Framsóknarflokkurinn „mjög opinn“ fyrir því að Landsbankinn verði samfélagsbanki

Samkvæmt umræðum á Alþingi í dag eru tveir af þremur stjórn­ar­flokkum alveg sam­mála um að Lands­bank­inn eigi áfram að verða í eigu íslenska rík­is­ins. Bæði Vinstri græn og Framsókn vilja skoða að bank­inn verði sam­fé­lags­banki.

Lilja Alfreðsdóttir er menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins.
Lilja Alfreðs­dóttir er menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja Alfreðs­dóttir menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra segir að stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins sé að Lands­bank­inn verði áfram í eigu rík­is­ins og að flokk­ur­inn sé til í að skoða hug­myndir þess efnis að bank­inn verði sam­fé­lags­banki, sem jafn­vel beindi fjár­fest­ingu sér­stak­lega inn á „köld svæði“ utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Þetta kom fram í svari Lilju við fyr­ir­spurn Stein­unnar Þóru Árna­dóttur þing­manns Vinstri grænna, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag. Steinunn Þóra sagði að Vinstri græn leggðu áherslu á að ríkið yrði áfram eig­andi Lands­bank­ans og að flokk­ur­inn hefði talað um að „skapa umgjörð um starf­semi sam­fé­lags­banka sem starfar sam­kvæmt umhverfis- og sam­fé­lags­sjón­ar­miðum“.

Sagði Steinunn Þóra að hún teldi að slíkar áherslur yrðu sífellt mik­il­væg­ari í þeim breyt­ingum sem heim­ur­inn stæði frammi fyrir, á kom­andi miss­erum. Spurði hún ráð­herra í kjöl­farið út í afstöðu hennar, og Fram­sókn­ar­flokks­ins, til eign­ar­halds eða hugs­an­legrar sölu á Lands­bank­anum.

„Þjóðarbankinn“ Landsbankinn

„Það er alveg ljóst að við viljum að Lands­banki Íslands verði áfram í eigu þjóð­ar­innar og við teljum að það sé mjög mik­il­vægt. Varðandi þær hug­myndir [...] að þróa Lands­banka Íslands frekar í átt að sam­fé­lags­banka, þá er alveg ljóst að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er mjög opinn gagn­vart því og líka að skoða svokölluð köld svæði á Íslandi, þar sem fjár­fest­ingar hafa verið jafn­vel verið minni en hér á hbsv og hvernig þjóð­ar­banki, Lands­banki Íslands, getur komið betur að þeim málum,“ sagði Lilja í svari sínu við fyr­ir­spurn Stein­unnar Þóru.

[adspot]

Í stefnu Fram­sókn­ar­flokks­ins í atvinnu- og efna­hags­málum sem sam­þykkt var á flokks­þingi fyrr á þessu ári segir ekk­ert ákveðið um hvernig eign­ar­haldi í banka­kerf­inu skuli háttað, en þó kemur fram að Framsókn leggi „áherslu á hags­muni neyt­enda og skatt­greið­enda við skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins og að stjórn­völd veiti fjár­mála­kerf­inu aðhald og eft­ir­lit“.

Hug­myndir um sam­fé­lags­banka hafa þó verið á sveimi innan Fram­sókn­ar­flokks­ins um lengri tíma, en sá sem tal­aði hvað mest fyrir þeim var fyrr­ver­andi þing­maður flokks­ins Frosti Sig­ur­jóns­son, sem var for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis í rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, þáver­andi for­manns Fram­sóknar.

Telur kominn tíma á að uppfæra hvítbók um fjármálakerfið

Steinunn Þóra steig aftur í pontu eftir að Lilja hafði svarað og sagð­ist vona að frekara sam­tal myndi eiga sér stað um þessi efni. Hún beindi annarri spurn­ingu að Lilju, þess efnis að ef til vill væri rétt að hverfa frá því að í fjár­lögum væri kveðið á um heim­ildir til þess að selja hluti rík­is­ins í Lands­bank­anum, en þær hafa verið til staðar í fjár­lögum und­an­farin ár.

Lilja sagði að á síð­asta kjör­tíma­bili hefði verið ráð­ist í mikla vinnu við svo­kall­aða hvít­bók um fjár­mála­kerfið. Þar hefðu línur verið lagðar um hvernig far­sælt væri að end­ur­skipu­leggja fjár­mála­kerfið eftir fjár­mála­hrunið árið 2008. Í hvít­bók­inni, sem kynnt var 2019, var lagt til að rík­is­sjóður myndi minnka hlut sinn í Lands­bank­anum með skrán­ingu hans á markað.

Lilja sagði að kom­inn væri tími á að „upp­færa þessa hvít­bók“, þar sem miklar breyt­ingar hefðu orðið á öllu umhverfi fjár­mála­stofn­ana og þá um leið að upp­færa þessa heim­ild um sölu á Lands­bank­anum, sem mætti vera skýr­ari.

„Það er alveg á hreinu í mínum huga að Lands­bank­inn verði áfram þjóð­ar­banki og við þurfum að huga að því í sam­ein­ingu hverjar áherslur hans verða,“ sagði Lilja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár