Yfir 60 prósent treysta ekki stjórninni til að selja Íslandsbanka og vilja rannsóknarnefnd

Næstum þrír af hverjum fjórum kjós­endum Vinstri grænna vilja að skipuð verði rann­sókn­ar­nefnd um banka­söl­una og 57 pró­sent þeirra treysta ekki rík­is­stjórn sem leidd er af for­manni flokks­ins til að selja meira í Íslands­banka.

Meirihluti landsmanna treysta ekki ríkisstjórninni til að selja meira í Íslandsbanka.
Meiri­hluti lands­manna treysta ekki rík­is­stjórn­inni til að selja meira í Íslands­banka. Mynd: Bára Huld Beck

Alls segj­ast 63 pró­sent lands­manna að þeir treysti núver­andi rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur illa til að selja eft­ir­stand­andi 42,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Einungis 16 pró­sent segj­ast treysta henni vel til þess og 21 pró­sent segj­ast treysta henni í með­al­lagi. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Maskína hefur látið gera. Könnunin var gerð dag­anna 18. til 22. nóv­em­ber og var því gerð eftir að skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar um sölu­ferli á 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka kom út í byrjun síð­ustu viku.

Í sömu könnun var einnig spurt hversu fylgj­andi eða and­vígt fólk væri gagn­vart því að Alþingi setti á fót rann­sókn­ar­nefnd til að skoða söl­una á eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka í mars síð­ast­liðnum. Þar kom í ljós að 61 pró­sent svar­enda er fylgj­andi því að setja upp rann­sókn­ar­nefnd en ein­ungis tólf pró­sent eru á móti því. Alls 27 pró­sent sögð­ust ekki hafa skoðun á mál­inu.

Sjálfstæðismenn skera sig einir úr

Þegar afstaða fólks til þess hversu vel það treysta rík­is­stjórn­inni til að selja banka er flokkuð niður á stjórn­mála­skoð­anir kemur í ljós að það eru ein­ungis kjós­endur eins flokks sem treysta henni að meiri­hluta vel fyrir að selja rest­ina af Íslands­banka. Það eru kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins, flokks Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Alls segj­ast 58,9 pró­sent þeirra treysta rík­is­stjórn­inni vel til að selja eft­ir­stand­andi hlut í bank­anum.

[adspot]Athygli vekur að kjós­endur hinna stjórn­ar­flokk­anna treysta að uppi­stöðu rík­is­stjórn­inni alls ekki til slíkra verka. Einungis 14,3 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna gera það og 16,1 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins. Auk þess segj­ast 56,7 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna treysta rík­is­stjórn sem leidd er af for­manni þeirra illa til að selja rest­ina af bank­anum og 56,2 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins eru á sömu skoðun.

Ekki þarf að koma á óvart að kjós­endur stjórn­ar­and­stöðu­flokka eru upp til hópa á því að rík­is­stjórn­inni sé ekki treystandi fyrir frek­ari banka­sölu.

Svipuð staða er uppi þegar kemur að áhuga um að setja á fót rann­sókn­ar­nefnd Alþingis. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks skera sig úr hópnum en 36,8 pró­sent þeirra eru and­vígir því að setja á fót slíka nefnd en 26,4 pró­sent fylgj­andi. Kjós­endur allra ann­arra flokka eru frekar fylgj­andi því en and­vígir að setja á lagg­irnar rann­sókn­ar­nefnd til að rann­saka banka­söl­una.

Þar á meðal eru kjós­endur Vinstri grænna en alls 73,4 pró­sent þeirra vilja að rann­sókn­ar­nefnd verði sett á lagg­irnar og ein­ungis 7,8 pró­sent þeirra eru á móti því. Á meðal kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins er staðan þannig að 61,5 pró­sent eru fylgj­andi rann­sókn­ar­nefnd en 8,8 pró­sent á móti.

Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir sölu

Í fjár­­­laga­frum­varp­inu sem kynnt var í byrjun sept­­­em­ber var gert ráð fyrir að eft­ir­stand­andi 42,5 pró­­­­sent hlutur rík­­­­is­ins í Íslands­­­­­­­banka yrði seldur fyrir 75,8 millj­­­­arða króna á næsta ári. Það var gert þrátt fyrir yfir­­­lýs­ingu for­­­­­­manna stjórn­­­­­­­­­­­ar­­­­­­flokk­anna þriggja frá 19. apríl, þar sem segir að ekki verði ráð­ist í sölu á frek­­­­­­ari hlutum í Íslands­­­­­­­­­­­banka að sinni og að sú ákvörðun verði ekki end­­ur­­skoðuð á meðan að Rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoðun og FME rann­­­­sök­uðu það sem átti sér stað í mars.

[links]Kjarn­inn greindi frá því fyrr í októ­ber að ekki hafi verið tekin ákvörðun um áfram­hald­andi sölu eign­­­­­­ar­hluta rík­­­­­­is­ins í Íslands­­­­­­­­­­­banka og að yfir­­lýs­ingin stæði þar af leið­andi áfram. Katrín stað­­festir að ekk­ert hafi breyst í þeim efnum í sam­tali við Kjarn­ann í byrjun nóv­em­ber.

Þar sagði hún einnig að engin áform væru uppi um að selja hlut í Lands­­bank­­anum en heim­ild er til þess að selja allt að 30 pró­­sent hlut í honum í fjár­­laga­frum­varp­inu. Bjarni sagði í við­tali við Dag­­mál á mbl.is í ágúst að hann vildi ekki bara vilja losa ríkið úr eign­­­ar­hluta í Íslands­­­­­banka heldur líka selja hlut í Lands­­­bank­­­anum þegar fram í sækir, þótt hann væri þeirrar skoð­unar að ríkið geti vel farið þar með ráð­andi hlut.

Þriðji ráð­herr­ann sem situr í ráð­herra­­nefnd um efna­hags­­mál og end­­ur­­skipu­lagn­ingu fjár­­­mála­­kerf­is­ins er Lilja D. Alfreðs­dótt­­ir. Í svari hennar við fyr­ir­­spurn á Alþingi í síð­­asta mán­uði sagði að stefna Fram­­­sókn­­­ar­­­flokks­ins væri að Lands­­­bank­inn verði áfram í eigu rík­­­is­ins og að flokk­­­ur­inn sé til í að skoða hug­­­myndir þess efnis að bank­inn verði sam­­­fé­lags­­­banki.

Áfelli Rík­is­end­ur­skoð­unar

Síðan þá hefur skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar um sölu­ferlið í mars verið birt. Að mati stofn­un­ar­innar voru ann­markar sölu­ferl­is­ins fjöl­margir sem lúta bæði að und­ir­­­bún­­­ingi og fram­­­kvæmd söl­unn­­­ar. Þar segir meðal ann­­ars að ljóst megi vera að „orð­­­sporðs­á­hætta við sölu opin­berra eigna var van­­­metin fyrir sölu­­­ferlið 22. mars af Banka­­­sýslu rík­­­is­ins, fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráðu­­­neyti og þing­­­nefndum sem um málið fjöll­uðu í aðdrag­anda söl­unn­­­ar.“ Hægt hefði, að mati Rík­is­end­ur­skoð­un­ar, verið hægt að fá hærra verð fyrir eign­ar­hlut rík­is­ins en ákveðið var að selja á lægra verði til að ná fram öðrum mark­miðum en lög­bundn­um. Þá hafi hug­lægt mat ráðið því hvernig fjár­festar voru flokk­að­ir, en útboðið var lokað með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi og ein­ungis 207 fengu að kaupa hlut í því, sam­tals fyrir 52,65 millj­arða króna.

Banka­sýslan hefur hafnað nán­ast allri gagn­rýni sem sett hefur verið fram á hana og sagt að skýrslan afhjúpi tak­mark­aða þekk­ingu Rík­is­end­ur­skoð­unar á við­fangs­efn­inu.

Talið er að Fjár­mála­eft­ir­litið muni opin­bera nið­ur­stöður rann­sóknar sinnar á sölu­ferl­inu í jan­ú­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár