Kostar líklega á bilinu 5,5 til 5,7 milljarða að niðurgreiða 5.000 rafbíla til viðbótar

Til stendur að lækka hámarks­end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts af raf­bílum úr 1,56 millj­ónum niður í 1,32 millj­ónir í lok þessa árs og nið­ur­greiða 5.000 bíla til við­bótar við þá 15 þús­und sem þegar hafði verið ákveðið að veita afslátt af.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Til stendur að auka fjölda þeirra raf­magns­bif­reiða sem geta hlotið ívilnun frá virð­is­auka­skatti úr 15 þús­und upp í 20 þús­und, en lækka fjár­hæð­ar­mörk skatta­af­slátts­ins úr 1,56 millj­ónum króna niður í 1,32 millj­ónir króna.

Kostn­aður rík­is­sjóðs við að fjölga þeim raf­bílum sem verða nið­ur­greiddir eins og stefnt er að verður lík­lega á bil­inu 5,5-5,7 millj­arðar króna, en þetta kemur fram í drögum að laga­frum­varpi frá Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem lögð voru fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda á laug­ar­dag.

Í frum­varps­drög­unum segir að ekki fáist annað séð en að „for­sendur séu að skap­ast fyrir sjálf­bærum hraða orku­skipt­anna“ og því sé komið að þeim tíma­punkti að stjórn­völd dragi úr stuðn­ingi sínum með því að lækka fjár­hæð­ar­mörk íviln­un­ar­innar fyrir raf­magns­bíla.

Hærri ívilnun í gildi út árið 2022

Samkvæmt því sem fram kemur í drög­unum er gert ráð fyrir að 15.000 bif­reiða mark­inu verði náð á síð­ari hluta þessa árs. Ákveðið hefur verið að fara þá leið að í stað þess að bíll númer 15.001 verði með lægri ívilnun muni núver­andi ívilnun verða í gildi 31. des­em­ber 2022. Það verður því ekki fyrr en um næstu ára­mót sem íviln­unin lækkar, óháð því hvernig gangur verður í raf­bíla­söl­unni.

„Að mæla fyrir um ákveðna loka­dag­setn­ingu stuðlar að meiri skýr­leika og fyr­ir­sjá­an­leika fyrir alla hlut­að­eig­andi aðila. Af þeim sökum er lagt til að gild­andi fjár­hæð­ar­mörk gildi til og með 31. des­em­ber 2022. Miðað við áætl­anir má gera ráð

fyrir að þær raf­magns­bif­reiðar sem komi til með að njóta íviln­unar sam­kvæmt gild­andi fjár­hæð­ar­mörkum verði þannig fleiri en 15.000 tals­ins,“ segir um þetta atriði í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum.

Einungis 26 prósent hafi farið yfir 1,32 milljóna endurgreiðslu

Í frum­varps­drög­unum segir að af þeim raf­magns­bílum sem fengu und­an­þágu frá virð­is­auka­skatti í fyrra hafi flestir verið á verð­bil­inu 4,5-5,5 millj­ónir króna og að af 4.501 raf­magns­bif­reiðum hafi þurft að greiða ein­hvern virð­is­auka­skatt af 527 bílum. Virð­is­auka­skattur hefur verið nið­ur­greiddur að fullu af bif­reiðum sem kosta upp að 6,5 millj­ónum króna án virð­is­auka­skatts.

Í 74 pró­sentum til­vika nam full nið­ur­fell­ing virð­is­auka­skatts við inn­flutn­ing raf­magns­bif­reiða svo lægri fjár­hæð en 1,32 millj­ónum króna. Samkvæmt frum­varps­drög­unum er gert ráð fyrir því að það verði áfram svo að mik­ill meiri­hluti raf­bíla­kaup­enda fái áfram virð­is­auka­skatt­inn felldan niður að fullu, eins og verið hefur, og að í til­felli dýr­ari bíl­ana muni kaup­endur að jafn­aði þurfa að greiða um 5 pró­sent virð­is­auka­skatt að jafn­aði.

Stefnt að því að slaufa ívilnunum í árslok 2023

Í frum­varps­drög­unum segir að nauð­syn­legt sé að halda áfram „stuðn­ingi við raf­magns­bif­reiðar í ein­hvern tíma í þeim til­gangi að styðja við mark­mið stjórn­valda varð­andi orku­skipti í bif­reiða­flot­anum og til að við­halda þeim góða árangri í nýskrán­ingu raf­magns­bif­reiða sem náðst hefur á síð­ustu miss­erum“.[links]

Gild­is­tími nið­ur­greiðslu­á­kvæð­is­ins hvað raf­magns­bif­reiðar varðar er hins vegar hafður óbreyttur, sem þýðir að íviln­unin mun falla á brott annað hvort þegar 20 þús­und bíla mark­inu er náð eða í árs­lok 2023, ef sá fjöldi bif­reiða mun ekki hafa náðst.

Bílar komnir á markað sem geti verið kostir á landsbyggðinni

Í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum segir að þróun í hönnun og fram­leiðslu raf­bíla sé hröð og að komar séu „á markað bif­reiðar sem nýt­ast til lengri akst­urs og geta því verið ákjós­an­legur kostur fyrir íbúa lands­byggð­ar­innar.“ Því er bætt við að bæði drægni þeirra og úrval hafi auk­ist til muna, auk þess sem verðið hafi farið lækk­andi.

„Sam­keppn­is­hæfni raf­magns­bif­reiða gagn­vart bif­reiðum sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti hefur því auk­ist til muna sem end­ur­spegl­ast í auknum áhuga almenn­ings á þeim líkt og tölur um fjölda raf­magns­bif­reiða sem hlut­fall af nýskráðum bif­reiðum bera með sér,“ en það hlut­fall náði yfir 30 pró­sent árið 2021. Hlut­fallið af nýskráðum bif­reiðum á fyrstu tveimur mán­uðum þessa árs var svo 39 pró­sent af öllum seldum bif­reiðum.

Raf­magns­bif­reiðar eru þó enn sem komið er ein­ungis um 4,8 pró­sent af öllum skráðum bif­reiðum í umferð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár