Stjórnmála- og fjölmiðlafólk reynir að draga úr áhrifum áreitni á netinu

Stjórn­mála- og fjöl­miðla­fólk normalíserar netáreitni, reynir að draga úr áhrifum hennar og telur hana eðli­legan fylgi­fisk starfs­ins, sam­kvæmt nið­ur­stöðum nýrrar rann­sóknar. Vís­bend­ingar eru um að áreitni á net­inu sé algeng­ari meðal kvenna en karla.

Tvær stjórn­mála­kon­ur, tvær fjöl­miðla­kon­ur, tveir stjórn­mála­menn og tveir fjöl­miðla­menn segja frá upp­lifun sinni á óvæg­inni umræðu og áreitni á net­inu í nýrri rannsókn..
Tvær stjórn­mála­kon­ur, tvær fjöl­miðla­kon­ur, tveir stjórn­mála­menn og tveir fjöl­miðla­menn segja frá upp­lifun sinni á óvæg­inni umræðu og áreitni á net­inu í nýrri rann­sókn.. Mynd: Bára Huld Beck

Óvægin umræða og áreitni í garð stjórn­mála- og fjöl­miðla­fólks á net­inu er eðli­legur fylgi­fiskur starfs þeirra að eigin mati og vís­bend­ingar eru um að netáreitni sé mun algeng­ari meðal kvenna en karla. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri rann­sókn um upp­lifun stjórn­mála- og fjöl­miðla­fólks af óvæg­inni umræðu og áreitni á net­inu.

Bríet B. Ein­ars­dóttir, MA í fjöl­miðla- og boð­skipta­fræði frá Stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands, og Jón Gunnar Ólafsson, nýdoktor við Stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands, standa að rann­sókn­inni. Greint er frá nið­ur­stöðum hennar í nýj­ustu útgáfu tíma­rits­ins Stjórn­mál og stjórn­sýsla og ber greinin yfir­skrift­ina „Dropinn holar stein­inn: Upplifun stjórn­mála- og fjöl­miðla­fólks af óvæg­inni umræðu og áreitni á net­inu“.

Markmið rann­sókn­ar­innar er að kanna upp­lifun og við­horf stjórn­mála- og fjöl­miðla­fólks hér­lendis af óvæg­inni umræðu og áreitni á net­inu. Rann­sóknin varpar ljósi á þau áhrif sem óvægin umræða og áreitni getur haft í för með sér á fjöl­miðla- og stjórn­mála­fólk, bæði á líf þeirra og störf, en ekki síður á lýð­ræðið.

„Slík umræða og áreitni hefur verið áber­andi að und­an­förnu og er af mörgum álitin vax­andi vanda­mál í ört breyti­legu fjöl­miðla- og stjórn­málaum­hverfi, sem ein­kenn­ist af breyttum sam­skipta­háttum fólks, meðal ann­ars á sam­fé­lags­miðlum,“ segir í grein Bríetar og Jóns Gunnars.

Ólík reynsla og skýr kynjamunur

Fram­kvæmd var eig­ind­leg rann­sókn þar sem tekin voru við­töl við ein­stak­linga úr hópi fjöl­miðla- og stjórn­mála­fólks, en um var að ræða áber­andi per­sónur í þjóð­fé­lag­inu. Við­mæl­endur komu til jafns úr hópi fjöl­miðla- og stjórn­mála­fólks, fjórir úr hvorum hópi fyrir sig, og voru allir starf­andi í sínu fagi þegar þeir tóku þátt í rann­sókn­inni.

Rætt var við fjórar konur og fjóra karla og var per­sónu­leg upp­lifun og reynsla við­mæl­enda af netáreitni mjög ólík og í frá­sögnum þeirra kom til að mynda skýr kynja­munur í ljós. Allar kon­urnar töldu sig hafa upp­lifað slíka áreitni, í mis­miklum mæli, á meðan ein­ungis einn karl­anna taldi sig hafa upp­lifað hana.

Tvær stjórn­mála­konur, tvær fjöl­miðla­konur, tveir stjórn­mála­menn og tveir fjöl­miðla­menn segja frá upp­lifun sinni á óvæg­inni umræðu og áreitni á net­inu í rann­sókn­inni. Aldur þeirra var á bil­inu 30-56 ára og með­al­aldur var 41 árs. Fjöl­miðla­fólkið starf­aði ýmist á ljós­vaka- eða prent­miðlum og vann hjá ólíkum fyr­ir­tækjum og stjórn­mála­fólkið var ýmist í stjórn eða stjórn­ar­and­stöðu og starf­aði ýmist á þingi eða í borg­ar­stjórn.

Endurtekin, óæskileg hegðun í gegnum netið sem veldur skaða

Netáreitni er oft­ast skil­greind sem end­ur­tekin, óæski­leg hegðun í gegnum netið, sem veldur þeim sem fyrir henni verður skaða. Hún á sér margar birt­ing­ar­myndir og getur meðal ann­ars falist í dóna­legum eða óvið­eig­andi skila­boðum, niðr­andi orð­ræðu, nei­kvæðum athuga­semdum og hót­unum um lík­am­legt eða kyn­ferð­is­legt ofbeldi.

Við­mæl­endur túlk­uðu með ólíkum hætti hvað teld­ist vera netáreitni. Flestir töldu áreitn­ina fel­ast í end­ur­teknum og óæski­legum skila­boðum eða athuga­semdum sem færu yfir mörk við­tak­anda. Hún gæti falist í skila­boðum sem létu fólk upp­lifa ógn eða óör­yggi, svo sem með hót­unum um ofbeldi. Allir voru sam­mála um að áreitni væri gjör­ó­líkt áreiti, þótt orðin væru svipuð, og nauð­syn­legt væri að greina þar á milli.

Ein­stak­lingar sem vinna á opin­berum vett­vangi, líkt og stjórn­mála- og fjöl­miðla­fólk, eru starfs síns vegna sér­stak­lega útsett fyrir hvers kyns áreitni í gegnum netið og mörgum þykir það jafn­vel eðli­legur fylgi­fiskur þess að vera opin­ber per­sóna.

[links]„Hér á landi hefur slík áreitni ekki endi­lega verið álitin stórt vanda­mál og ríkrar til­hneig­ingar gætt til að gera lítið úr henni. Nýleg umræða um hót­anir og hat­urs­orð­ræðu í garð stjórn­mála­fólks ber þess til að mynda glögg­lega merki,“ segja Bríet og Jón Gunnar í grein sinni og vísa í því sam­hengi meðal ann­ars í við­tal Kjarnans við Lenyu Rún Taha Karim, vara­þing­mann Pírata, í apríl á þessu ári.

Í við­tal­inu sagði Lenya meðal ann­ars frá því að hún hefði íhugað að hætta á þingi vegna per­són­u­árása sem hún varð fyrir eftir að hún tók fyrst sæti sem vara­þing­maður. Kjarninn fjar­lægði frétt sem var unn­inn upp úr við­tal­inu vegna rasískra ummæla sem skrifuð voru við deil­ingu frétt­ar­innar á Facebook-síðu Kjarnans.

Í grein Bríetar og Jóns Gunnars segir að full ástæða sé til að veita þessu við­fangs­efni meiri athygli en hingað til hefur verið gert. Markmið rann­sókn­ar­innar er að dýpka skiln­ing á og skoða hvernig þessir til­teknu þjóð­fé­lags­hópar, stjórn­mála- og fjöl­miðla­fólk, upp­lifa netáreitni og þá óvægnu umræðu sem henni teng­ist. Ekki ein­ungis gagn­vart sjálfum sér heldur einnig sam­fé­lag­inu í heild, meðal ann­ars hvað varðar lýð­ræð­is­lega umræðu. Þetta er í fyrsta sinn sem rann­sókn af þessu tagi hefur verið fram­kvæmd á Íslandi.

Samfélagsmiðlar: Tvíeggja sverð

Stjórn­mála- og fjöl­miðla­fólk sem rætt var við í rann­sókn­inni höfðu almennt sterkar skoð­anir á sam­fé­lags­miðlum og töldu þá tví­eggja sverð; þeir byggju yfir ýmsum kostum en einnig göllum. Áhrif miðl­anna á sam­fé­lags­um­ræð­una væru bæði jákvæð og nei­kvæð.

Jákvæðu áhrifin voru helst að sam­fé­lags­miðlar hefðu gefið öllum tæki­færi til að láta rödd sína heyr­ast, skapað rými fyrir fólk til að koma saman og aukið gagn­sæi í opin­berri umræðu.

Á hinn bóg­inn töldu flestir nei­kvæð áhrif sam­fé­lags­miðla vera mikil og jafn­vel til þess fallin að valda sam­fé­lag­inu lýð­ræð­is­legum skaða, til dæmis með því að grafa undan trú­verð­ug­leika kosn­inga og hefð­bund­inna fjöl­miðla.

Upplifa verri netáreitni gagnvart konum

Per­sónu­leg upp­lifun og reynsla við­mæl­enda af netáreitni var mjög ólík og í frá­sögnum þeirra kom til að mynda skýr kynja­munur í ljós. Allar kon­urnar töldu sig hafa upp­lifað slíka áreitni, í mis­miklum mæli, á meðan ein­ungis einn karl­anna taldi sig hafa upp­lifað hana. Sumir karl­kyns við­mæl­end­urnir bentu á kven­kyns sam­starfs­menn sína fyrir ítar­legri upp­lýs­ingar um mál­efnið og flestir þeirra töldu netáreitni vera meira vanda­mál gagn­vart konum en körlum.

Að sama skapi bentu margar kvenn­anna á kven­kyns sam­starfs­menn sína sem þær vissu að hefðu lent í verri atvikum en þær sjálfar og reyndu þannig að draga úr sinni eigin upp­lifun af áreitn­inni.

Bæði þau sem starfa í fjöl­miðlum og við stjórn­mál upp­lifðu almennt að netáreitni væri verri gagn­vart konum sem störf­uðu á opin­berum vett­vangi heldur en körlum og töldu hana ann­ars eðlis en sú áreitni sem karl­arnir yrðu fyrir. Margir töl­uðu um að netáreitni í garð kvenna væri oft gróf­ari, svæsnari og per­sónu­legri en í garð karla og sneri frekar að útliti þeirra, hæfni eða til­finn­ingum.

Þrír af fjórum kven­kyns við­mæl­endum töldu sig hafa upp­lifað ofbeld­is­fullar hót­anir með ein­hverjum hætti og þar af töl­uðu tvær þeirra um að hafa fengið morð­hót­anir. Áhrif áreitn­innar á við­mæl­endur voru marg­vís­leg og sneru einna helst að sál­rænum eða starfstengdum áhrifum.

Rann­sak­endur segja áhuga­vert að sjá hversu hár þrösk­uldur við­mæl­enda var þegar kemur að netáreitni „þar sem öfga­fyllstu dæmin (t.d. morð­hót­anir) voru gjarnan notuð sem við­mið“.

„Þú getur ekkert verið að væla sko“

Orðræða við­mæl­enda ein­kennd­ist af því að óvægin umræða og áreitni í þeirra garð á net­inu væri eðli­legur fylgi­fiskur starfs þeirra. Þau nefndu flest að því væri nauð­syn­legt að hafa „þykkan skráp“ eða „brynju“ til að vernda sig.

„Þú getur ekk­ert verið að væla sko, þú ert bara í valda­stöðu, þú ert að breyta hlutum, fólki mun finn­ast það alls konar og þú verður bara að þola það,“ sagði stjórn­mála­kona sem rætt var við í rann­sókn­inni.

Þá not­uðu sumir ýmis orð yfir áreitn­ina til að draga úr alvar­leika hennar og mátti þar nefna orð eins og „skíta­stormur“, „fúk­yrða­flaumur“, „hakka­vél“ og „drulluma­sk­ína“.

Við­mæl­endur drógu þó ákveðna línu við hvers konar netáreitni færi yfir mörkin og í flestum til­vikum fól það í sér ein­hvers konar hót­anir um ofbeldi og jafn­vel morð­hót­anir.

Dropinn holar steininn

Í nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar kemur fram að orð­ræða við­mæl­enda af báðum stéttum og kynjum ein­kennd­ist tölu­vert af normalís­er­ingu á áreitn­inni, þar sem dregið var úr henni og hún að ein­hverju leyti álitin eðli­legur hluti af því að vera opin­ber per­sóna. Margir gerðu lítið úr vand­anum með marg­vís­legum hætti og og sumir töldu ekki væn­legt að vekja athygli á áreitn­inni, þar sem það væri merki um veik­leika. Slík umræða var sér­stak­lega áber­andi meðal kven­kyns við­mæl­enda.

Við­mæl­endur virt­ust flestir í ákveð­inni vörn í upp­hafi við­tala eftir því sem leið á við­tölin voru þeir til­bún­ari til að gang­ast við afleið­ingum áreitn­innar. „Að end­ingu voru allir sam­mála um að ítrekuð áreitni í gegnum netið næði á end­anum í gegn og að drop­inn hol­aði þannig stein­inn,“ segir í grein Bríetar og Jóns Gunnars.

Þau benda þó á að nokk­urra þver­sagna gætti þó hjá stjórn­mála- og fjöl­miðla­fólki um áhrif og afleið­ingar netáreitni og skör­uð­ust frá­sagnir oft á við þau við­horf sem komu fram fyrr í við­töl­unum. Á meðan flestir töl­uðu um að hafa þykkan skráp var ljóst að áreitnin hefði sann­ar­lega haft ein­hver áhrif í för með sér.

Í upp­hafi við­tala gerðu margir við­mæl­endur lítið úr áreitn­inni og afleið­ingum hennar en þegar leið á við­tölin fóru þeir í auknum mæli að greina frá þeim áhrifum sem áreitnin hafði haft á þá. Áhrifin sem greina mátti á við­mæl­endum sneru helst að sál­rænum áhrifum eða tengdum starfi þeirra. Sálrænu áhrifin fólust meðal ann­ars í ótta, kvíða, smánun eða annarri van­líðan.

Það er mat rann­sak­enda að nið­ur­stöð­urnar tengj­ast stærri umræðu um mörk sam­fé­lags­ins hvað varðar netið almennt og hvernig þau mörk hafa ekki verið skil­greind.

„Líkt og nið­ur­stöður þess­arar rann­sóknar hafa ber­sýni­lega sýnt getur netáreitni í öllum sínum birt­ing­ar­myndum haft mikil og afdrifa­rík áhrif á þá sem fyrir henni verða og því er nauð­syn­legt að rann­saka og ræða málið nánar, en meðal ann­ars þarf að skil­greina betur þau mörk sem eðli­legt þykir að búa við á net­inu til að valda ekki öðrum skaða,“ segja Bríet og Jón Gunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

áreitni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár