Harry Bretaprins vill vernda ömmu sína – En fyrir hverju?

Harry Breta­prins vill vernda Elísa­betu Eng­lands­drottn­ingu. Fyrir hverju nákvæm­lega er óljóst. Harry og Meghan hittu drottn­ing­una nýlega og er þetta í fyrsta sinn sem Meghan kemur til Bret­lands eftir að hjónin afsöl­uðu sér kon­ung­legum titlum.

Elísabet Eng­lands­drottn­ing var „í fínu formi“ að sögn Harry Breta­prins þegar hann fékk sér te með ömmu í Windsor-kast­ala á skír­dag ásamt Meghan Markle eig­in­konu sinni. Þau hittu einnig Karl Breta­prins, föður Harrys. Drottn­ingin fagnar 96 ára afmæli í dag.

Her­toga­hjónin af Sussex komu við hjá drottn­ing­unni á leið sinni á Invictus-leik­ana í Hollandi, alþjóð­legra leika sem Harry stendur fyrir þar sem her­menn sem hafa slasast eða veikst við her­þjón­ustu etja kappi í alls konar íþrótta­greinum. Ekki var greint sér­stak­lega frá heim­sókn­inni en í við­tali við Today Show á NBC segir prins­inn nánar frá heim­sókn­inni.

„Það var frá­bært að hitta hana, sér­stak­lega í ró og næði,“ sagði Harry, sem kom ömmu sinni til að hlæja eins og oft áður. „Ég var bara að tryggja að hún njóti verndar og sé umkringd rétta fólk­inu,“ segir Harry í við­tal­inu, sem birt var í heild sinni í gær­kvöldi.

Þetta er í fyrsta sinn sem Harry og Meghan fara saman til Bret­lands eftir að þau sögðu sig frá öllum kon­ung­legum skyldum fyrir rúmum tveimur árum. Harry hefur tvisvar komið einn í heima­hag­ana, ann­ars vegar til að vera við­staddur jarð­ar­för Fil­ippusar prins, afa síns, og hins vegar þegar stytta til minn­ingar um móður hans var afhjúpuð.

Harry segir sam­band sitt við ömmu sína ein­stakt. Aðspurður hvað sé það besta í fari Eng­lands­drottn­ingar segir Harry: „Skopskyn hennar og hæfi­leiki hennar til að sjá það fyndna við marga hluti. Við tölum um hluti sem hún getur ekki talað um við aðra.“ Harry telur hins vegar að amma hans hugsi lítið um afmæl­is­dag­inn. „Ég held að þegar þú ert kom­inn á vissan aldur fáir þú leið á að eiga afmæli,“ segir Harry. Drottn­ingin hafði vissu­lega hægt um sig í dag og dvaldi í húsi kon­ungs­fjöl­skyld­unnar í Sandring­ham, sem var í upp­á­haldi hjá Fil­ippusi prins.

Lítur á Bandaríkin sem heimili fjölskyldunnar sem stendur

Harry segir Banda­ríkin vera heim­ili sitt „um þessar mundir“ og segir að fjöl­skyld­unni­hafi verið tekið þar með opnum örmum.

[links]Harry og Meghan til­kynntu í upp­hafi árs 2020 að þau ætl­uðu að afsala sér kon­ung­legum titlum sínum. Það gekk í gegn vorið 2020. Harry er þó áfram prins og er sjötti í erfða­röð­inni að bresku krún­unni.

Elísabet Eng­lands­drottn­ing studdi ákvörðun þeirra, ef marka má yfir­lýs­ingu hennar þar sem hún sagði kon­ungs­fjöl­skyld­una hafa fundið „upp­byggi­lega og stuðn­ings­ríka leið fram á við fyrir son­ar­son minn og hans fjöl­skyldu.“ Harry, Meghan og Archie verða alltaf elskuð af fjöl­skyld­unni, sagði einnig í yfir­lýs­ing­unni. Drottn­ingin sagð­ist hafa skiln­ing á þeim áskor­unum sem þau hafa upp­lifað síð­ustu tvö ár, ver­andi undir nál­ar­auga fjöl­miðla, „og ég styð ósk þeirra um meira sjálf­stæð­i“.

Síðan þá hefur fjöl­skyldan stækkað, en Lillibet litla sem verður eins árs í sumar hefur aldrei hitt kon­ungs­fjöl­skyld­una og Archie, sem verður þriggja ára í byrjun maí, hefur ekki hitt afa sinn og langömmu frá því að for­eldrar hans sögðu skilið við krún­una.

Höfðu betur gegn slúðurpressunni eftir þriggja ára dómsmál

Áreiti bresku götu­blað­anna, nokkuð sem móðir Harrys, Díana prinsessa, þekkti mæta­vel, var meðal ástæða þess að Harry og Meghan sögðu skilið við lífið í höll­inni. Meghan varð fljótt upp­á­hald slúð­ur­pressunnar sem átti að verða hin nýja „prinsessu ­fólks­ins“. Harry við­ur­kenndi í við­tali haustið 2019 að hann ótt­að­ist að Meghan myndi hljóta sömu örlög og móðir hans, sem lést í bílslysi í París eftir að hafa verið hund­elt af ljós­mynd­urum.

Eftir að eitt götu­blað­anna, Mail on Sunday, birti hluta bréfs sem Meghan skrif­aði föður sínum skömmu fyrir brúð­kaup þeirra Harry ákváðu hjónin að nóg væri komið. Í októ­ber 2019 gaf Harry út yfir­lýs­ingu þar sem fram kom að hjónin hygð­ust lög­sækja Mail og Sunday fyrir að birta upp­lýs­ingar úr einka­bréfi.

Dóms­mál­lið stóð yfir í um þrjú ár en lauk í upp­hafi þessa árs þegar Meghan voru dæmdar skaða­bætur vegna máls­ins. Upphæðin var þó ekki nema eitt pund, enda var það ekki upp­hæð­ins sem skipti máli heldur við­ur­kenn­ing Mail on Sunday á inn­rás í einka­líf Meghan og stað­fest­ing á að láta ekki reyna frekar á málið fyrir dóm­stólum.

„Ég hef séð hvað ger­ist þegar þeir sem ég elska eru gerðir að sölu­vöru og ekki lengur komið fram við þá eins og alvöru per­són­ur. Ég missti móður mína og nú horfi ég upp á eig­in­kon­u mína verða fórn­ar­lamb sömu valda­miklu afla,“ sagði meðal ann­ars í yfir­lýs­ingu prins­ins.

Ekki leið langur tími þar til hjónin til­kynntu á Instagram að þau ætl­uðu að láta af ölllum kon­ung­legum skyldum sínum og dvelja á víxl í Bret­landi og Norður-Ameríku.

Vernda drottninguna fyrir hverju?

Þar hafa þau nú dvalið í tæp tvö ár og það vakti athygli kon­ungs­legs frétta­rit­ara Breska rík­is­út­varps­ins hvað Harry átti í raun og veru við þegar hann sagð­ist hafa verið að kanna öryggi ömmu sinnar.

„„Vernda“ hana fyrir hverju?“ spyr Sean Coughan, kon­ung­legur frétta­rit­ari BBC. Í broti úr við­tal­inu sem NBC hefur birt er ekki gefið upp hvers vegna Harry finnst hann þurfa að vernda ömmu sína. Er hún orðin heilsu­veil eða vill hann vernda hana frá slæmum ákvörð­unum?

Heilsa drottn­ing­ar­innar hefur verið til umræðu upp á síðkastið, skilj­an­lega sökum ald­urs hennar. Drottn­ingin var lögð inn á spít­ala í októ­ber og í kjöl­farið hefur hún dregið úr við­veru sinni á ýmsum við­burðum, hún sótti til að mynda ekki messu á páska­dag eins og venja er. Þá fékk hún COVID í byrjun árs og hefur greint frá því að hún þjá­ist af bak­verkjum, eigi erfitt með gang og treysti sér því ekki til að standa lengi.

Coughan, sem birti pistil sinn áður en við­talið var birt í heild sinni, bendir rétti­lega á að áhættu­samt sé að ráð­ast í ítar­lega grein­ingu á broti úr stærra við­tali, kannski muni Harry útskýra frekar hvað hann á við þegar við­talið verður birt í heild sinni. Það gerði hann hins vegar ekki, en við­talið var á mjög léttum nótum.

Eitt er þó ljóst í máli Harrys að mati kon­ung­lega frétta­rit­ar­ans: Hann sér fram­tíð sína og fjöl­skyld­unnar fyrir sér í Banda­ríkj­unum, að minnsta kosti eins og sakir standa. Hvað sem kon­ung­legum genum líður, lífið snýst um galla­buxur og sól­skin í Santa Barbara þessa stund­ina þar sem fjög­urra manna fjöl­skyldan hefur búið sér heim­ili og virð­ist vera að festa rætur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár