Segir málflutning stjórnarandstæðinga beinlínis rangan

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir að það skipti máli að horfa á heild­ar­mynd­ina varð­andi söl­una á Íslands­banka og segir það rangt að hann hafi þurft að fara yfir hvert og eitt til­boð í útboð­inu.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra tjáir sig um sölu rík­is­ins á hlut í Íslands­banka á Facebook í dag en stjórn­ar­and­staðan hefur gagn­rýnt söl­una harð­lega.

Hann bendir í færsl­unni á að margt hafi verið sagt um síð­ustu sölu hluta í Íslands­banka. „Fyrst vil ég segja að það skiptir yfir­leitt máli að horfa á stóru mynd­ina: Ríkið hefur fengið 108 millj­arða fyrir hluti í banka sem það fékk í hend­urnar án end­ur­gjalds – og á enn 42,5% hlut. Hlut­hafar eru yfir 15 þús­und, en langstærstir eru líf­eyr­is­sjóðir og aðrir stórir lang­tíma­fjár­festar. Þetta er jákvætt og í sam­ræmi við það sem lagt var upp með.

Það er mik­il­vægt og eðli­legt að Rík­is­end­ur­skoðun skoði spurn­ingar sem er mjög skilj­an­legt að hafa vaknað síð­ustu vikur. Það er hins vegar líka mik­il­vægt að leið­rétta aug­ljósar rang­færslur stjórn­ar­and­stöð­unnar, en þar er af nógu að taka síð­ustu daga,“ skrifar hann.

[adspot]

Ekki hægt að selja pabba sínum hluta í ríkiseign og sitja áfram eins og ekkert hafi í skorist

Vísar Bjarni í gagn­rýni þing­manna Pírata og Sam­fylk­ing­ar­innar en Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata skrif­aði á Facebook í gær að fjár­mála­ráð­herra bæri loka­á­byrgð á því hverjir urðu kaup­endur í ferl­inu.

„Annað hvort vissi Bjarni að pabbi sinn, auk ann­arra úr hrun­inu, voru að kaupa í bank­anum og varð þar með van­hæfur til að taka þessa ákvörðun, út af fjöl­skyldu­tengslum, eða að hann vissi það ekki og fór þar með gegn lög­unum. Miðað við þær til­kynn­ingar sem hafa komið frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu þá var það hið síð­ara. Þar segir að Bjarni hafi ekki skoðað til­boðin neitt en honum ber að gera það sam­kvæmt lög­unum og því hefur hann brotið lög.

Það er ekki hægt að selja pabba sínum hluta í rík­is­eign og sitja svo bara áfram eins og ekk­ert hafi í skorist,“ skrif­aði hún.

Bjarni er ekki sam­mála þessu, að hann hafi þurft að fara yfir hvert og eitt til­boð, sam­þykkja þau eða hafna. „Þetta er alrangt,“ skrifar hann.

„Fyrst má benda á hið aug­ljósa; í nýaf­stöðnu útboði voru til­boð á þriðja hund­rað og í frumút­boð­inu skiptu þau tug­þús­undum. Telja þing­menn­irnir raun­veru­lega að mark­mið lag­anna hafi verið að ráð­herra færi yfir hvert ein­asta til­boð og veldi eftir eigin höfði?“ spyr hann.

Ráðherra geti falið Bankasýslunni að annast endanlegan frágang vegna sölu eignarhluta

Bjarni segir að svarið við þessu þekki Sam­fylk­ingin og þing­mað­ur­inn Oddný Harð­ar­dóttir best, enda hafi Oddný mælt fyrir mál­inu sem fjár­mála­ráð­herra. Mark­miðið með lög­unum hafi verið að fela fram­kvæmd­ina sér­stakri rík­is­stofnun til að tryggja hlut­lægni við fram­kvæmd­ina. Hann telur að það sé fróð­legt að skoða fram­sögu­ræðu Oddnýjar við þetta til­efni en þar segir: „Í frum­varp­inu er lagt til að hlut­verk Banka­sýslu rík­is­ins við sölu­með­ferð verði meðal ann­ars að und­ir­búa sölu, leita til­boða í eign­ar­hlut, meta til­boð, ann­ast samn­inga­við­ræður við utan­að­kom­andi ráð­gjafa og vænt­an­lega kaup­endur og ann­ast samn­inga­gerð.“

Vísar hann enn­fremur í grein­ar­gerð­ina með frum­varp­inu þar sem segir að gert sé ráð fyrir að ráð­herra geti falið Banka­sýslu rík­is­ins að ann­ast end­an­legan frá­gang vegna sölu eign­ar­hluta og að sala hluta með útboði eða skrán­ing bréfa í kaup­höll sé ferli sem er frá­brugðið hefð­bund­inni til­boðs­sölu. „Sem dæmi er ekki um mat á ein­staka til­boðum eða eig­in­legar samn­inga­við­ræður við ein­staka kaup­endur að ræða þegar almennt útboð eða skrán­ing bréfa fer fram,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Ráð­herr­ann telur því að ekki þurfi að hafa mörg orð um að mál­flutn­ingur stjórn­ar­and­stæð­inga sé bein­línis rangur.

Er Bjarni að rugla saman eða vísvitandi að blekkja?

Oddný tjáir sig um málið í stöðu­upp­færslu á Facebook sem hún birti rétt í þessu. Þar segir hún að Bjarni sé „eitt­hvað að mis­skilja hlut­verk sitt og Banka­sýsl­unnar varð­andi sölu hluta rík­is­ins í Íslands­banka“.

„Í lög­unum um Banka­sýsl­una er gert ráð fyrir arms­lengd frá ráð­herra um rekstur bank­anna. Í lögum um sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í bönk­unum en ábyrgð og hlut­verk ráð­herra bein­línis skrifuð inn. Þar er engin arms­lengd. Fjár­mála­ráð­herr­ann hefur loka­orðið og þarf að sam­þykkja og skrifa undir kauptil­boðin.

Þessu tvennu virð­ist hann rugla saman nema að hann sé vís­vit­andi að reyna að blekkja okkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár