„Ég vona að þessi úrskurður breyti starfi bankans“

Seðla­bank­inn braut jafn­rétt­islög með ráðn­ingu upp­lýs­inga­full­trúa. Bankinn réði karl með mun minni menntun og reynslu en Gunn­hildur Arna Gunn­ars­dóttir, þar sem hann þótti standa sig vel í við­tölum, vera frum­legur og skemmti­legur og með ein­staka hæfi­leika.

„Ég vona að þessi úrskurður breyti starfi bankans“
Kærði ráðn­ing­una Seðla­bank­inn braut jafn­rétt­islög þegar horft var fram­hjá þeirri reynslu og menntun sem Gunn­hildur Arna Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi blaða­maður og upp­lýs­inga­full­trúi, hafði umfram karl­kyns umsækj­anda.

„Ég vona að þessi úrskurður breyti starfi bank­ans og að fag­legt ráðn­ing­ar­ferli verið tekið upp innan hans. Ég vona einnig að bank­anum vegni betur í ákvörð­unum sínum undir nýrri yfir­stjórn og fari að lands­lögum,“ segir Gunn­hildur Arna Gunn­ars­dóttir í sam­tali við Stundina. 

Seðla­bank­inn hefur þrisvar sinnum brotið jafn­rétt­islög frá árinu 2012, nú síð­ast þegar Stefán Rafn Sig­ur­björns­son var ráð­inn upp­lýs­inga­full­trúi bank­ans, án þess að bank­inn gæti sýnt fram á að Stefán hefði staðið Gunn­hildi Örnu, konu sem einnig sótti um starfið, framar. Gunn­hildur Arna hefur starfað við fjöl­miðla frá árinu 2004 og stýrt frétta­stofum, meðal ann­ars sem rit­stjóri dag­blaðs. Í dag er hún starf­andi dag­skrár­gerð­ar­kona í Morg­un­út­varpi Rásar 2 auk þess sem hún er blaða­maður hjá Lækna­blað­inu. 

Greint var frá því í byrjun júní að Stefán Rafn hefði verið ráð­inn til Seðla­bank­ans og vísað í Facebook-status frá Stefáni þar sem hann stað­festi fregn­irnar og kvaddi um leið fjöl­miðla: „Mun samt sakna þess að flytja ykkur fréttir af Brexit, Trump og pöndum frá Kína,“ sagði hann. 

Þótti standa sig vel í viðtölum

Alls voru 49 umsóknir metnar og ákveðið var að bjóða sjö umsækj­endur í við­tal, þar af fjórar konur og þrjá karla. Að þeim loknum voru þrír umsækj­endur metnir hæf­astir. Í fram­hald­inu var þeim boðið að leysa ákveðin verk­efni og síðan var tveimur boðið í seinna við­tal. Í kærunni kemur fram að Gunn­hildur Arna hafi verið kölluð í við­tal en ekki heyrt frekar af mál­inu fyrr en í júní þegar til­kynnt var um ráðn­ing­una. Í kjöl­farið óskaði hún eftir rök­stuðn­ingi fyrir ráðn­ing­unni.

Þar kom fram að hæfn­is­kröfur hefðu verið metnar heild­stætt.

Sá sem hefði verið ráð­inn, Stefán Rafn, hefði lokið BA-gráðu í stjórn­mála­fræði, starfað sem sjón­varps­frétta­maður frá árinu 2018, útvarps­frétta­maður í tvö ár og blaða­maður á Frétta­blað­inu í rúmt ár. Í þrjá mán­uði hafi hann verið í starfs­námi á upp­lýs­inga- og fjöl­miðla­sviði hjá Jafn­að­ar­manna­flokknum á Evr­ópu­ráðs­þing­inu og komið að gerð frétta­til­kynn­inga og fleira. Auk þess hafi hann setið í stjórn Norð­ur­landa­ráðs æsk­unnar í eitt ár og verið fom­aður Ungra jafn­að­ar­manna um nokk­urra ára skeið. Þá var það talið honum til tekna að kunna á Adobe Photos­hop og InDesign.

Á þessum grund­velli mat Seðla­bank­inn Stefán Rafn hæfan og þar sem frammi­staða hans í við­tölum var talin mjög góð var honum að lokum boðið starfið.

Í ljósi þess að Gunn­hildur Arna hefur tölu­vert meiri reynslu og betri menntun en Stefán kærði hún málið til kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála sem taldi nægar líkur á að henni hefði verið mis­munað á grund­velli kyns til að Seðla­bank­inn yrði að sýna fram á að aðrar ástæður en kyn hefðu legið til grund­vallar ákvörð­unar hans. Nið­ur­staðan var skýr, Seðla­bank­anum tókst ekki að sýna fram á að aðrar ástæður en kyn­ferði hefði legið til grund­vallar ákvörðun um ráðn­ingu í starfið.

Samanburður á hæfnismati

Til að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu var farið yfir hæfn­is­kröfur sem settar voru fram í aug­lýs­ingu um starfið og hæfni þeirra Gunn­hildar og Stefáns borin saman. 

Hæfnis­kröfur Sá sem ráð­inn var (hann) Kærandi (hún)
Háskóla­menntun sem nýt­ist í starfi

BA-gráða í stjórn­mála­fræði, HÍ 2017

BA-gráða í mann­fræði, HÍ 2002

Diplóma í hag­nýtri fjöl­miðlun, HÍ, 2004

MBA-gráða, HR, 2016.

Sam­an­burður

Kærandi hefur lokið þremur háskóla­gráðum, þar af diplóma­gráðu og annarri á meistara­gráðu­stigi.

Sá sem ráð­inn var lauk BA-gráðu og stund­aði námið með hléum á árunum 2009-2017.

Reynsla af kynn­ingar­starfi

1. Starfs­nám hjá Jafn­að­ar­manna-flokknum á Evr­ópu­þing­inu á upp­ýs­inga– og fjöl­miðla­sviði frá febr­úar–maí 2012. Þar kom hann að gerð frétta­til­kynn­inga, vann örmynd­bönd, tók við­töl og var í sam­skiptum við fjöl­miðla­fólk og vann að sam­fé­lags­miðlum.

1. Kærandi var tals­maður/upp­lýs-inga­full­trúi stærsta fjar­skipta­fé­lags lands­ins í rúm fimm ár, frá 2012-2018. Auk þess að svara fyr­ir­spurnum fjöl­miðla rit­aði kær­andi allar frétta­til­kynn­ingar og birti á vef og bloggi félags­ins og sendi fjöl­miðlum, sá um innri upp­lýs­inga­miðlun til mörg hund­ruð starfs­manna, und­ir­bjó efni á starfs­manna­fundi og upp­lýs­ingar til kaup­hallar. Ritaði einnig allan almennan texta í árs­skýrslu félags­ins og sam­fé­lags- ábyrgð­ar­skýrslur, sem og fund­ar­gerðir fram­kvæmda­stjórnar. Vann einnig með erlendum félögum að ritun frétta­til­kynn­inga; Spotify, Ericsson og Comarch. Hún kom fram í eigin nafni sem tals­maður fyr­ir­tæk­is­ins.

2. Kærandi hefur unnið sjálf­stætt með fyr­ir­tækjum í almanna­tengslum í rúmt ár.

3. Kærandi hefur sett upp og stýrt við­burðum FKA, Félags kvenna í atvinnu­líf­inu, til að auka sýni­leika kvenna í fjöl­miðlum.

Sam­an­burður

Kærandi hefur í það minnsta fimm árum lengri reynslu en sá sem ráð­inn var af kynn­ing­ar­starfi en reynsla hans þar kemur ein­göngu úr starfs­námi.

Kærandi hefur í 5,5 ár svarað fjöl­miðlum sem upp­lýs­inga­full­trúi. Þá reynslu hefur sá sem ráð­inn var ekki.

Reynsla af fjöl­miðlum

1. Fjöl­miðla­reynsla á árunum 2016-2019.

2. Gegnt starfi sjón­varps-frétta­manns frá mars 2018.

3. Útvarps­frétta-maður um tveggja ára skeið og blaða­maður á frétta­miðl­inum Vísi.

4. Blaða­maður á Frétta­blað­inu frá febr­úar 2015-maí 2016. Frétta­öflun og ritun.

5. Setti inn fréttir á sam­fé­lags­miðla fyrir Stöð 2, Vísi og Bylgjuna.

6. Hefur góða þekk­ingu á Photos­hop og InDesign.

1. Fjöl­miðla­reynsla á árunum 2004-2012, 2018-2019.

2. Gegndi starfi sjón­varps-frétta­manns sum­arið 2010 á RÚV. Stýrði við­tals­þáttum í sjón­varpi 2009.

3. Útvarps­frétta­maður sum­arið 2010. Stýrði útvarps­þáttum Frétta­blaðs­ins 2005, hádeg­is­þáttum og morg­un­þáttum.

4. Vann á árunum 2004 til októ­ber 2012 hjá Frétta­blað­inu, Morg­un­blað­inu, RÚV, Blaðinu/24 stundum og Frétta­tím­anum. Var blaða­maður, vakt­stjóri, kvöld­frétta­stjóri, frétta­stjóri og rit­stjóri.

5. Vann á mbl.is og setti inn fréttir á Vísi.

6. Tilnefnd til verð­launa fyrir rann­sóknar-blaða­mennsku.

7. Ritar nú við­töl og fréttir, gerir hlað­vörp og tekur ljós­myndir og vinnur þær fyrir Lækna­blaðið frá 2018. Setur inn fréttir á sam­fé­lags­miðla.

8. Hefur þekk­ingu bæði á Photos­hop og InDesign en var ekki í við­tal­inu spurð sér­stak­lega um for­rit tengd blaða­mennsku aðeins sjón­varp.

Sam­an­burður

1. Kærandi hefur sent starf­andi fjöl­miðlum ógrynni frétta­til­kynn­inga. Það hefur sá sem ráð­inn var ekki gert.

2. Kærandi hefur unnið að gerð frétta­til­kynn­inga með erlendum stór­fyr­ir­tækjum. Það hefur sá sem ráð­inn var ekki gert.

3. Kærandi hefur reynslu af því að bregð­ast við og hafa sam­band við fjöl­miðla vegna umfjöll­unar. Þá reynslu hefur sá sem ráð­inn var ekki.

4. Kærandi hefur reynslu af skýrslu­skrifum. Þá reynslu hefur sá sem ráð­inn var ekki.

Starfs­tími kær­anda á fjöl­miðlum er þrefalt lengri en starfs­tími þess sem ráð­inn var. Sá starfs­tími kær­anda er allur eftir grunn­nám en hjá þeim sem ráð­inn var er lengsti hluti starfs­tíma hans meðan hann var í námi.

Kærandi hefur mun víð­tæk­ari reynslu umfram þann sem ráð­inn var á dag­blöðum lands­ins, svo munar sjö árum. Sá sem ráð­inn var hefur hins vegar um árs lengri reynslu af útvarps­frétta­mennsku en kær­andi.

Kærandi var stjórn­andi; frétta­stjóri og rit­stjóri með yfir­sýn yfir allar unnar fréttir hvern dag í starfi. Sá sem ráð­inn var hefur ekki þá reynslu.

Kærandi hefur verið til­nefnd til verð­launa fyrir blaða­mennsku. Slíka til­nefn­ingu hefur sá sem ráð­inn var ekki.

Kærandi hefur reynslu af ljós­myndun í starfi og af gerð hlað­varpa. Þá reynslu hefur sá sem ráð­inn var ekki.

Góðir sam­skipta­hæfi­leikar

1. Formaður Ungra jafn­að­ar­manna.

2. Sat í stjórn Norð­ur­landa­ráðs æsk­unnar 2014-2015.

3. Formaður Ungra Evr­ópu­sinna.

4. Alþjóða­full­trúi Lands­sam­bands æsku­lýðs­fé­laga.

5. Gjald­keri Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands.

6. Formaður Sambands íslenskra fram­halds­skóla-nema.

7. Forseti Nem­enda­fé­lags FG.

8. Sveita­for­ingi í skáta­fé­lag­inu Svönum.

1. Tals­maður fjar­skipta­fyr­ir­tækis á mark­aði.

2. Hefur þró­ast í starfi og verið treyst fyrir manna­for­ráðum.

3. Situr í dóm­nefnd fyrir Blaða­manna­fé­lag Íslands.

4. Fram­kvæmda­nefnd FKA til að auka hlut kvenna í fjöl­miðlum.

5. Treyst til leið­ara­skrifa í fjórum dag­blöðum lands­ins.

6. Var for­maður nem­enda­fé­lags Grunn­skól­ans á Hólmavík til tveggja ára, en kom ekki fram í ráðn­ing­ar­ferli.

Sam­an­burður

1. Sá sem ráð­inn var tal­aði sem for­maður ungra jafn­að­ar­manna og hefur verið í fram­varða­sveit í skólapóli­tík og annarri. Kærandi hefur verið tals­maður félags með 30 millj­arða árlega veltu í mark­aði.

2. Kæranda hefur verið treyst til að stýra mann­skap á vinnu­stað. Það á ekki við um þann sem ráð­inn var.

Góð kunn­átta og rit­færni í íslensku og ensku

1. Þriggja ára frétta­mennska í inn­lendum og erlendum fréttum gengi ekki án góðrar tungu­mála-kunn­áttu.

1. Fimmtán ára reynsla í fjöl­miðlum og almanna­tengslum gengi ekki án góðrar tungu­mála-kunn­áttu.

2. MBA nám HR er allt kennt á ensku.

Góð þekk­ing á efna­hags- og pen­inga­málum og fjár­mála­mörk­uðum er kostur.

1. Ritaði erlendar fréttir, einnig um utan­rík­is­mál, stjórn­mál og kjara­mál.

1. Frétta­stýrt bæði inn­lendum og erlendum fréttum. Hefur einnig ritað fréttir um kjara­mál, utan­rík­is­mál, stjórn­mál og vísi­töl­una.

2. Lauk efna­hags- og fjár­mála­tengdum áföngum í MBA–nám­inu, þar á meðal í bók­haldi, mark­aðs­fræði og þjóð­hag­fræði.

3. Upp­lýs­inga­full­trúi í skráðu félagi.

Sam­an­burður

Kærandi hefur lokið áföngum í MBA–námi sem sanna góða þekk­ingu á efna­hags- og pen­inga­málum og fjár­mála­mörk­uðum.

Sá sem ráð­inn var hefur enga sam­bæri­lega menntun.

Drif­kraftur, frum­kvæði og geta til að vinna fag­lega og sjálf­stætt.

1. Forsenda góðrar blaða- og frétta­mennsku.

1. Forsenda góðrar blaða- og frétta­mennsku.

2. Kærandi heldur utan um eigin rekstur.

3. Kærandi rak og stýrði rit­stjórn og hélt utan um og kom með hug­myndir frétta­stofu.

4. Stundaði MBA– nám sam­hliða vinnu og barna­upp­eldi.

Sam­an­burður

Bæði upp­fylla örugg­lega þessa kröfu hvort á sinn hátt.

Kærandi lauk þó náms­fram­vindu á háskóla­stigi á hefð­bundnum og eðli­legum náms­hraða. Það gerði sá sem ráð­inn var ekki heldur lauk hann á þre­földum tíma námi sem telst þriggja ára nám.

„Augljóst sé af þess­ari sam­an­burð­art­öflu að sá sem ráð­inn hafi verið hafi upp­fyllt með mun lak­ari hætti en kær­andi hlut­lægar kröfur til starfs­ins,“ segir í kærunni.  Gunn­hildur Arna lýsti reyndar þeirri skoðun að Stefán hefði aldrei átt að ná svo langt í ráðn­ing­ar­ferl­inu sem raun bar vitni. Hlut­lægum mæli­kvörðum hafi verið vikið til hliðar og ráðn­ingin byggð á hug­lægum sjón­ar­miðum.

Þriggja mánaða starfsnám vó þyngra en þriggja ára háskólanám

Bent er á nokkur atriði sem vekja sér­staka athygli: 

  • Í umsókn­ar­ferl­inu var þriggja mán­aða starfs­nám Stefáns á upp­lýs­inga- og fjöl­miðla­sviði hjá Jafn­að­ar­manna­flokknum á Evr­ópu­þing­inu á árinu 2012 verið látin vega þyngra en diplóma­gráða í hag­nýtri fjöl­miðlun og MBA–gráða, sam­tals þriggja ára fram­halds­nám í Háskóla sem Gunn­hildur Arna hafði lokið. 

  • Upp­lýs­inga­gjöf í þriggja mán­aða starfs­námi sé talin veiga­meiri en öll sú hag­nýta reynsla sem Gunn­hildur Arna hafi umfram þann sem ráð­inn hafi verið sem upp­lýs­inga­full­trúi og tals­maður stórs og öfl­ugs hluta­fé­lags á mark­aði í rúm fimm ár, skýrslu­skrif á þeim tíma, innri upp­lýs­inga­gjöf og sam­skipti við fjöl­miðla. Einskis sé metin reynsla hennar sem sjálf­stætt starf­andi við almanna­tengsl.

  • Reynsla Stefáns sem blaða- og sjón­varps­frétta­maður á árunum 2016-2019 sé metin veiga­meiri en reynsla Gunn­hildar Örnu sem blaða- og sjón­varps­frétta­maður, vakt­stjóri, kvöld­frétta­stjóri, frétta­stjóri og rit­stjóri á árunum 2004-2012 og aftur sem blaða­maður frá árinu 2018.

  • Sérstök áhersla sé lögð á þekk­ingu þess sem ráð­inn hafi verið á InDesign og Photos­hop. Gunn­hildur Arna hafi ekki verið spurð um þekk­ingu sína á þessum for­ritum sem unnið sé sam­hliða með í núver­andi starfi kær­anda. Blaðið/24 stundir, Frétta­tím­inn og Lækna­blaðið séu öll sett upp í InDesign. Hún hafi því einnig þekk­ingu á þessum for­ritum.
  • Fyrir liggi að sá sem nú gegni stöðu rit­stjóra Seðla­bank­ans sé karl­maður. Það hefði því átt að vera eft­ir­sókn­ar­vert fyrir bank­ann að ráða konu í þetta starf þannig að störf sem teng­ist almanna­tenglum á vegum Seðla­bank­ans væru skipuð bæði karli og konu.

Brutu lög um jafnan rétt kvenna og karla

Seðla­bank­inn hafn­aði því að kyn hefði ráðið því hver var met­inn hæf­astur. Í umsókn­ar­ferl­inu hafi Stefáni verið boðið að leysa verk­efni sem hann hefði nálg­ast með „frum­legum og skemmti­legum“ hætti og því hafi verið talið að hann væri „góð við­bót við teymi“ Seðla­bank­ans. Hann hafi því ekki aðeins búið yfir sér­þekk­ingu  heldur „sér­stökum hæfi­leikum“. Frammi­staða hans í við­tölum hafi verið mjög góð, auk þess sem hann hafi unnið að áhuga­verðum verk­efnum í frí­tíma sínum, svo sem hlað­varps­þátt­inn Pendúl­inn. 

Á móti bendir Gunn­hildur Arna á að hún hafi greint frá því í ráðn­ing­ar­við­tal­inu að hún hefði verið í teymi sem hafi unnið að stórri her­ferð fyrir Símann og Sam­göngu­mið­stöð, Höldum fókus, sem hlaut íslensku aug­lýs­ing­ar­verð­launin Lúður sem her­ferð árs­ins 2013. Átakið hafi einnig verið end­ur­tekið í Noregi. Hún hafi verið með útvarps- og sjón­varps­þætti, sett inn efni á Facebook-síðu Lækna­blaðs­ins og unnið fyrir það hlað­vörp. Hún gagn­rýndi þá ákvörðun að henni hafi ekki verið gefið tæki­færi til að leysa sömu verk­efni og Stefán, enda þess full­viss að reynsla hennar hefði skilað sér þar. 

Að lokum komst úrskuð­ar­nefndin að þeirri nið­ur­stöðu að Seðla­bank­inn hefði brotið lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, með ráðn­ing­unni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár