Guðlaugur Þór: Höfum misst trúverðugleika – Bjarni: Höfum byggt upp stéttlaust samfélag

Ólíkar áherslur for­manns­fram­bjóð­end­anna tveggja í Sjálf­stæð­is­flokknum komu í ljós í ræðum þeirra á lands­fund­inum í Laug­ar­dals­höll í dag.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn hafa misst trú­verð­ug­leika hjá tekju­lægra fólki og að „óvinir“ flokks­ins séu ekki fólkið í vinstri flokk­unum. Bjarni Bene­dikts­son segir flokk­inn hafa byggt upp stétt­laust sam­fé­lag jafnra tæki­færa og að þjóðin hefði verið bólu­sett gegn vinstri stjórn. Ólíkar áherslur fram­bjóð­end­anna tveggja til for­manns í Sjálf­stæð­is­flokknum komu í ljós í ræðum þeirra á lands­fund­inum í Laug­ar­dals­höll í dag.

[adspot]

„Og ég sagði bara já.“

Þetta er það fyrsta sem heyrð­ist af ræðu Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, fram­bjóð­anda til for­manns í Sjálf­stæð­is­flokknum á streymi af lands­fund­inum í Laug­ar­dals­höll á síðu flokks­ins í dag. Þarna hefur tæknin lík­lega verið að stríða okkur, myndu ein­hverjir segja. En þeir sem heima sátu við skjái sína að fylgj­ast með fram­boðs­ræð­unni misstu af þessum sökum af fyrstu mín­út­unum.

En það eru lands­fund­ar­full­trúar sem kjósa. Og þeir að öllum lík­indum flestir í salnum og heyrðu hvert orð. Sá umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herr­ann Guðlaugs Þórs koma á hækjum vegna fót­brots inn á sviðið, með mynd af ósnort­inni íslenskri nátt­úru varpað upp á vegg­inn að baki sér. Og Bjarna Bene­dikts­son, for­mann flokks­ins, sem sæk­ist eftir end­ur­kjöri, að horfa á sig af fremsta bekk í salnum.

Vinstri fólk ekki óvinurinn

„Óvinir okkar eru ekki fólkið í vinstri flokk­unum,“ sagði Guð­laugur. Óvinir okkar eru ótti, öfund og ill­mælgi. Versti óvin­ur­inn núna er kannski van­trú á erindi flokks­ins.“

Hann sagði tvær ástæður fyrir því að hann byði sig fram til for­manns. „Í fyrsta lagi finnst mér fylgi flokks­ins óásætt­an­legt. Og í öðru lagi, og þetta teng­ist, finnst mér að við höfum tapað sam­tal­inu við hinn almenna flokks­mann og þjóð­ina í heild.“

Miðað við góða stöðu á ýmsum sviðum sam­fé­lags­ins sagð­ist hann velta fyrir sér hvers vegna staða flokks­ins væri ekki betri en hún er. „Hvað er það við ásýnd flokks­ins sem fælir kjós­endur og nýja fylg­is­menn frá?“

Hann sagði ljóst að það væri ekki sjálf­stæð­is­stefnan. Ekki heldur sá árangur sem flokk­ur­inn hefði náð, íslensku sam­fé­lagi til heilla. „Af hverju heldur áfram að fækka í hópi stoltra sjálf­stæð­is­manna?“

Hann sagð­ist trúi því að gildi sjálf­stæð­is­fólks ætti miklu meiri hljóm­grunn meðal þjóð­ar­innar en núver­andi fylgi flokks­ins segði til um.

Óbeit á elítu-stjórnun

Hann rifj­aði upp að þegar hann var að alast upp í Borg­ar­nesi hafi „Sam­bandið sál­uga var allt umlykj­andi í bæj­ar­fé­lag­inu“. Það hafi barið niður alla nýsköpun sem það taldi vera í sam­keppni við sig. „Því var stýrt af þröngum hópi fólks. Eins­konar elítu. Og á því stjórn­ar­fari hafði ég og hef eðl­is­læga óbeit.“

Hann sagði Sjálf­stæð­is­flokk­inn alltaf eiga að vera fjölda­hreyf­ingu. Hann megi „aldrei verða einka­klúbbur útval­inna“.

Fjölda­hreyf­ing snú­ist m.a. um að breiður hópur fólks starfi saman innan flokks­ins og að allir þjóð­fé­lags­hópar hafi þar rödd.

[adspot]

„Það er stað­reynd að þrátt fyrir að við búum sann­ar­lega í vel­meg­un­ar­ríki, þá þrífst fátækt enn hér á landi,“ sagði hann. „Og ég vil segja: Hún er blettur á íslensku sam­fé­lagi. Það er eitt­hvað sem við sjálf­stæð­is­fólk þurfum að beita okkur gegn með skýr­ari hætti. Þar kjarn­ast líka hið gam­al­kunna slag­orð: Stétt með stétt. Pen­ing­arnir sem sam­borg­ar­arnir trúa okkur fyrir eiga að renna þangað sem þörfin er mest. Þörfin er ekki mest hjá milli­stjórn­endum í skrif­stofu­störfum hjá hinu opin­bera heldur hjá skjól­stæð­ingum Trygg­inga­stofn­unar, öryrkjum og eldri borg­urum og hjá lág­launa­fólki.“

Hann sagði leið­toga verða að hafa sýn og til að fram­kvæma hana „verður hann að halda vel utan um fólkið sitt“.

En hvernig Sjálf­stæð­is­flokk vill Guð­laugur sjá?

„Ég vil sjá Sjálf­stæð­is­flokk þar sem er mikil nýliðun, þvert á kjör­dæmi og sveit­ar­fé­lög,“ sagði hann. „Ég vil sjá vald­dreifðan flokk en ekki mið­stýrðan.”

Hann sagð­ist líka vilja sjá Sjálf­stæð­is­flokk sem end­ur­heimtir gamla félaga sem hafi því miður margir horfið frá flokknum á und­an­förnum árum.

Flokkurinn hafi misst trúverðugleika

Guð­laugur Þór sagði að hörð átök væru nú í íslenskri verka­lýðs­hreyf­ingu. „Og mér finnst athygl­is­vert að þar kveður sér til hljóðs fólk sem talar niður stétta­sam­vinnu og telur hana af hinu illa. Ég hef hins vegar aldrei verið sam­færð­ari en nú að sam­vinna ólíkra stétta og hópa á grund­velli okkar lífs­gilda er það sem mun skila Íslandi fram á veg­inn og varða leið­ina til betri lífs­kjara. Staðan í flokknum okkar er hins vegar sú að fylgi tekju­lægri hópa við okkur er í sögu­legu lág­marki. Við höfum misst trú­verð­ug­leika hjá ákveðnum hópum sem sam­sama sig ekki ímynd flokks­ins. Þessu þarf að breyta strax.“

Í lok ræðu sinnar tal­aði Guð­laugur Þór beint til lands­fund­ar­full­trúa. „Þið getið valið að sætta ykkur við stöðu flokks­ins og valið óbreytt ástand. Ég vil verða for­maður því ég trúi því með öllum mætti að við getum end­ur­heimt fyrri styrk.“

Hann sagði Sjálf­stæð­is­flokk­inn of mik­il­vægan „til að leyfa sér litla drauma“.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins til þrettán ára, byrj­aði ræðu sína á að segja frá hug­mynd sem hann fékk í baði. Hann hafi látið renna í bað, ekki þurft að hafa áhyggjur af því hvað það kost­aði, eins og margir íbúar á meg­in­landi Evrópu. „Þá fékk ég þessa hug­mynd að við ættum að geta þétt rað­irnar og ráð­ast í það verk­efni að safna þing­flokknum saman, sem ekki hafði verið gert áður, og farið út um allt land.“ Þannig varð hug­myndin að „hring­ferð­inni“ til. Hún var reyndar ekki farin í fyrra vegna heims­far­ald­urs­ins.

„Ég hef alltaf viljað hafa það þannig að við stæðum ekki eins og ég geri hér, yfir ykkur. við eigum ekki að stadda yfir fólk­inu og segja hvernig sam­fé­lagið eigið að vera.“ Þess vegna hafi hring­ferðin verið farin.

„Þetta er ein af betri hug­mynd­unum sem ég hef fengið í baði,“ botn­aði Bjarni þessa dæmisögu um það hvernig hann ræðir við gras­rót­ina sem Guðlaugi Þór hefur orðið tíð­rætt um að þurfi nauð­syn­lega að gera meira af.

Í sókn

Bjarni sagði að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri í sókn. Að í flokknum væri end­ur­nýjum og að nýtt fólk væri að drag­ast að honum. „Ef við bara treystum á fólk og tökum góðar ákvarð­anir mun sam­fé­lag­inu öllu miða vel áfram.“

Sama verk­lag­inu þurfi að beita varð­andi fylgi flokks­ins. „Smám saman munu hlut­irnir fara að ganga með okkur. Ég er algjör­lega sann­færður um það.“

Bjarni sagð­ist geta greint frá því, „í fullri ein­lægni“ að það væri ekki alltaf auð­velt að standa með storm­inn í fangið. „En verðum alltaf að standa í lapp­irnar. Alltaf að mæta til leiks.“ Hann sagð­ist ekki vera að biðja um að þetta væri auð­velt, alls ekki. „Við viljum vera fyr­ir­myndir í sam­fé­lag­inu. Sýna hug­rekki þegar á móti blæs.“

[adspot]

Ef það er ein­hver flokkur sem hefur „þetta erfða­efni í sér, að standa í lapp­irnar, og láta ekki beygja sig þá“ sé það Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

Aldrei mætti gef­ast upp og aldrei mætti leita að auð­veldu leið­inni. „En þetta er ekki tómur tára­dalur. Þetta eru for­rétt­indi, að fá að leiða stjórn­mála­afl, langstærsta flokk­inn í land­inu.“

Þroski, þekking og reynsla

Hann sagði for­manns­starfið gef­andi, ögrandi og „ofboðs­lega þrosk­andi“.

Hann stæði fyrir framan lands­fund í dag með þá þekk­ingu sem hann hefði, en fyrst og fremst með þá reynslu sem hann hefði aflað sér, boð­inn og búinn til að vinna áfram fyrir flokk­inn, fyrir landið. „Að vera for­maður í Sjálf­stæð­is­flokknum er ekki aðeins ein­hvers konar tæki­færi lífs­ins til að hafa áhrif á sam­fé­lagið. Það er bara alveg ein­stakt að starfa fyrir ykkur, fyrir sjálf­stæð­is­fólk.“

[links]Næst var komið að því að taka aðra flokka fyrir. Bjarni tal­aði um öfund þeirra, að margir þeirra héldu að það væri hægt að „ljós­rita“ Sjálf­stæð­is­flokk­inn og búa til alveg eins flokk. „En það er bara alls ekki hægt.“

Hann sagði sjálf­stæð­is­menn hafa látið aðra flokka um opin­ber átök, „hama­gang og vesen“ – flokka sem geti „varla séð hurð án þess að skella henni“.

Í því sam­hengi hóf hann að skjóta á Sam­fylk­ing­una. „Ég eig­in­lega vor­kenni sam­fylk­ing­ar­fólki, í alvör­unni. Það hlýtur að vera alveg ömur­leg reynsla að dvelj­ast alla daga í ein­hvers konar póli­tískum berg­máls­helli. [...] Að vera hrædd við eigin póli­tíska skugga allan dag­inn. Skelf­ingu lostin.“

Erfitt að taka stjórnarandstöðunni alvarlega

Hann tal­aði áfram um það sem hann kall­aði „und­ar­leg­heit“ í fari fólks í stjórn­ar­and­stöð­unni. Að stundum vissi hann ekki hvort hann ætti að hlæja eða gráta. Þarna hafði honum orðið hugsað til Björns Levís Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata. Mannsins sem hefði sent fjölda fyr­ir­spurna á ráðu­neytin og eytt þannig fjár­munum skatt­greið­enda. Meðal ann­ars spurt hvað klukkan væri.

„Ég er lík­lega að gera honum allt of hátt undir höfði hérna,“ sagði Bjarni. „Hann spurði líka hvað er langt frá þing­hús­inu til tungls­ins.“

Við skulum passa okkur, sagði hann svo. „Þótt að það sé erfitt að taka þessu fólki alvar­lega, þá er það þannig að þessu fólki er fúlasta alvara með því að vilja taka völdin í land­inu. Og það þurfum við að koma í veg fyrir.“

Fjölmiðlarnir

Bjarni sagð­ist iðu­lega finna að and­stæð­ingar hans biðu eftir að hann hætti. „Stundum finnst mér meira að segja heilu fjöl­miðl­arnir gangi út á það, svei mér þá.“ Nefndi hann Frétta­blaðið sér­stak­lega sem hann sagði í áróðri fyrir Evr­ópu­sam­bandið. Menn þyrftu að átta sig á því.

„Þjóðin próf­aði vinstri stjórn,“ hélt Bjarni áfram, en að miðað við end­ingu bólu­efna væri þjóðin ennþá bólu­sett fyrir slíkri rík­is­stjórn.

Hann fór hins vegar fögrum orðum um rík­is­stjórn­ar­sam­starfið við Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokk­inn og sagði það byggj­ast á trausti.

„Við höfum þurft að treysta á smá­flokka,“ rifj­aði hann upp og átti þar við Bjarta fram­tíð sem sleit sam­starf­inu í kjöl­far upp­ljóstrana um upp­reist æru kyn­ferð­is­brota­manns. Bjarni sagði smá­flokka „hrökkl­ast frá um leið og þessi frægi vindur kemur aðeins í fangið.“

Góð hugmynd að fá sér hund

„Það er bara þannig að þeir sem fara inn á vett­vang stjórn­mál­anna og nenna ekki að standa þar í báðar lappir þegar það gefur aðeins á bát­inn, þeir eiga auð­vitað ekk­ert að vera þar. Þeir eiga að fara í eitt­hvað allt annað eða eins og ég sagði um dag­inn: Það er líka góð hug­mynd að fá sér hund. Hann er alltaf þakk­látur.“

Auðvitað getum við gert margt í innra flokks­starf­inu, við­ur­kenndi Bjarni. Að finna þyrfti leiðir til að ganga í takt við sam­fé­lagið. Eiga heið­ar­legt sam­tal og ekki forð­ast átök.

„Trú á ein­stak­ling­inn mun varða leið­ina,“ sagði hann. „Við höfum byggt hér upp stétt­laust sam­fé­lag. Þar sem jöfn­uður er meiri en í nokkru öðru ríki.“

[adspot]

Og hann hélt áfram á þessum jafn­að­ar­nótum:

„Við viljum ekki að börnin okkar fari út í dag­inn í sitt hvorn skól­ann, allt eftir því hver efni for­eldr­anna eru.

Við viljum ekki að hér verði til sam­fé­lag þar sem þeir sem eru veikir þurfi að ótt­ast það að hafa verra aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu heldur en næsti maður eða fólkið í næsta húsi.

Við leggjum alla áherslu á að hér hafi allir jöfn tæki­færi. Að við notum stóru opin­beru kerfin okkar til að tryggja að eng­inn verði skil­inn út undan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landsfundur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár