Stóru breytingarnar snúast um gjöldin af bílunum og akstrinum

Fjár­mála­ráð­herra segir að það stefni að óbreyttu í óefni hvað varðar tekju­öflun hins opin­bera af öku­tækjum og akstri. Jafna þurfi byrðar og láta raf­bíla­eig­endur greiða meira. Hækkun kolefn­is­gjalds kemur til greina, en gæta þarf að jafn­ræði.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra kynnir nýtt fjárlagafrumvarp í morgun.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnir nýtt fjár­laga­frum­varp í morgun. Mynd: Bára Huld Beck

Stærstu skatt­kerf­is­breyt­ing­arnar sem eru framundan á kjör­tíma­bil­inu varða þau gjöld sem eru tekin af bíl­eig­endum og bíla­um­ferð. Ýmsir kostir eru í þeirri stöðu, að sögn Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra.

Hann lýsir því í sam­tali við Kjarnann að það sé að verða algjör grund­vall­ar­breyt­ing á tekju­kerfum rík­is­ins hvað sam­göngur varðar, sem leiða af því að fólk fari nú í minna mæli á bens­ín­stöðv­arnar. Fleiri eru á raf­bílum og það þarf að byrja að láta þá borga meira, með ein­hverjum hætti.

Draga á úr íviln­unum fyrir raf­bíla og tengilt­vinn­bíla án þess þó að það ógni þró­un­inni sem er að verða í orku­skiptum í sam­göngum. Orku­skiptin eru komin til að vera og því fylgir að eld­neyt­is­gjöld, sem hafa verið mik­il­vægur tekju­stofn rík­is­ins, eru „að hverfa smám saman,“ segir Bjarni.

„Án breyt­inga á kerf­unum munu tekj­urnar halda áfram að falla og þar stefnir í óefni. Þannig að þar erum við að fara að vinna að grund­vall­ar­kerf­is­breyt­ingu á tekju­öflun rík­is­ins vegna öku­tækja og sam­gangna,“ segir fjár­mála­ráð­herra.

39,8 milljarða tekjur af ökutækjum og eldsneyti

Gjöld af öku­tækjum og elds­neyti munu nema 39,8 millj­örðum króna á næsta ári, sam­kvæmt fjár­mála­frum­varpi árs­ins 2022, eða um 5 pró­sentum af heild­ar­tekjum rík­is­sjóðs.

Frá fyrri fjár­lögum er nú gert ráð fyrir því að tekjur af vöru­gjöldum af öku­tækjum og bens­íni drag­ist saman um sam­tals 1,7 millj­arða króna og er það í takt við áætl­aðar tekjur rík­is­ins af þessum þáttum sam­kvæmt áætlun árs­ins 2021.

Búist er við að í ár verði vöru­gjöld af öku­tækjum 300 millj­ónum lægri en ráð­gert var í fjár­laga­frum­varpi árs­ins og tekjur af vöru­gjöldum af bens­íni verði sömu­leiðis 1,6 millj­örðum lægri en ráð­gert var.

[adspot]

Í fjár­mála­frum­varp­inu segir að bæði sé gert ráð fyrir auk­inni einka­neyslu og hag­vexti á næsta ári, sem muni end­ur­spegl­ast í auk­inni end­ur­nýjun bíla­flot­ans hjá heim­ilum og fyr­ir­tækjum – og sér í lagi bíla­leigum. Á móti vega „örar tækni­breyt­ingar með til­komu nýorku­bif­reiða og spar­neytn­ari véla,“ til lækk­unar tekna sam­kvæmt áætl­unum fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Um útfærslu nýrra tekju­öfl­un­ar­leiða af bíla­um­ferð segir Bjarni að hann hafi verið með inn­an­húss­hóp í fjár­mála­ráðu­neyt­inu að skoða málin. „Hann hefur lokið störfum og nú tekur við að taka stærri skref, stóru skrefin,“ segir Bjarni.

Þarf að koma á einhverri gjaldtöku í vegakerfinu

Aðspurður seg­ist hann telja að ein­hvers­konar gjald fyrir hvern ekinn kíló­meter sé það sem á end­anum muni koma í stað­inn fyrir þá dvín­andi tekju­stofna sem eru nú til staðar. „Ég held að svona í langri fram­tíð endum við þar. Í milli­tíð­inni þurfum við að fara að jafna byrð­unum betur en við gerum í dag. Við ætlum að draga úr íviln­unum og hvöt­unum án þess að fórna mark­mið­inu um orku­skiptin. Ég held að það sé alveg sann­gjarnt að segja að við höfum gengið mjög langt, til dæmis fyrir raf­magns­bíla, í því að skapa íviln­anir. Það á bæði við um inn­flutn­ing en líka fyrir notk­un­ina. Við tökum hvergi gjald fyrir notkun á vega­kerf­inu og það verður að breyt­ast,“ segir Bjarni.

Bjarni segir að það þurfi að koma á ein­hverju fyr­ir­komu­lagi fyrir gjald­töku í vega­kerf­inu. „Þar koma margir kostir til greina, eins og við sjáum bara í öðrum löndum. Það er hægt að lesa af mælum, það er hægt að vera með toll­hlið, það er hægt að nota sjálf­virkni­lausnir og fleira. Þetta er eitt­hvað sem við ætlum að taka til skoð­unar og hrinda í fram­kvæmd,“ segir Bjarni.

Fólk í dreifðari byggðum þurfi að eiga raunhæfa undankomuleið

Spurður sér­stak­lega út í það hvort til greina komi að hækka kolefn­is­gjald enn frekar segir Bjarni að gjaldið hafi verið hækkað í tvígang á síð­asta kjör­tíma­bili, en það sé þó ekki hægt að „úti­loka það að við höldum áfram að beita bæði priki og gul­rót.“

„En stóra spurn­ingin er sú, á hvaða tíma­punkti er hleðslu­stöðvanetið orðið það þéttriðið að það sé sann­gjarnt að fólk sem býr í dreifð­ari byggðum hafi val­kost á að koma sér undan kolefn­is­gjald­inu? Ef við höfum ekki slíkan val­kost, annað hvort ekki með öku­tæki á sann­gjörnu verði eða með ríkt aðgengi að hleðslu­stöðvum, þá erum við að beita gjald­inu í of ríku mæli án þess að það sé ein­hver und­an­komu­leið fyrir þau svæði. Það er svona þetta sem ég er að hugsa um.“

Hann bætir því við að það séu þó engin áform um að draga úr kolefn­is­gjald­inu, þvert á móti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár