Öllum sóttvarnaráðstöfunum aflétt á næstu sex til átta vikum

Öllum sótt­varna­ráð­stöf­unum verður aflétt á næstu sex til átta vikum sam­kvæmt aflétt­ing­ar­á­ætlun stjórn­valda vegna COVID-19. For­sæt­is­ráð­herra segir að ef allt gengur eftir megi ekki aðeins búast við hækk­andi sól í mars heldur einnig eðli­legu sam­fé­lagi.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Við færum ykkur góð tíð­indi hér í dag,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra á blaða­manna­fundi í Safna­hús­inu í dag þar sem aflétt­ing­ar­á­ætlun stjórn­valda var kynnt. Áætlunin er í þremur skrefum og gerir ráð fyrir að slakað verði á tak­mörk­unum í þremur skrefum. Fyrsta skrefið tekur gildi á mið­nætti, annað 24. febr­úar og í því þriðja, 14. mars, er gert ráð fyrir að öllum tak­mörk­unum verði aflétt.

„Við erum að sjá að það eru að verða raun­veru­legar breyt­ingar í bar­áttu okkar við far­ald­ur­inn, bæði vegna þess að veiran sjálf sem við erum að eiga við hefur breytt um eðli með nýju afbrigði en líka vegna góðrar bólu­setn­ing­ar­stöðu og mik­ils árang­urs íslenska heil­brigð­is­kerf­is­ins í að takast á við veiruna og sinna því fólki sem smit­ast af henni.“

Fyrsta skref aflétt­ing­ar­innar tekur gildi á mið­nætti þegar almennar fjölda­tak­mark­anir verða 50 manns, nánd­ar­regla verður 1 metri, krár og skemmti­staðir mega opna að nýju og opn­un­ar­tími þeirra og ann­arra veit­inga­staða verður lengdur um tvær klukku­stundir.

Þá verður heim­ilt að halda sitj­andi við­burði fyrir 500 manns að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum. Tak­mark­anir í skólum verða að mestu óbreyttar. Þetta er meg­in­inn­tak breyt­inga á reglu­gerð um sam­komu­tak­mark­anir sem tekur gildi 29. jan­úar sam­kvæmt ákvörðun heil­brigði­ráð­herra.

Aðrar helstu breytingar sem taka gildi á morgun eru þessar:

  • Almennar fjölda­tak­mark­anir fari úr 10 í 50 manns.
  • Nánd­ar­regla fari úr 2 metrum í 1 metra.
  • Óbreytt grímu­skylda, sem tekur þó almennt mið af nánd­ar­reglu.
  • Sund-, bað­staðir, lík­ams­rækt­ar­stöðvar og skíða­svæði verði heim­ilt að hafa opið með 75% afköstum.
  • Íþrótta­keppnir verði áfram heim­ilar með 50 þátt­tak­endum og áhorf­endur séu leyfðir á ný.
  • Hámarks­fjöldi í versl­unum geti mest orðið 500 manns.
  • Skemmti­stöðum, krám, spila­stöðum og spila­kössum verði heim­ilað að opna á ný.
  • Veit­inga­stöðum, þ.m.t. krám og skemmti­stöðum, verði heim­ilt að hleypa nýjum við­skipta­vinum til kl. 23.00 en gestum verði gert að yfir­gefa stað­ina kl. 00.00.
  • Á sitj­andi við­burðum verði heim­ilt að taka á móti allt að 500 gestum í hverju hólfi, við­halda skuli 1 metra nánd­ar­reglu milli óskyldra aðila auk grímu­skyldu. Ekki verði þörf á hrað­prófum.
  • Í skólum verði óbreyttar tak­mark­anir, þó þannig að þær verði aðlag­aðar fram­an­greindum til­slök­unum eftir því sem við á.
  • Reglu­gerðin gildi í tæpar fjórar vikur til og með 24. febr­úar.

Fór ekki eftir tillögum sóttvarnalæknis í einu og öllu

„Þetta er það bjartasta sem ég hef lesið hingað til,“ sagði Willum Þór Þórsson um minn­is­blað sótt­varna­læknis um aflétt­ing­ar­á­ætl­un­ina. Hann fór þó ekki að til­lögum sótt­varna­læknis í einu og öllu, en hann vék lít­il­lega frá til­lögum hans með því að láta nýju regl­urnar taka gildi fyrr, lengja opn­un­ar­tíma veit­inga­staða um tvær klukku­stundir í stað einnar og hækka hámarks­fjölda í versl­unum.

Í minn­is­blaðisínu leggur sótt­varna­læknir fram áætlun að aflétt­ingu opin­berra sótt­varna­að­gerða sem hann telur rétt að gera í skrefum. Í til­kynn­ingu Stjórn­ar­ráðs­ins er tekið fram að sótt­varna­læknir áréttar að meðan á aflétt­ingum stendur megi búast við að sam­fé­lags­smitum muni fjölga tíma­bundið sem geti bæði haft þau áhrif að þeim sem veik­ist alvar­lega fjölgi en jafn­framt geti starf­semi margra fyr­ir­tækja raskast vegna veik­inda starfs­manna. Neyð­ar­á­stand geti því skap­ast á mörgum vinnu­stöðum sem krefj­ist sér­stakra úrræða og fyr­ir­tæki þurfi að vera undir það búin að starfa í ein­hvern tíma með skertu vinnu­afli. Mik­il­vægt sé að hafa í huga að far­aldr­inum ljúki ekki hér á landi fyrr en gott sam­fé­lags­legt ónæmi hafi skap­ast, sem gæti náðst eftir tæpa tvo mán­uði.

Að mati sótt­varna­læknis er skyn­sam­legt að miða við að um miðjan mars 2022 verði öllum tak­mörk­unum aflétt svo fremi sem núver­andi for­sendur haldi, þ.e. ekki komi upp ný afbrigði veirunnar og aukn­ing verði ekki á alvar­legum veik­indum sem valdi of miklu álagi á heil­brigð­is­kerfið eða of mikil veik­inda­for­föll starfs­manna verði í ýmsum fyr­ir­tækjum sem skapi neyð­ar­á­stand.

Heil­brigð­is­ráð­herra og rík­is­stjórnin munu hafa aflétt­ing­ar­á­ætl­un­ina til hlið­sjónar vegna næstu aflétt­inga og verður staðan metin reglu­lega, einkum álag á heil­brigð­is­kerfið, og verður brugð­ist við í sam­ræmi við stöð­una. Það getur þýtt að ráð­ist verði fyrr í aflétt­ingar en áætl­unin gerir ráð fyrir eða þeim frestað ef for­sendur breyt­ast, svo sem vegna nýrra afbrigða veirunnar.

Katrín segir að ef allt gengur eftir áætlun verði búið að aflétta öllum aðgerðum um miðjan mars. „Ef allt gengur vel eins og við öll að sjálfs­göðu vonum getum við ekki bara horft fram á hækk­andi sól í mars heldur líka eðli­legt sam­fé­lag,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár