Morgunblaðið segir Guðlaug Þór vera að íhuga formannsframboð í Sjálfstæðisflokknum

Bjarni Bene­dikts­son gæti verið að fá mót­fram­boð sem for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en hann hefur setið frá árinu 2009. Fyrsti lands­fundur flokks­ins í tæp fimm ár fer fram í byrjun nóv­em­ber.

Guðlaugur Þór Þórðarson, nýr umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, nýr umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Í Morg­un­blað­inu í dag er því haldið fram að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis- orku- og lofts­lags­ráð­herra, sé að íhuga að bjóða sig fram til for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins gegn Bjarna Bene­dikts­syni, sem verið hefur for­maður frá árinu 2009 og hyggst sækj­ast eftir end­ur­kjöri. Í frétt­inni, sem skrifuð er af Andrési Magn­ús­syni rit­stjórn­ar­full­trúa Morg­un­blaðs­ins, segir þó að ekk­ert hafi feng­ist stað­fest um fram­boð Guðlaugs Þórs en að „und­an­farna daga hafa verið miklir orða­sveimir um hugs­an­legt fram­boð Guðlaugs, sem m.a. hefur verið tengt umdeildu vali á lands­fund­ar­full­trúum í stöku félagi.“ Blaðið hafði ekki náð tali af Guðlaugi Þór und­an­farna daga og hann því sjálfur ekki svarað neinu um meint fram­boð.

Guð­laugur Þór hefur setið á þingi frá árinu 2003, var heil­brigð­is­ráð­herra 2007 til 2009 og utan­rík­is­ráð­herra á síð­asta kjör­tíma­bili. Hann sat einnig í borg­ar­stjórn Reykja­víkur 1998 til 2006.

Innanflokksátök í aðdraganda kosninga

Guð­laugur Þór hefur lengi verið með sterka stöðu innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins þótt hann sé ekki hluti af for­ystu hans. Sú staða er hefur sér­stak­lega verið sterk í Reykja­vík og armur flokks­ins verið kenndur við hann. Sú staða hefur meðal ann­ars gert það að verkum að hann hefur haft til­kall til ráð­herra­emb­ættis þótt hann sé ekki tal­inn hluti af þeim armi flokks­ins sem fylgir Bjarna Bene­dikts­syni. Raunar er hann eini ráð­herr­ann sem það gerir ekki. Vara­for­mað­ur­inn Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir og Jón Gunn­ars­son styðja öll Bjarna, og njóta stuðn­ings hans.

[adspot]Sá armur hefur tek­ist á við annan, þann sem er hall­ari undir flokks­for­yst­una og þá stjórn­mála­menn sem henni fylgja, í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga, jafnt í borg­inni og fyrir þing­kosn­ingar. Fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2018 studdi armur Guðlaugs Þórs til dæmis Eyþór Arnalds í leið­toga­sætið og var með meiri­hluta í kjör­nefnd og full­trúa­ráði, sem rað­aði öðrum fram­bjóð­endum á lista. Sú fram­kvæmd öll fór afar öfugt ofan í ýmsa aðra innan flokks­ins.

Fyrir þing­kosn­ing­arnar 2021 fór fram próf­kjör í Reykja­vík þar sem Guð­laugur Þór tókst á við Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur um að vera odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í höf­uð­borg­inni. Hart var tek­ist á og miklum fjár­hæðum eytt í bar­átt­una í sam­an­burði við það sem aðrir stjórn­mála­menn eyddu. Guð­laugur Þór kost­aði alls til ell­efu millj­ónum króna og Áslaug Arna 8,7 millj­ónum króna.

Leik­ur­inn var end­ur­tek­inn í ár fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar. Þótt Hildur Björns­dóttir, odd­viti lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­inni sé úr þeim armi sem kennir sig við Áslaugu Örnu þá voru margir aðrir sem röð­uðu sér ofar­lega á lista úr armi Guðlaugs Þórs. Það kall­aði á miklar mála­miðl­anir í mál­efna­á­herslum fram­boðs­ins.

„Þeir töpuðu“

Guð­laugur Þór hafði á end­anum sigur og hélt í kjöl­farið eft­ir­minni­lega ræðu þegar hann ávarp­aði stuðn­ings­menn sína. Ræðan, sem átti ekki að vera opin­ber, var tekin upp og birt á Vísi.

Þar sagði Guð­laugur Þór meðal ann­ars að mark­visst hefði verið unnið gegn sér í próf­kjör­inu. „Þið skulið alveg átta ykkur á því að við höfum kannski haldið að þetta væri til­tölu­lega ein­falt að því leyt­inu til að sá sem hér stendur hefur mælst vin­sæl­asti ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, eini Sjálf­stæð­is­mað­ur­inn sem hefur unnið erf­ið­asta kjör­dæmi okkar, Reykja­vík norður, ekki einu sinni, heldur þrisvar.

Samt sem áður var lögð ein­hver gríð­ar­lega mikil áhersla á það að sjá til þess að sá sem hér stendur, og það er ekki bara ég, heldur þið, myndi ekki fá að vera áfram odd­viti. Þið sáuð til þess að allir þeir sem unnu gegn því, að þeir töp­uðu,“ sagði Guð­laugur Þór.

Á meðan að hann flutti ræð­una heyrð­ust stuðn­ings­menn kalla „los­aðu þig við Bjarna“ og kalla til Guðlaugs Þórs: „for­mað­ur­inn“.

Gæti tekið fram úr Davíð

Bjarni til­kynnti sjálfur um fram­boð sitt til for­manns á kom­andi lands­fundi í byrjun ágúst. Lands­fund­ur­inn, sem fer fram fyrstu helg­ina í nóv­em­ber, verður sá fyrsti sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn heldur síðan í mars 2018. Í sam­tali við RÚV í sumar sagði Bjarni að kjör­tíma­bilið væri rétt að hefj­ast og honum fynd­ist „ekk­ert annað eðli­legt en að ég haldi mínu striki og þess vegna í nóv­em­ber mun ég gefa kost á mér til að starfa áfram í þess­ari rík­is­stjórn og leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn.“

Bjarni tók við for­mennsku í Sjálf­stæð­is­flokknum í mars 2009, þá 39 ára gam­all. Bjarni sigr­aði þá hinn eldri og reynd­­ari Krist­ján Þór Júl­í­us­­son í for­­manns­slag á lands­fundi. Bjarni fékk 58 pró­­sent atkvæða en Krist­ján Þór 40,4 pró­­sent. Hann hefur því verið for­maður í rúm þrettán ár. Lands­fundir Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem kjósa for­ystu hans, eru vana­lega haldnir á tveggja ára fresti. Fundum sem fyr­ir­hug­aðir voru 2020 og 2021 var hins vegar frestað vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Verði Bjarni end­ur­kjörin for­mað­ur, og sitji hann fram að næsta lands­fundi þar á eftir sem fram fer 2024, mun hann hafa verið for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í 15 ár. Það þýðir að hann tekur þá fram úr Davíð Odds­syni, sem var for­maður í 14 og hálft ár og yrði í öðru sæti yfir þá for­menn sem setið hafa lengst. Metið á Ólafur Thors, sem var for­maður í 27 ár.

Sá ráð­herra sem þjóðin van­treystir mest

Í for­mann­s­tíð sinni hefur Bjarni leitt Sjálf­stæð­is­flokk­inn í gegnum fimm kosn­ing­ar. Honum hefur mest tek­ist að fá 29 pró­sent fylgi í kosn­ing­unum árið 2016, en minnst 23,7 pró­sent í fyrstu kosn­ing­unum 2009. Í kosn­ing­unum í fyrra­haust fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 24,4 pró­sent atkvæða sem er næst versta nið­ur­staða hans frá upp­hafi.

[adspot]Flokk­ur­inn, sem hefur verið við völd lengur en nokkur annar í Íslands­sög­unn­i, var í stjórn­ar­and­stöðu fyrsta kjör­tíma­bilið eftir að Bjarni tók við en komst aftur í stjórn eftir kosn­ing­arnar 2013. Síðan þá hefur hann hald­ist þar, í afar ólíkum stjórn­ar­mynstr­um. Bjarni hefur verið fjár­mála­ráð­herra frá 2013, að und­an­skildu nokk­urra mán­aða tíma­bili á árinu 2017 þegar hann varð for­sæt­is­ráð­herra í skamm­líf­ari rík­is­stjórn með Við­reisn og Bjartri fram­tíð. Eftir síð­ustu tvær kosn­ingar hefur Bjarni myndað rík­is­stjórn með Vinstri grænum og Fram­sókn­ar­flokki undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dótt­ur.

Í könnun sem Gallup gerði á trausti þjóð­ar­innar til ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar í apríl síð­ast­liðnum var Bjarni sá ráð­herra sem flestir báru lítið traust til, eða 70,7 pró­sent aðspurðra. Rúm 18 pró­­sent aðspurðra sögð­ust bera mikið traust til Bjarna, ögn fleiri en sögð­ust treysta Jóni Gunn­­ar­s­­syni dóms­­mála­ráð­herra, sem er sá ráð­herra sem fæstir báru traust til.

Könnunin var gerð í kjöl­far þess að mikil gagn­rýni spratt upp á sölu á hlutum íslenska rík­is­ins í Íslands­banka, en næstum níu af hverjum tíu lands­mönnum töldu að illa hafi verið staðið að söl­unni og að óeðli­legir við­skipta­hættir hafi verið við­hafðir. Ráðu­neyti Bjarna fer með eign­ar­hald á hlutum rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og hann tók ákvarð­anir um sölu­ferlið.

Bjarni fól Rík­is­end­ur­skoðun að gera stjórn­sýslu­út­tekt á sölu­ferl­inu og sú stofnun hefur nú lokið við gerð skýrslu um það. Umsagn­ar­frestur þeirra sem eru til umfjöll­unar í skýrsl­unni, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og Banka­sýsla rík­is­ins, rennur út í dag og verður henni í kjöl­farið skilað til Alþingis. Vænta má að skýrslan verði birt opin­ber­lega fyrir kom­andi lands­fund Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Fylgið komið aftur nálægt kjör­fylgi

Framan af þessu kjör­tíma­bili mæld­ist fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins ekki mik­ið í sögu­legu sam­hengi. Í apríl fór það í fyrsta sinn undir 20 pró­sent í könnun Gallup. Und­an­farið hefur það þó lag­ast og í síð­ustu birtu könnun Gallup mæld­ist það 24,1 pró­sent, eða rétt við kjör­fylgi. Í könnun sem Mask­ína gerði núna í októ­ber mæld­ist fylgið 22,8 pró­sent.

Í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum sem fóru fram í vor hélt Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stöðu sinni sem stærsti flokk­ur­inn á lands­vísu og fékk 110 full­trúa kjörna. Kjörnum full­­trúum Sjálf­­stæð­is­­flokks í 22 stærstu sveit­­ar­­fé­lögum lands­ins fækk­aði hins vegar um sjö frá fyrra kjör­­tíma­bili, eru nú 76 en voru 83 á síð­­asta kjör­­tíma­bili.

Honum mistókst meðal ann­ars að kom­ast til valda á ný í Reykja­vík, kjör­dæmi Guðlaugs Þórs, en flokk­ur­inn hefur verið utan stjórnar í höf­uð­borg­inni frá 1994 ef frá eru talin nokkur ár á kjör­tíma­bil­inu 2006-2010. Nið­ur­stað­an, 24,5 pró­sent, var minnsta hlut­falls­lega fylgi sem flokk­ur­inn hefur fengið í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um.

Þá fékk flokk­­ur­inn undir 50 pró­­sent atkvæða í höf­uð­víg­inu Garða­bæ, heimabæ Bjarna, þar sem hann fékk 62 pró­­sent 2018. Það er í fyrsta sinn sem Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn fær ekki meiri­hluta atkvæða þar síðan á átt­unda ára­tugnum þegar sveit­­ar­­fé­lagið hét Garða­hreppur og íbú­a­­fjöld­inn var fjórð­ungur af því sem hann er nú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landsfundur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár