Bankarnir hafa ekki lánað meira í einum mánuði frá því fyrir hrun

Bygg­inga­geir­inn á Íslandi hefur ekki fengið meira lánað frá bönkum innan mán­aðar en í maí síð­ast­liðnum, sam­kvæmt hag­tölum Seðla­bank­ans. Útlán til fyr­ir­tækja hafa aldrei verið meiri þrátt fyrir að lánsfé sé sífellt að verða dýr­ara.

Gríðarlegur uppgangur er í byggingariðnaði um þessar mundir. Hann endurspeglast í stórauknum útlánum til geirans.
Gríð­ar­legur upp­gangur er í bygg­ing­ar­iðn­aði um þessar mundir. Hann end­ur­spegl­ast í stór­auknum útlánum til geirans. Mynd: Bára Huld Beck

Ný útlán til fyr­ir­tækja og heim­ila lands­ins, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðslum, banka­kerf­is­ins voru 68,1 millj­arðar króna í maí­mán­uði. Það eru mestu nettó útlán banka hér­lendis innan mán­aðar sem birst hafa í hag­tölum Seðla­banka Íslands, sem ná aftur til byrjun árs 2013, en nýjar hag­tölur fyrir banka­kerfið voru birtar í morgun.

Miðað við stöðu mála í hag­kerf­inu á árunum 2009 og til loka árs 2012, þegar nýju bank­arnir sem voru end­ur­reistir á grunni þeirra sem féllu haustið 2008 voru að hefja starf­semi sína, er úti­lokað að þeir hafi lánað meira innan mán­aðar á því tíma­bili.

Þessi þróun er að eiga sér stað á sama tíma og kostn­aður við lán­tökur hefur stór­auk­ist, sam­hliða því að stýri­vextir hafa hækkað úr 0,75 í 4,75 pró­sentu­stig á rúmu ári. Á móti kemur að verð­bólga er í hæstu hæðum, alls 7,6 pró­sent, og raun­vextir á óverð­tryggðum lánum því í flestum til­vikum nei­kvæðir.

Mest eru útlánin að aukast til atvinnu­lífs­ins. Í maí­mán­uði lán­uðu kerf­is­lega mik­il­vægu bank­arnir þrír: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki sam­tals 35,4 millj­arða króna til þess að frá­dregnum upp- og umfram­greiðslum. Það eru næst­mestu ný útlán til atvinnu­fyr­ir­tækja sem skrá­sett hafa verið í hag­tölum Seðla­bank­ans innan mán­aðar, en töl­urnar ná aftur til byrjun árs 2013. Eina skiptið sem bank­arnir þrír dældu út fleiri krónum í ný útlán var í ágúst 2018, þegar þeir lán­uðu 37,5 millj­arða króna til fyr­ir­tækja.

Frá ára­mótum hafa atvinnu­fyr­ir­tæki fengið 115,9 millj­arða króna í ný útlán. Til sam­an­burðar lán­uðu bank­arnir þrír rúm­lega 107 millj­arða króna til fyr­ir­tækja í nýjum útlánum frá maí 2019 og út síð­asta ár, eða á tveimur og hálfu ári.

Heimilin í land­inu fengu 21,5 millj­arð króna að láni frá bönkum í síð­asta mán­uði. ÞAr af voru 20,2 millj­arðar króna teknir í óverð­tryggðum lánum en ein­ungis 734 millj­ónir króna nettó í verð­tryggðum lánum. Þetta eru þó mestu útlán innan mán­aðar til heim­ila lands­ins það sem af er ári.

Metmánuður hjá fyrirtækjum í byggingarstarfsemi

Mesta útlána­aukn­ingin í maí var til félaga sem sinna þjón­ustu, sem fengu 25,4 millj­arða króna í ný útlán. Þar af fóru þó 16,6 millj­arðar króna til fast­eigna­fé­laga sem kaupa og reka fast­eignir.

[adspot]Útlán til fyr­ir­tækja í bygg­ing­­ar­­starf­­semi og mann­­virkja­­gerð hafa líka tekið nokkuð vel við sér á síð­­­ustu mán­uð­­um. Sam­tals hafa verið lán­aðir 25,3 millj­­arðar króna inn í þann geira frá byrjun nóv­­em­ber 2021 og út maí síð­­ast­lið­inn. Þar af var 7,1 millj­arður króna lán­aður til þeirra í síð­asta mán­uði. Ný útlán til bygg­inga­geirans hafa aldrei verið meiri innan mán­aðar sam­kvæmt hag­tölum Seðla­bank­ans, sem ná aftur til byrjun árs 2013.

Til að setja þá tölu í sam­hengi þá lán­uðu kerf­is­lega mik­il­vægu bank­­arnir þrír sam­tals 16,5 millj­­arða króna til fyr­ir­tækja í bygg­ing­­ar­­starf­­semi og mann­­virkja­­gerð allt árið 2019, síð­­asta heila árið fyrir kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur.

Á árunum 2020 og 2021 voru útlánin til geirans, að frá­­­dregnum upp- og umfram­greiðsl­um, hins vegar nei­­kvæð um 29,7 millj­­arða króna. Því er um mik­inn við­­snún­­ing að ræða.

[links]Sá við­­snún­­ingur er nauð­­syn­­legur í ljósi þeirrar stöðu sem ríkir á hús­næð­is­­mark­aði í dag vegna fram­boðs­skorts og gríð­ar­legra hækk­ana á hús­næð­is­verð­i. Í gær voru til að mynda birtar nýjar tölur frá Þjóðskrá sem sýndu að íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur ekki hækkað meira á tólf mán­aða tíma­bili síðan árið 2006. Árs­hækk­un­in, sam­kvæmt nýbirtri vísi­tölu íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir maí­mán­uð, nemur nú 24 pró­sent­ustigum.

Í skýrslu sem starfs­hópur stjórn­valda um aðgerðir og umbætur á hús­næð­is­­mark­aði kynnti á opnum kynn­ing­­ar­fundi í síð­asta mán­uði kom fram að byggja þurfi 35 þús­und íbúðir á næstu tíu árum til að mæta fólks­fjölg­un. Til við­bótar þarf að mæta upp­safn­aðri þörf sem er metin á um 4.500 íbúð­ir. Bráða­birgða­mat hag­deildar Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar er að það þurfti að byggja 3.500 til 4.000 íbúðir á ári næstu fimm til tíu árin. Hún áætlar að 2.783 nýjar íbúðir komi á mark­að­inn á árinu 2022 og 3.098 íbúðir á árinu 2023. Í skýrsl­unni seg­ir: „Raun­ger­ist þær áætl­anir er ljóst að ekki verður byggt í takt við þörf og líkur til þess að upp­söfnuð íbúða­þörf muni aukast sem leitt getur af sér nei­kvæða þróun og áfram­hald­andi óstöð­ug­leika á hús­næð­is­mark­að­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár