Matthías getur fengið yfirmannsstöðu hjá stofnun sem lýtur ráðherra Framsóknar

Fyrrr­ver­andi aðstoð­ar­maður tveggja ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins, Matthías Imsland, er einn af eft­ir­standi 12 umsækj­endum um yfir­manns­starf hjá Vinnu­mála­stofnun. Stjórn sjóðs­ins er skipuð af Ásmundi Einari Daðasyni félags­mála­ráð­herra og er stjórn­ar­for­mað­ur­inn fyrr­ver­andi fram­bjóð­andi Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík.

Matthías getur fengið yfirmannsstöðu hjá stofnun sem lýtur ráðherra Framsóknar
12 umsækj­endur boð­aðir í við­tal Matthías Imsland, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Eyglóar Harð­ar­dóttur og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, er einn af 12 umsækj­endum sem boð­aður var í við­tal um nýtt starf hjá Vinnu­mála­stofnun. Mynd: Pressphotos.biz/Geirix (Ásgeir Ásgeirsson)

Matthías Imsland, fjár­festir og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Eyglóar Harð­ar­dóttur og inn­an­búð­ar­maður í Fram­sókn­ar­flokknum, er einn af þeim 12 umsækj­endum sem kemur til greina sem yfir­maður yfir nýrri deild hjá Vinnu­mála­stofnun en 97 ein­stak­lingar sóttu um starfið. Nýja starfið heitir deild­ar­stjóri útlend­inga­deildar.

Stofn­unin lítur Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra úr Fram­sókn­ar­flokknum, sem skipar stjórn hennar og stjórn­ar­for­mann til fjög­urra ára í senn. Um þessar mundir er Ingvar Már Jónsson, flug­maður og odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík fyrir síð­ustu sveita­stjórn­ar­kosn­ingar, stjórn­ar­for­maður stofn­un­ar­innar. Ingvar Már og Matthías eru jafn­framt vinir.

Í sam­tali við Stundina segir Matthías Imsland aðspurður að hann vilji ekki tjá sig um málið. 

Samkvæmt heim­idum Stund­ar­innar fór Matthías í við­tal hjá Unni Sverr­is­dóttur, for­stjóra Vinnu­mála­stofn­unar, og Vilmari Pét­urs­syni mannauðs­stjóra í síð­ustu viku. Umsókn­ar­frestur um starfið rann út þann 12. des­em­ber síð­ast­lið­inn. 

Tengsl Matthíasar við Framsóknarflokkinn

Matthías hefur í gegnum tíð­ina fengið alls kyns …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár