fund­ur­inn reynd­ist sá fyrsti í funda­röð­inni „upp­lýs­inga­fundir almanna­varna“, sem nálg­ast brátt 200 tals­ins, og voru meðal vin­sæl­ustu dag­skrár­liða Rík­is­út­varps­ins þegar far­ald­ur­inn stóð sem hæst.

[links]Smitin eru orðin aðeins fleiri en 300, eða alls 64.486 ef miðað er við nýjystyu tölu, rúm­lega 95 þús­und hafa lokið sótt­kví og rúm­lega milljón sýni hafa verið tekin inn­an­land. En nú horfir loks til betri vegar. Sóttkví var svo gott sem afnumin í vik­unni og í gær kynntu stjórn­völd aflétt­ing­ar­á­ætlun sótt­varna­að­gerða. Almanna­varnir og helstu ráða­menn hafa ítrekað sagt bjart­ari tíma vera fram undan og nú er útlit fyrir að svo sé í raun og veru. Samkvæmt áætl­un­inni, sem er í þremur skrefum, verður öllum sótt­varna­að­gerðum aflétt 14. mars.

Í ljósi þess er til­valið að líta um öxl og finna til nokkur atriði sem settu svip sinn á þróun far­ald­urs­ins hér á landi. Sum bros­leg og önnur sem jafn­vel munu vekja upp söknuð.

1. Fjarlægðartakmarkanir og þróun tveggja metra reglunnar

Á fyrstu upp­lýs­inga­fundum þrí­eyk­is­ins stóðu, eða öllu heldur sátu, Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir og Alma Möller land­læknir þétt saman á efstu hæð í mat­salnum í Sam­hæf­ing­ar­mið­stöð almanna­varna í Skóg­ar­hlíð.

Eftir því sem fund­unum fjölg­aði breikk­aði bilið. Fljót­lega voru fund­irnir fluttir í gám fyrir utan Skóg­ar­hlíð­ina og orðið „fjar­lægð­ar­tak­mörk“ kynnt til sög­unnar þar sem meira bil var á milli fund­ar­manna, auk þess sem þau stóðu á fund­unum.

2. Þegar landsmenn voru beðnir um að ferðast innanhúss og þríeykið tók lagið

Í aðdrag­anda páska 2020 voru lands­menn hvattir til að ferð­ast inn­an­húss. Í fyrstu voru ein­hverjir sem tóku því sem svo að verið væri að beina því til fólks að ferð­ast inn­an­lands. Þegar kom í ljós að mælst var gegn því kom lagið „Ferðumst inn­an­húss“ til sög­unnar þar sem lands­þekktir lista­menn sýndu mik­il­vægi þess að standa saman, meðal ann­ars með því að sleppa ferða­lögum um pásk­ana og ein­fald­lega ferð­ast inn­an­húss. Þríeykið tók meira að segja lagið.

3. Þríeykis-bolirnir

Enn af þrí­eyk­inu. „Ég hlýði Víði“ varð fljótt við­ur­kenndur frasi og ekki leið á löngu þar til hægt var að skarta orð­unum í prófíl­mynd á Facebook. En sam­staðan var slík á þessum tíma, í apríl 2020, að ekki leið á löngu þar til stutt­erma­bolir með ein­kunn­ar­orðum þrí­eyk­is­ins, hvers fyrir sig, voru komnir í sölu.

Þannig var hægt að styðja sótt­varna­lækni með áletr­un­inni „Ég geng um gólf fyrir Þórólf“ og Ölmu land­lækni „Við erum öll Almanna­varnir“. Eftir því sem Kjarninn kemst næst eru bol­irnir ekki lengur í sölu svo þeir sem náðu að verða sér út um slíka á sínum tíma ættu að halda fast í verð­mætin.

4. „Syngjum veiruna í burtu“

Fleiri en þrí­eykið (og Helgi Björns) not­uðu söng til að kom­ast í gegnum far­ald­ur­inn. Í apríl 2020 var Facebook-hóp­ur­inn „Syngjum veiruna í burtu, öllum frjálst að leggja sitt af mörkum“ stofnuð og á örskömmum tíma rigndi inn mynd­skeiðum af inni­lok­uðum lands­mönnum þenja radd­böndin. Mikil sam­staða hefur ein­kennt hóp­inn, sem tók sig meðal ann­ars saman og söng nýjan texta við lagið „Eye of the Tiger“ sem átti að fæla vei­una í burtu. Yfir 20 þús­und manns eru í hópnum og hann lifir enn furðu góðu lífi.

5. Karaoke á írska barnum

Allt horfði til betri vegar vorið 2020, inn­an­lands­smit greindust ekki um tíma og skemmt­ana­lífið fór að taka við sér. Enn og aftur kom söngur við sögu í far­aldr­inum. Þeim sem gripu í míkró­fón­inn í kara­oke-her­berg­inu á Irishman Pub tókst að vísu ekki að syngja veiruna í burtu heldur urðu fyrir barð­inu á henni. Í kjöl­farið var krám og skemmti­stöðum lokað tíma­bundið og ný bylgja far­ald­urs­ins blasti við.

6. Vinkonudagur Þórdísar og heimsókn Bjarna í Ásmundarsal

Vanga­veltur um brot á sótt­varna­reglum, sér­stak­lega þegar ráða­menn eiga í hlut, verður lík­lega ekki á meðal þess sem fólk mun koma til með að sakna við far­ald­ur­inn. Tvö mál þessu tengdu báru hæst, ann­ars vegar þegar Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir birti mynd af sér með vin­konum á sam­fé­lags­miðlum. Rík­is­stjórn­in, sem Þór­dís Kol­brún situr í, hafði nokkrum vikum áður hert reglur vegna þess að önnur bylgja kór­ónu­veirusmita var að gera vart við sig. Auk þess höfðu reglur á landa­mærum verið hertar til muna deg­inum áður. „Hún var takt­laus og mis­tök, svona eftir á að hyggja,“ sagði Þór­dís Kol­brún við­tali við Morg­un­blaðið þegar hún ræddi vin­konu­dag­inn.

Aðfanga­dags­morgun 2020 var heldur fjörug­ari en oft áður þegar greint var frá því í dag­bók lög­reglu að lög­regla hefði leyst upp sam­kvæmi í Ásmund­ar­sal í mið­borg Reykja­víkur á Þor­láks­messu­kvöld þar sem ráð­herra var á meðal gesta. Fljót­lega kom í ljós að umræddur ráð­herra var Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Bjarni var harð­lega gagn­rýndur fyrir við­veru sína í salnum en hann baðst afsök­unar á að hafa gert þau mis­tök að yfir­gefa ekki sal­inn þegar hann átt­aði sig á „að fjöld­inn rúm­að­ist ekki innan tak­markanna“.

Þrátt fyrir háværa gagn­rýni fór málið aldrei fyrir siða­nefnd Alþingis en lauk með því að eig­endur Ásmund­ar­sals voru sektuð vegna brota á grímu­skyldu. Bjarni lét svo aftur sjá sig í Ásmund­ar­sal fyrir síð­ustu jól þar sem hann festi kaup á lista­verki, mál­verki af honum sjálfum eftir Auði Ómars­dóttur mynd­lista­mann.

7. Bólusetningarkapphlaupið í Laugardalshöll

Bólu­setn­ing var mál mál­anna síð­asta sumar. Áhuginn var mik­ill og náði hámarki í byrjun júní þegar handa­hófs­kenndar bólu­setn­ing­ar­boð­anir árganga eftir kynjum hófust á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Boð í bólu­setn­ingu barst oftar en ekki með skömmum fyr­ir­vara, ekki síst þegar afgangs­skammtar voru í lok hvers dags sem þurfti að koma út með hraði.

Fjöl­miðlar fylgd­ust með hama­gang­inum þegar fólk hóp­að­ist í bólu­setn­ingu og þau sem voru hvað létt­ust á fæti tóku sprett­inn, bók­staf­lega, í Laug­ar­dals­höll­ina. Þeirra á meðal var pípu­lagn­inga­nemi sem var á kló­sett­inu þegar hann fékk boðun. „Ég rauk af stað, kláraði þetta og negldi í Laug­ar­dals­höll­ina,“ sagði hann í sam­tali við Vísi fyrir utan höll­ina 2. júní sl. Ákafinn hefur aðeins minnkað eftir því sem líður á far­ald­ur­inn og örv­un­ar­bólu­sent­ing­unum fjölgar en 78 pró­sent lands­manna telj­ast nú full­bólu­settir.

8. Sóttkvíarvestin

Ýmis konar varn­ingur varð til í tengslum við far­ald­ur­inn, þar á meðal sér­stök vesti fyrir þá sem eru í sótt­kví. Samkvæmt reglum mega þau sem er í sótt­kví fara í stutta göngu­ferð í nágrenni sótt­kví­ar­staðar. Hjón nokkur dóu ekki ráða­laus þegar þau létu fram­leiða neongul vesti með áletr­un­inni „Í sótt­kví - 2 metrar“ til að svala heyfi­þörf­inni eftir að þau lentu í sótt­kví ef hjóla­ferð til Kanarí­eyja. Með þessu móti vildu þau létta fólki sem er í sótt­kví lífið þannig að það geti farið út og hreyft sig vel merkt og tryggt fjar­lægð­ar­tak­mark­anir. Samkvæmt nýjum reglum um sótt­kví heyrir hún nán­ast sög­unni til en sótt­kví­ar­vestin eru þó enn fáan­leg ef vill.

9. „Akureyringar fylgja reglum“

Ummæli bæj­ar­stjóra Akur­eyrar um ástæðu þess að lítið væri um smit í bænum féllu í grýttan jarð­veg. „Það er ástæða fyrir því að hér er lítið um smit. Fólk fer mjög var­lega. Akur­eyr­ingar fylgja reglum,“ sagði Ást­hildur Sturlu­dóttir, bæj­ar­stjóri Akur­eyrar, í kvöld­fréttum RÚV í októ­ber 2020. Umræður voru á þessum tíma að setja á tak­mark­anir eftir lands­hlutum og biðl­aði bæj­ar­stjórnn til höf­uð­borg­ar­búa að fara ekki út á land þar sem væri minna um smit.

Um tveimur vikum seinna kom svo í ljós að Akur­eyr­ingar fylgdu ekki reglum eftir allt saman, ef marka má ummæli Ást­hildar, þar sem smitum fjölg­aði þar líkt og ann­ars staðar á land­inu.

10. Nýyrðin

Heim­komusmit­gát, hóp­sýk­ing, háá­hættu­svæði, smit­skömm, sýna­tökupinna­skortur, hjarð­ó­næmi og örv­un­ar­skammtur eru dæmi um orð sem hófu að heyr­ast eftir því sem leið á far­ald­ur­inn. Sum í fyrsta sinn en önnur fengu nýja og dýpri merk­ingu.

Nær allt árið 2020 ein­kennd­ist af hugs­unum og aðgerðum um kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn og var fólki því eðli­lega ofar­lega í huga í lok árs­ins. Reyndar svo ofar­lega að „sótt­kví“ og „þrí­eykið“ voru valin orð árs­ins í vali sem RÚV stendur fyrir. Síðasta ár var einnig meira og minna und­ir­lagt af far­aldr­inum og það kom því ekki á óvart þegar „bólu­setn­ing“ var valin orð árs­ins 2021. Ætli aflétt­ing­ar­á­ætlun verði orð árs­ins 2022?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár