Hættulegt lýðheilsu þjóðarinnar að brugghús fái að selja bjór beint frá býli

ÁTVR ítrekar and­stöðu sína við það að brugg­hús fái að selja bjór í smá­sölu á fram­leiðslu­stað og segir frum­varp dóms­mála­ráð­herra um efnið til þess fallið að einka­leyfi ÁTVR á smá­sölu áfengis líði undir lok.

Fjöldi brugghúsa um allt land gætu löglega hafið smásölu á bjór beint til gesta sinna ef frumvarp dómsmálaráðherra yrði að veruleika. Mynd úr brugghúsi Kalda á Árskógssandi.
Fjöldi brugg­húsa um allt land gætu lög­lega hafið smá­sölu á bjór beint til gesta sinna ef frum­varp dóms­mála­ráð­herra yrði að veru­leika. Mynd úr brugg­húsi Kalda á Árskógs­sandi. Mynd: Arnar Þór

Áfengis- og tóbaks­verslun rík­is­ins (ÁTVR) leggst alfarið gegn stjórn­ar­frum­varpi Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra þess efnis að áfeng­is­fram­leið­endur fái að selja allt að 500 þús­und lítra af eigin bjór­fram­leiðslu í smá­sölu á fram­leiðslu­stað. ÁTVR telur að það hafi „alvar­leg og veru­lega nei­kvæð áhrif á lýð­heilsu þjóð­ar­innar“ ef frum­varpið verði sam­þykkt á þingi.

„Verði fyr­ir­liggj­andi frum­varp að lögum verður opnað fyrir mark­aðslög­málin í smá­sölu áfengis með til­heyr­andi sam­keppni, sölu­hvötum og hagn­að­ar­drif­inni smá­sölu áfengra drykkja sem felur í sér grund­vallar stefnu­breyt­ingu og veru­legt frá­vik frá einka­leyfi ÁTVR. Augljóst er að smá­sölu­stöðum áfengis hér á landi mun stór­fjölga verði frum­varpið að lögum. Liggur beint við að neysla áfengis mun aukast með aug­ljósum nei­kvæðum sam­fé­lags­legum áhrifum,“ segir í umsögn ÁTVR um frum­varp ráð­herra, sem lagt var fram í byrjun apríl.

Drykkirnir sem áfeng­is­fram­leið­endur mættu selja við­skipta­vinum sínum á fram­leiðslu­stað sam­kvæmt frum­varp­inu yrðu ein­ungis áfengt öl og má áfeng­is­pró­sentan í bjórnum að hámarki vera 12 pró­sent. Sam­bæri­legt frum­varp var einnig lagt fram á þingi í fyrra, þá af Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, en það varð ekki að lögum.

Þá lagð­ist ÁTVR, rétt eins og nú, einnig hart á móti frum­varp­inu og ítrekar rík­is­vínsal­inn fyrri sjón­ar­mið sín nú og bætir við fleirum. Að mati ÁTVR er það „aug­ljóst“ að ef þetta mál, eða þá annað fyr­ir­liggj­andi þing­mál, um vef­verslun með áfengi, verði sam­þykkt, muni það leiða til þess að einka­réttur ÁTVR á vín­sölu hér­lendis líði undir lok þar sem skil­yrði Evr­ópu­réttar fyrir einka­leyf­inu verði ekki lengur fyrir hendi.

„Hvort sem um vef­verslun með áfengi eða smá­sölu áfengis á fram­leiðslu­stað er að ræða þá er í báðum til­vikum lagðar til grund­vall­ar­breyt­ingar á þeirri áfeng­is­stefnu sem fylgt hefur verið hér á landi í heila öld sem byggja á aug­ljósum lýð­heilsu- og sam­fé­lags­rökum sem er grund­völlur heim­ildar íslenska rík­is­ins til rekst­urs rík­is­einka­sölu sam­kvæmt sér­stakri yfir­lýs­ingu við EES-samn­ing­inn. Horn­steinn áfeng­is­stefn­unnar hefur verið rekstur rík­is­einka­sölu með áfengi á smá­sölu­stigi. Að baki rík­is­einka­söl­unni býr sú stað­reynd að aukið aðgengi að áfengi leiðir til meiri áfeng­is­neyslu og þar með meiri sam­fé­lags­legs skaða. Um það vitnar reynsla margra þjóða,“ segir í umsögn ÁTVR, sem for­stjór­inn Ívar J. Arndal und­ir­ritar.

[adspot]

Í umsögn ÁTVR segir hann valið standa á milli þess að „við­halda núver­andi fyr­ir­komu­lagi í áfeng­is­málum, sem gef­ist hefur vel og sett ísland á meðal fremstu þjóða í áfeng­is­vörnum og hefur stuðlað að minni áfeng­is­neyslu og betri lýð­heilsu og almanna­heill, eða leggja áfeng­is­stefn­una til hliðar og gefa smá­sölu áfengis alfarið frjálsa“ og segir að í þeim efnum verði „ekki bæði og sleppt og haldið eins og ÁTVR hefur bent á og rök­stutt i fyrri umsögnum um laga­frum­vörp á þessu sviði“.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að það sé til þess ætlað að gera smærri áfeng­is­fram­leið­endum kleift að selja áfengt öl í smá­sölu á fram­leiðslu­stað og er frum­varp­inu einkum ætlað að styðja við smærri brugg­hús á lands­byggð­inni. ÁTVR telur efni frum­varps­ins ekki í sam­ræmi við mark­miðin og að til­laga um sölu áfram­leiðslu­stað sé bæði „óskýr og alltof víð­tæk“.

ÁTVR telur að ýmis­legt í frum­varp­inu þarfn­ist frek­ari skoð­unar, eins og skil­grein­ing vöru sem und­an­þegin verði einka­söl­unni, magn áfeng­is­ins sem selja má á fram­leiðslu­stað og skil­grein­ing þeirra fram­leið­enda sem und­an­þág­unni er ætlað að ná yfir. Síð­ast­nefnda atriðið segir ÁTVR að þurfi að skoða til þess að „fyr­ir­byggja snið­göngu við heim­ild­ina“.[links]

Í umsögn ÁTVR segir að hug­takið „fram­leiðslu­staður“ sé ekki nægi­lega vel skil­greint í frum­varp­inu. ÁTVR segir að „fram­leiðslu­staður“ gæti því allt eins verið „öld­ur­hús eða stór­mark­aður á höf­uð­borg­ar­svæð­inu“ og segir í umsögn­inni að það sé einmitt þró­unin sem orðið hafi í Finn­landi, þar sem opnað hefur verið fyrir smá­sölu brugg­húsa með svip­uðum hætti og lagt er til í frum­varpi ráð­herra.

Kaupendur þurfi að hlýða á fyrirlestur um brugghúsið

Í umsögn ÁTVR segir að í öðrum nor­rænum ríkjum hafi verið lögð áhersla á að sala brugg­húsa „beint frá býli“ verði að byggja á rök­semdum um efl­ingu ferða­manna­iðn­aðar, þar sem áherslan sé á heim­sóknir ferða­manna og ann­arra á fram­leiðslu­stað­inn, en ekki smá­söl­una sjálfa.

ÁTVR bendir til dæmis á að í um 340 blað­síðna langri sænskri skýrslu um álita­mál tengd svip­aðri útfærslu þar í landi sé lagt til „að aðeins þeim ein­stak­lingum sem hafa farið í fræðslu­ferð um fram­leiðslu­stað­inn sem greitt hefur verið fyrir eða hlýtt á fyr­ir­lestur um fram­leiðsl­una verði heim­ilt að kaupa áfengi á fram­leiðslu­stað“.

Engin slík skil­yrði sé að finna í frum­varpi dóms­mála­ráð­herra, sem leiði til þess að hand­hafi leyfis til sölu á fram­leiðslu­stað megi selja öllum sem hafa náð áfeng­is­kaupa­aldri áfengi. „Augljóst er að mik­ill meiri­hluti söl­unnar yrði til við­skipta­manna sem myndu koma á fram­leiðslu­stað­inn í þeim eina til­gangi að versla áfengi sem stæð­ist ekki kröfur EES-rétt­ar­ins til einka­leyfis ÁTVR eða reglur um bann við mis­munun,“ segir í umsögn ÁTVR.

Óútfært hvaða aðili á að fylgjast með

Eins og áður var nefnt myndu brugg­hús fá heim­ild til þess að selja allt að 500 þús­und lítra af bjór á hverju ári til við­skipta­vina sinna ef frum­varp dóms­mála­ráð­herra yrði að lögum.

Þegar málið var lagt fram á fyrra þingi var þessi und­an­þágu­heim­ild hin sama, og þá benti rík­is­skatt­stjóri á að ekk­ert væri kveðið á um það hvaða aðili ætti að sinna eft­ir­liti með því að brugg­hús seldu ekki fleiri en lítrana 500 þús­und sem þeim er heim­ilt að selja, né hver við­brögðin ættu að verða ef brugg­hús færu fram úr því hámarki.

„Frum­varpið nú er sama marki brennt,“ segir í umsögn frá rík­is­skatt­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

áfengisneysla

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár