Mánaðarlaun þingmanna og ráðherra hækkuðu um tugi þúsunda í dag

For­sæt­is­ráð­herra fær nú 110 þús­und krónum meira í laun en hún fékk í síð­asta mán­uði, eða alls tæp­lega 2,5 millj­ónir króna á mán­uði. Þing­fara­kaupið er komið í 1.346 þús­und á mán­uði.

Það gefur vel í aðra hönd að vera ráðherra í ríkisstjórn Íslands.
Það gefur vel í aðra hönd að vera ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Laun kjör­inna full­trúa voru hækkuð í dag. Þing­fara­kaupið hækk­aði um 4,7 pró­sent í dag og er nú 1.346 þús­und krónur á mán­uði. Alls hækk­uðu grunn­laun kjör­inna þing­manna um 60.171 krónur.

Til við­bótar við ofan­greint geta þing­menn fengið ýmis­konar við­bót­ar­greiðslur vegna kostn­aðar sem fellur til vegna starfs­ins, eða auka­starfa á borð við nefnd­ar­for­mennsku.

Laun ráð­herra hækk­uðu um sama hlut­fall og þing­manna en mun meira í krónum talið, eða um 99.791 krónur á mán­uði. Ráð­herr­arnir eru nú með 2.232 þús­und krónur í mán­að­ar­laun.

Laun for­sæt­is­ráð­herra eru sam­an­sett af grunn­launum, sem taka mið af þing­fara­kaupi, en ofan á það leggst álags­greiðsla. Alls eru laun Katrínar Jak­obs­dóttur 2.470 þús­und krónur á mán­uði frá deg­inum í dag og hækka um 110 þús­und krónur milli ára.

Þetta má lesa út úr nýbirtum launa­töflum um laun æðstu ráða­manna þjóð­ar­innar sem birtar voru á vef stjórn­ar­ráðs­ins í dag, en laun þeirra taka breyt­ingum 1. júlí ár hvert.

Gefur vel að vera forseti og stýra ráðuneyti eða seðlabanka

Ráðu­neyt­is­stjórar eru ekki miklir eft­ir­bátar yfir­manna sinna þegar kemur að launum. Ráðu­neyt­is­stjór­inn í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu fær 2.221 þús­und krónur á mán­uði í heild­ar­laun, sem eru sam­an­sett af grunn­launum og fastri álags- og yfir­vinnu­greiðslu, og kollegar hennar í hinum ráðu­neyt­unum fá 2.108 þús­und krónur á mán­uði fyrir skatta.

[adspot]Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, fékk líka launa­hækkun í dag og þiggur nú 3.647.465 krónur á mán­uði fyrir störf sín. Sömu sögu er að segja um Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóra sem fær nú 2.366 þús­und krónur á mán­uði.

Aðrir hátt­settir emb­ætt­is­menn sem fengu launa­hækkun í dag eru, dóm­arar, sak­sókn­arar, lög­reglu­stjórar, vara­seðla­banka­stjórar og rík­is­sátta­semj­ari.

Fengu ofgreidd laun upp á 105 milljónir króna

Líkt og Kjarninn greindi frá fyrr í dag mun þessi hópur þó ekki fá launin sín að öllu leyti næstu mán­uði. Ástæðan er sú að frá 2019 hafa þau verið ofgreidd um sam­tals 105 millj­ónir króna vegna mis­taka hjá fjár­sýslu rík­is­ins við útreikn­ing þeirra.

Mistökin gerðu það að verkum að alls 260 þjóð­kjörnir full­trúar og hátt­settir emb­ætt­is­menn, þar af 215 sem eru enn að störfum, fengu of mikið borgað.

Þau upp­götv­uð­ust þegar Fjár­sýslan var að upp­færa krónu­tölu­fjár­hæð launa þeirra sem falla undir lög um laun þessa hóps frá árið 2019, til sam­ræmis við tölur Hag­stof­unnar í sam­ráði við kjara- og mannauðs­sýslu rík­is­ins.

Í til­kynn­ingu á vef stofn­un­ar­innar er beðist afsök­unar á þessu og sagt að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hafi tekið ákvörðun um að ofgreiddu launin verði end­ur­greidd. „Algengt er að end­ur­greiðslu­fjár­hæð svari til um þriðj­ungs einna mán­að­ar­launa hjá þeim sem þáðu laun yfir allt tíma­bilið. End­ur­greiðslan fer fram í áföngum á 12 mán­aða tíma­bili.“

Samkvæmt þessu geta þing­menn átt von á því að þurfa að greiða rúm­lega 400 þús­und krónur til baka vegna ofgreiddra launa og for­sæt­is­ráð­herra rúm­lega 800 þús­und krónur.

Fá launahækkun í takti við þróun launavísitölu

Lögin sem ákveða laun þessa hóps voru sett árið 2019, í kjöl­far þess að Kjararáð var lagt niður. Það ráð ákvað í októ­ber 2016 að hækka laun for­­­­­­­­seta Íslands, þing­far­­­­­­­­ar­­­­­­­­kaup alþing­is­­­­­­­­manna og laun ráð­herra gríð­ar­lega. Laun þing­­­­­­­­­manna hækk­­­­­­­­­uðu hlut­­­­­­­­­falls­­­­­­­­­lega mest við ákvörðun Kjara­ráðs, eða um 44,3 pró­­­­­­­­­sent.

[links]Þessi gríð­ar­lega hækkun var harð­lega gagn­rýnd víða og varð til þess að ákveðið var að breyta því hvernig laun þjóð­kjör­inna full­trúa og æðstu emb­ætt­is­manna yrðu reiknuð. Það var gert með lögum árið 2019 og frá þeim tíma hækka þau í takti við þróun launa­vísi­tölu. Í síð­ustu kjara­samn­ingum, svoköll­uðum lífs­kjara­samn­ingum, var hins vegar samið um krónu­tölu­hækk­anir fyrir flestar stéttir.

Í ljósi þess að laun þessa hóps eru mun hærri en með­al­laun í þjóð­fé­lag­inu, en mið­gildi reglu­legra heild­ar­launa í fyrra var 696 þús­und krónur. Það þýðir að helm­ingur launa­manna var með laun undir þeirri tölu. Ef sá sem var með 696 þús­und krónur í laun hækk­aði um sama hlut­fall og þjóð­kjörnir full­trúar og æðstu emb­ætt­is­menn gerði í dag myndi við­kom­andi fá um 33 þús­und krónur til við­bótar í laun fyrir skatt, eða 77 þús­und krónum minna en laun for­sæt­is­ráð­herra hækk­uðu um í byrjun yfir­stand­andi mán­aðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár