Ráðherrar, þingmenn og forsetinn á meðal þeirra sem fengu 105 milljónir í ofgreidd laun

Þjóð­kjörnir full­trúar og ýmsir hátt­settir emb­ætt­is­menn sem færðir voru undan Kjara­ráði fyrir nokkrum árum hafa fengið meira borgað úr rík­is­sjóði en þeir áttu að fá. Um er að ræða hóp sem er með miklu hærri laun en meðal Íslend­ing­ur­inn.

Á meðal þeirra sem fengu ofgreidd laun eru ráðherrar í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.
Á meðal þeirra sem fengu ofgreidd laun eru ráð­herrar í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. Mynd: Bára Huld Beck

Ráð­herrar, alþing­is­menn, for­seti Íslands, dóm­arar, sak­sókn­arar, lög­reglu­stjórnar, ráðu­neyt­is­stjórar, seðla­banka­stjóri og vara­seðla­banka­stjórar ásamt rík­is­sátta­semj­ara fengu alls 105 millj­ónir króna í ofgreidd laun frá árinu 2019. Þetta kemur fram á vef Fjár­sýslu rík­is­ins. Þar segir að 260 ein­stak­lingar, þar af 215 sem enn eru í starfi, verði krafðir um end­ur­greiðslu á ofgreiðsl­unni.

Þessi mis­tök eiga rætur sínar að rekja aftur til þess þegar Kjararáð var lagt niður. Það ráð ákvað í októ­ber 2016 að hækka laun for­­­­­­­seta Íslands, þing­far­­­­­­­ar­­­­­­­kaup alþing­is­­­­­­­manna og laun ráð­herra gríð­ar­lega. Laun þing­­­­­­­­manna hækk­­­­­­­­uðu hlut­­­­­­­­falls­­­­­­­­lega mest við ákvörðun Kjara­ráðs, eða um 44,3 pró­­­­­­­­sent.

Eftir mikla sam­fé­lags­lega gagn­rýni var sam­­­þykkt á Alþingi í sum­arið 2018 að leggja kjara­ráð nið­ur. Þess í stað átti að hækka laun í æðstu emb­ætt­is­manna og kjör­inna full­trúa í takti við þróun launa­vísi­tölu. Lög þess efnis voru sam­þykkt 2019 og launin hafa verið greidd sam­kvæmt þeim síðan þá.

Kjarninn greindi frá því í ágúst í fyrra að á fimm árum hefðu grunn­laun þing­manna hækkað um rúm­lega 80 pró­sent, í 1.285.411 krónur á mán­uði.

[adspot]Grunn­laun ráð­herra hækkað enn meira í krónum talið. Þeir voru með 1.257.425 krónur í laun snemm­sum­ars 2016 en 2.131.788 krónur á mán­uði í ágúst í fyrra. Laun þeirra höfðu því hækkað um 874.363 krónur á tíma­bil­inu, eða um 70 pró­sent.

Til við­bótar við ofan­greint geta þing­menn fengið ýmis­konar við­bót­ar­greiðslur vegna kostn­aðar sem fellur til vegna starfs­ins, eða auka­starfa á borð við nefnd­ar­for­mennsku.

Biðst afsökunar og rukkar upphæðina til baka

Í til­kynn­ingu á vef Fjár­sýslu rík­is­ins er greint frá þeim mis­tökum sem gerð hafa verið við útreikn­ingi launa þjóð­kjör­inna manna, ráð­herra og til­tek­inna emb­ætt­is­manna rík­is­ins, með þeim afleið­ingum 260 manns hafi fengið veru­lega ofgreidd laun. Sam­an­lögð upp­hæð þeirra er 105 millj­ónir króna.

[links]Fjár­sýsla rík­is­ins upp­færir krónu­tölu­fjár­hæð launa þessa hóps ár hvert til sam­ræmis við tölur Hag­stof­unnar í sam­ráði við kjara- og mannauðs­sýslu rík­is­ins og launin eiga að taka breyt­ingum til hækk­unar 1. júlí. „Í ljós hefur komið að allt frá gild­is­töku lag­anna hefur við­mið við fram­kvæmd­ina verið launa­vísi­tala rík­is­starfs­manna, en ekki það við­mið sem til­greint er í lög­unum, þ.e. með­al­tals­breyt­ing reglu­legra launa rík­is­starfs­manna milli ára. Við fram­kvæmd hækk­unar launa þessa hóps hefur því ekki verið not­ast við lög­bundið við­mið frá gild­is­töku lag­anna og laun hækkað meira en þau áttu að gera. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur tekið ákvörðun um leið­rétt­ingu vegna þessa og að farið verði fram á að við­kom­andi end­ur­greiði ofgreidd laun frá gild­is­töku lag­anna.“

Heild­ar­fjöldi ein­stak­linga sem hafa fengið laun sem leið­rétt verða er um 260 og hafa þeir allir fengið bréf um málið. Greiðslan verður ýmist dregin af launum eða kröfur stofn­aðar í jöfnum hlutum í tólf mán­uði.

Í til­kynn­ing­unni segir: „Eru hlut­að­eig­andi beðnir vel­virð­ingar á því óhag­ræði sem þetta kann að hafa í för með sér og mun Fjár­sýslan gera það sem hægt er til að aðstoða hvern og einn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár