Laun ráðherra hafa hækkað um næstum eina milljón á mánuði frá því fyrir sex árum

Laun þing­manna hafa hækkað um næstum 90 pró­sent frá fyrri hluta árs 2016. Laun ráð­herra hafa hækkað um 340 þús­und krónum meira en laun þing­manna. Hækk­an­irnar eru í engu sam­ræmi við almenna launa­þróun.

Ríkisstjórn Íslands.
Rík­is­stjórn Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Í byrjun sum­ars 2016 voru grunn­laun þing­manna á Íslandi 712 þús­und krónur á mán­uði. Nú, sex árum síð­ar, eru þau 1.346 þús­und krónur á mán­uði. Þau hafa því hækkað um 634 þús­und krónur á tíma­bil­inu, eða um 89 pró­sent á tíma­bil­inu.

Þetta má lesa út úr launa­töflu yfir laun þjóð­kjör­inna full­trúa og æðstu emb­ætt­is­manna þjóð­ar­innar sem birt var í gær þegar laun þeirra voru hækkuð um 4,7 pró­sent.

Grunn­laun ráð­herra hafa hækkað enn meira í krónum talið. Þeir voru með 1.257 þús­und krónur í laun snemm­sum­ars 2016 en eru nú 2.231 þús­und krónur á mán­uði og hafa hækkað um 974 þús­und krónur á tíma­bil­inu.

[adspot]For­sæt­is­ráð­herra var með 1.391 þús­und krónur í laun á mán­uði árið 2016 en er nú með 2.470 þús­und krónur. Mán­að­ar­launin hafa því hækkað um 1.079 þús­und krónur á sex árum. Katrín Jak­obs­dóttir hefur gegnt emb­ætt­inu frá því síðla árs 2017, eða þorra þess tíma sem um ræðir.

Hækka langt umfram regluleg laun í krónum talið

Miðgildi reglu­legra heild­ar­launa fólks á Íslands, sam­kvæmt tölum frá Hag­stofu Íslands, var 492 þús­und krónur í árs­lok 2015. Í lok síð­asta árs voru þau 696 þús­und krónur og höfðu því hækkað um 204 þús­und krón­ur, eða 41 pró­sent á tíma­bil­inu. Ef skoðað er með­al­tal heild­ar­launa þá hefur það hækkað um 39 pró­sent, eða 216 þús­und krónur, á sama tíma­bili.

[links]Laun þing­manna hafa því hækkað um 430 þús­und krónur umfram þær krónur sem mið­gildi reglu­legra heild­ar­launa lands­manna hefur hækkað á tíma­bil­inu og um 416 þús­und krónur umfram með­al­tal reglu­legra heild­ar­launa.

Ef horft er á laun ráð­herra þá hafa þau hækkað um 770 þús­und krónur umfram mið­gildi heild­ar­launa í land­inu og 758 þús­und krónur umfram með­al­tal þeirra.

For­sæt­is­ráð­herra hefur svo hækkað um 875 þús­und krónur á mán­uði umfram það sem mið­gildi reglu­legra heild­ar­launa hefur hækkað og 863 þús­und krónur umfram með­al­tals­launin. Hækkun á launum ráð­herra á sex ára tíma­bili er því meiri en sem nemur heild­ar­launum með­al­launa­manns á mán­uði.

Fá launa­hækkun í takti við þróun launa­vísi­tölu

Lögin sem ákveða laun þessa hóps voru sett árið 2019, í kjöl­far þess að Kjara­ráð var lagt nið­ur. Það ráð ákvað í októ­ber 2016 að hækka laun for­­­­­­­­­seta Íslands, þing­far­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­kaup alþing­is­­­­­­­­­manna og laun ráð­herra gríð­­ar­­lega. Laun þing­­­­­­­­­­manna hækk­­­­­­­­­­uðu hlut­­­­­­­­­­falls­­­­­­­­­­lega mest við ákvörðun Kjara­ráðs, eða um 44,3 pró­­­­­­­­­­sent.

Þessi gríð­ar­lega hækkun var harð­lega gagn­rýnd víða og varð til þess að ákveðið var að breyta því hvernig laun þjóð­kjör­inna full­trúa og æðstu emb­ætt­is­manna yrðu reikn­uð. Það var gert með lögum árið 2019 og frá þeim tíma hækka þau í takti við þróun launa­vísi­tölu.

Í síð­ustu kjara­samn­ing­um, svoköll­uðum lífs­kjara­samn­ing­um, var hins vegar samið um krónu­tölu­hækk­anir fyrir flestar stétt­ir.

Flestir samn­ingar á vinnu­mark­aði eru lausir síðar á þessu ári og því stór kjara­samn­inga­lota framundan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár