„Forkastanlegt“ að núll konur séu í 19 manna stjórn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi

Klemens Hjartar, með­eig­andi hjá McKinsey & Co, sagði á árs­fundi SFS að kynja­hall­inn í stjórn sjáv­ar­út­vegs myndi koma í bakið á grein­inni. Hann sagði líka að taka þyrfti ósættið um eign­ar­haldið „mjög alvar­lega“. Fram­kvæmda­stjóri SFS tók undir gagn­rýn­ina.

Klemens Hjartar, meðeigandi hjá McKinsey & Co, flutti erindi á ársfundi SFS sem vakti umtal og athygli.
Klemens Hjartar, með­eig­andi hjá McKinsey & Co, flutti erindi á árs­fundi SFS sem vakti umtal og athygli. Mynd: Skjáskot/SFS

„Það sló mig svo­lítið þegar ég kom hérna í dag og frétti að nú væri komin ný stjórn SFS. Það er 19 manna stjórn og þar eru núll konur í stjórn­inni. Iðnaður sem ætlar að halla sér fram og breyta heim­inum, búa til aðgrein­an­leika, getur ekki hagað sér svo­leiðis. Þetta er algjör­lega for­kast­an­legt og það liggur mér á hjarta, af því að nú vinn ég við að ráð­gefa fyr­ir­tækjum út um allan heim, þetta er ekki hægt. Þetta á eftir að koma í bakið á ykkur.“

Þetta sagði Klemens Hjartar, með­eig­andi í alþjóð­lega ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu McKinsey & Co, í erindi sem hann hélt á árs­fundi Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) sem fram fór á föstu­dag. Hægt er að horfa á fund­inn í heild sinni hér.

Þar vís­aði Klemens til þess að stjórn sam­tak­anna fyrir kom­andi starfsár er leidd af Ólafi Mart­eins­syni, fram­kvæmda­stjóra Ramma, og með honum sitja 18 karlar í stjórn. Klemens sagð­ist vona að atvinnu­greinin fari að skilja að þetta gangi virki­lega ekki. „Ef þetta gerð­ist ein­hvers staðar ann­ars staðar í venju­legu fyr­ir­tæki sem er með þennan metnað sem hægt er að hafa hér, þá væri það bara alls ekki ásætt­an­legt.“

Sjálfseignarsjóðir gætu stuðlað að sátt um eignarhaldið

Í erindi sínu fjall­aði Klemens um að íslenskur sjáv­ar­út­vegur væri í ofur­hetju­hlut­verki á heims­vísu þegar kæmi að veiðum. Engin önnur þjóð næði við­líka árangri í úthafsveiðum og Íslands og Ísland væri nokk­urs konar kís­ildalur sjáv­ar­út­vegs. Það væri hins vegar hægt að gera meira og greinin hafi ekki náð að halda hlut­falls­legu mik­il­vægi sínu hér­lendis sam­hliða auknum vexti ann­ars staðar í efna­hags­kerf­inu. Hann fór svo yfir að það væru margar leiðir til að byggja upp virði íslenskra sjáv­ar­af­urða og búa til aðgrein­an­leika.

[adspot]Í lok erindis síns fjall­aði Klemens um að deilur um lang­tíma­stefnu í sjáv­ar­út­vegi geti skapað víta­hring þar sem verð­mætum verði eytt til lengri tíma. Hann sagði sam­fé­lags­lega þátt­inn í stöð­ug­leika grein­ar­innar vera mik­il­vægan. „Það hefur verið ákveðin nei­kvæðni í kringum sjáv­ar­út­veg­inn. Það hefur verið ósætti í þjóð­fé­lag­inu, sér­stak­lega um eign­ar­haldið.“

Hans per­sónu­lega mat á þeirri stöðu er að það þurfi að taka hana mjög alvar­lega. „Það gæti tekið stuttan tíma að breyta kerf­inu í átt sem væri alls ekki íslensku þjóð­inni fyrir bestu. Eitt af því sem ég hef séð, búandi í Danmörku, er að mörg stærstu fyr­ir­tæki í Danmörku eru í eign­ar­haldi sem eru í sjálfs­eign­ar­stofn­unum. Þetta ger­ist oft þegar verið er að taka stór iðn­fyr­ir­tæki og þau eru að fara í gegnum kyn­slóða­skipti, þá er búnir til sjóðir, sjálfs­eign­ar­sjóðir, þar sem félögin að stórum hluta, eru bæði skráð á markað og sjóð­ur­inn á áfram í fyr­ir­tæk­inu.“

Þætti ætti við um mörg stærstu og sterk­ustu fyr­ir­tækjum Dan­merkur, eins og Novo Nordisk, Carlsberg, Lego og A.P. Møller-Maersk. „Með þessu væri hægt að búa til sjóði sem sæju til þess að styrkja byggð­ar­lög, eða ein­hverja aðra starf­semi, og þetta væri tæki­færi til að koma eign­ar­haldi í dreifð­ari aðild. Þetta gæti verið einn lyk­il­þátt­ur­inn í að búa til allt aðra umræðu um iðn­að­inn. Um iðnað sem þá gæti tvö­faldað verð­mæta­sköpun í land­inu og búa til jákvæða hringrás þessa verð­mæta­sköp­unar sem miklu fleira ungt fólk, menntað fólk, myndi vilja fara í og sjá fram­tíð sína í.“

„Þarna verðum við að taka okkur tak“

Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri SFS, brást við erind­inu við lok fund­ar­ins. Hún sagði í ræðu sinni að þegar sjáv­ar­út­veg­ur­inn seg­ist ætla að auka verð­mæti þá skipti máli að sjá að verð­mæti felist ekki ein­ungis í fjár­munum. „Verðmæti fel­ast líka í sam­fé­lag­inu og sátt við sam­fé­lagið. [...] Við eigum að segja að við erum ekki full­komin og við ætlum að gera betur.“

Heiðrún sagði að henni hafi þótt vænt um það þegar Klemens styngi á kýlin þegar kæmi að jafn­rétt­is­málum í sjáv­ar­út­vegi. „Þarna verðum við að taka okkur tak. Það er ekki neinn annar en við sjálf sem eigum að gera betur þar. Það sama á kannski við um þegar talað er um eign­ar­hald og kyn­slóða­skipti. Og það er nú einu sinni þannig að eng­inn kemst hjá kyn­slóða­skiptum. Þannig er ein­fald­lega tím­ans hjól. Næstu ár eru ár umbreyt­inga í sjáv­ar­út­vegi. Það verða áskor­anir í þessum kyn­slóða­skiptum. VIð þurfum að gera það vel og við þurfum að gera það í góðu sam­tali við sam­fé­lagið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár