Segir óbilgirnis- og harðlínustefnu hafa verið innleidda eftir að Halldór Benjamín tók við SA

Formaður Eflingar segir atvinnu­rek­endur hafa verið hrifna af bar­áttul­atri verka­lýðs­for­ystu. Í Icelandair-mál­inu hafi ASÍ ekki bara leyst ger­endur undan grófu ásettn­ings­broti heldur opnað á að fyr­ir­tækið fengi umbun í formi fjár­fest­ingar úr líf­eyr­is­sjóðum.

Halldór Benjamín Þorbergsson og Sólveig Anna Jónsdóttir.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son og Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Samsett

„Eitt af því sem gerir ást­fóstur Alþýðu­sam­bands­ins við Salek-hug­mynda­fræð­ina enn und­ar­legra en ella er að sam­tök atvinnu­rek­enda hafa æ minni áhuga á slíku sam­starfi. Í tíð Gylfa Arn­björns­sonar var mikil heið­ríkja í sam­skiptum atvinnu­rek­enda við hreyf­ing­una, en atvinnu­rek­endur voru auð­vitað hrifnir af bar­áttul­atri verka­lýðs­for­ystu og hug­mynda­fræði um að stétta­bar­átta borg­aði sig ekki. Eftir að Halldór Benjamín Þor­bergs­son tók við sem fram­kvæmda­stjóri SA árið 2017 hefur þar hins vegar verið inn­leidd mikil óbil­girnis- og harð­línu­stefna þar sem öll gömul heið­urs­manna­sam­komu­lög eru virt að vettugi, og hvert tæki­færið er nýtt til að láta reyna á rétt­indi sem áður var sátt um.“

Þetta segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, í annarri grein af fjórum um átökin innan Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) sem hún birtir um þessar mundir á Kjarn­anum. Sá Halldór Benjamín sem hún nefnir er Þor­bergs­son og hefur verið fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA) frá því síðla árs 2016.

Símtal frá Boga Nils í Drífu breytti stefnunni

Að sögn Sól­veigar Onnu er skýrasta dæmið um þessa stefnu, og þróun, það þegar Icelandair Group, fyrr­ver­andi vinnu­staður Halldórs Benja­míns, ákvað að segja flug­freyjum upp störfum í miðri kjara­deilu sum­arið 2020 með hætti sem hún segir að hafi gengið í ber­högg við ákvæði laga um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur. „Til­gangur þess­arar aðgerðar, sem SA studdi opin­ber­lega, var aug­ljós­lega ekki bara sá að kné­setja flug­freyjur heldur að opna á nýja laga­fram­kvæmd í kjara­deilum sem tæki gildi yfir allan vinnu­mark­að­inn. Þar er auð­vitað í bak­grunn­inum sár gremja SA yfir árangusríkum verk­falls­að­gerðum Efl­ing­ar­fé­laga, nokkuð sem gengur gegn öllum þeim hug­myndum um stétta­sam­vinnu og afnám verk­falls­að­gerða sem höfðu ráðið ára­tugum saman og atvinnu­rek­endur höfðu skilj­an­lega bundið miklar vonir við.“

[adspot]Mið­stjórn ASÍ ákvað að sækja málið af fullum þunga fyrir Félags­dómi og þeirri afstöðu var fylgt eftir með yfir­lýs­ingum frá Drífu Snædal, þáver­andi for­seta ASÍ, um að ekk­ert yrði slegið af grunn­prinsippum þrátt fyrir að Icelandair glímdi við neyð­ar­á­stand vegna kór­ónu­veiru­krepp­unnar.

Sólveig Anna segir að þessi afstaða Drífu hafi breyst tveimur vikum síður. „Í stað þess að fylgja máls­sókn­inni eftir, og fá stað­fest­ingu á því að upp­sagn­irnar væri ólög­legar, ákvað ASÍ skyndi­lega í sam­ráði við Magnús Norðdahl lög­fræð­ing sam­bands­ins að ganga til við­ræðna við SA og Icelandair um að fara allt aðra leið. Þar var svo sann­ar­lega „slegið af grunn­prinsippum“. Var þessi stefnu­breyt­ing gerð í kjöl­far þess að Bogi Nils Bogason for­stjóri Icelandair hringdi í Drífu Snædal. Bogi Nils fékk sínu fram­gengt hratt og örugg­lega og skil­aði það sér í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu SA, ASÍ, Flug­freyju­fé­lags­ins og Icelandair sem birt var 17. sept­em­ber 2020.“

Umbunað fyrir gróft ásetningsbrot

Með þess­ari yfir­lýs­ingu hafi ASÍ leyst Icelandair Group og SA alfarið undan hótun um mál­sókn fyrir Félags­dómi. „Í stað­inn lýstu Icelandair og SA því yfir að þau „við­brögð“ að segja upp flug­freyjum í miðri kjara­deilu væru „hörmuð“ þar sem þau væru „ekki í sam­ræmi við þær góðu sam­skipta­reglur sem aðilar vinnu­mark­að­ar­ins vilja við­hafa“. Með þess­ari yfir­lýs­ingu leyfði Alþýðu­sam­bandið brot­legu íslensku fyr­ir­tæki í banda­lagi við lands­sam­tök atvinnu­rek­enda að upp­nefna mik­il­væg­ustu laga­legu rétt­ar­vernd vinn­andi fólks í land­inu, lög sem sam­þykkt voru af Alþingi, „sam­skipta­reglur“.“

[links]Þá hafi hinir brot­legu fengið að ganga frá mál­inu án afleið­inga. „Reyndar er það ekki rétt að segja að málið hafi verið afleið­inga­laust, því Icelandair stóð á þessum tíma í mjög umtöl­uðu hluta­fjár­út­boði. Til­gangur fyr­ir­tæk­is­ins með að sækj­ast eftir þess­ari yfir­lýs­ingu var aug­ljós­lega sá að ryðja braut fyrir hiks­ta­lausa þátt­töku líf­eyr­is­sjóða í því útboði, sem einmitt varð raunin. Þannig má segja að Alþýðu­sam­bandið hafi tryggt afleið­ingar fyrir hinn brot­lega í mál­inu - en þó ekki refs­ingu heldur umbun.“

Því hafi ASÍ ekki ein­ungis leyst ger­endur undan öllum afleið­ingum af einu gróf­asta ásetn­ings­broti gegn íslenskum vinnu­rétti sem sést hefur á Íslandi ára­tugum saman heldur opn­aði sam­bandið dyrnar fyrir það að fyr­ir­tækið fengi sér­staka umbun með ríku­legum fjár­fest­ingum úr eft­ir­launa­sjóðum launa­fólks. „Efling hélt uppi gagn­rýnum spurn­ingum um þessa ákvörðun en við þeim feng­ust aldrei nein mál­efna­leg svör. Úr varð að stjórn Eflingar sam­þykki gagn­rýni og birti á vef félags­ins. Við það sat.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár