Ákvæði hegningarlaga misnotuð til að hafa kælingaráhrif á frjálsa fjölmiðlun

Þing­maður Pírata telur ákvæði almennra hegn­ing­ar­laga, sem tóku breyt­ingum í fyrra í þeim til­gangi að verj­ast staf­rænu kyn­ferð­is­of­beldi, vera mis­notuð til að hafa kæl­ing­ar­á­hrif á frjálsa fjöl­miðlun á Íslandi.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, segir lög­regl­una á Akureyri hunsa skýran vilja lög­gjafans með því að nýta 228. og 229. grein almennra hegn­ing­ar­laga til að gera blaða­menn að sak­born­ingum. Vakti hún athygli á þessu á þingi í dag þar sem hún rifj­aði upp að fyrir rétt rúmu ári stóð hún í ræðu­stól og kynnti álit alls­herjar- og mennta­mála­nefndar vegna breyt­inga á almennum hegn­ing­ar­lögum.

„Það var að setja blátt bann við staf­rænu kyn­ferð­is­of­beldi inn í hegn­ing­ar­lögin okkar. Þetta var gríð­ar­lega mik­il­vægt skref, skref sem var stigið eftir mikla gras­rót­ar­bar­áttu, eftir Free the nipple, eftir Me Too, eftir mikið ákall í sam­fé­lag­inu eftir því að kyn­ferð­is­leg frið­helgi yrði vernduð, einnig í hinum staf­ræna heimi. Ég var gríð­ar­lega stolt af því að hafa fengið að fá að mæla fyrir sam­eig­in­legu nefnd­ar­á­liti allrar alls­herjar- og mennta­mál­nefndar til þess að bregð­ast við þessum ófögn­uði sem staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi sann­ar­lega er,“ sagði Þór­hildur Sunna.

Grein­arnar sem Þór­hildur Sunna vísar í eru 228. og 229. grein almennra hegn­ing­ar­laga, en þær laga­greinar eru undir í rann­sókn lög­reglu á máli sem teng­ist umfjöll­unum sem Kjarninn og Stundin birtu síð­asta vor um svo­kall­aða „skæru­liða­deild“ Samherja.

Taldi nefndina hafa tekið fyrir mögulega misnotkun á lögunum

Meðal þeirra breyt­inga sem gerðar voru var upp­færsla á frið­helgiskafla lag­anna. „Og það var ákveðið að til þess að vernda betur frið­helgi einka­lífs­ins hjá borg­urum þessa lands skyldi brot á þessum ákvæðum jafn­vel varða opin­bera ákæru, sem það hafði ekki gert áður. Allt var þetta ætlað til að vernda kyn­ferð­is­lega frið­helgi fólks vegna mik­ils ákalls í sam­fé­lag­inu,“ sagði Þór­hildur Sunna.

[links]Með breyt­ing­unum var 229. grein meðal ann­­ars breytt þannig að hún hljóðar nú svona: „Hver sem í heim­ild­­ar­­leysi verður sér úti um aðgang að gögnum eða for­­ritum ann­­arra sem geymd eru á tölvu­tæku formi skal sæta sektum eða fang­elsi allt að 1 ári.“

Í áliti alls­herj­­­ar- og mennta­­mála­­nefndar vegna þeirra breyt­inga sagði að ákvæðið eigi ekki við „þegar hátt­­semin er rétt­læt­an­­leg með vísan til almanna- eða einka­hags­muna. Er hér m.a. litið til þess að ákvæðið hamli ekki störfum og tján­ing­­ar­frelsi fjöl­miðla, m.a. í þeim til­­vikum þegar þeir fá aðgang að gögnum eða for­­ritum sem hefur verið aflað í heim­ild­­ar­­leysi og geti varðað almanna­hags­mun­i.“ Full­trúar allra flokka í nefnd­inni skrif­uðu undir nefnd­ar­á­litið.

Þór­hildur Sunna seg­ist hafa talið á sínum tíma að nefndin hafi tekið fyrir það sem er að raun­ger­ast nú, það er að und­an­skilja fjöl­miðla frá þessu ákvæði. „Nú hefur lög­reglan á Akureyri ákveðið að hunsa þennan skýra vilja lög­gjafans. Það hryggir mig og skemmir fyrir því stolti sem ég fann þegar ég stóð hér að mæla fyrir þessu nefnd­ar­á­liti,“ sagði Þór­hildur Sunna á Alþingi í dag.

Lætur reyna á lögmæti aðgerða lögreglu

Yfir­heyrslur yfir blaða­mönn­unum fjórum: Þórði Snæ Júl­í­us­syni, rit­stjóra Kjarnans, Arnari Þór Ing­ólfs­syni, blaða­manni Kjarnans, Aðal­steini Kjart­ans­syni, blaða­manni Stund­ar­innar, og Þóru Arn­órs­dóttur, rit­stjóra Kveiks, áttu að hefj­ast í vik­unni. Öll munu þau fá stöðu sak­born­ings við yfir­heyrsl­urnar vegna meintra brota á frið­helgi einka­lífs­ins.

Yfir­heyrsl­unum hefur hins vegar verið frestað eftir Aðal­steinn krafð­ist úrskurðar Hér­aðs­dóms Norð­ur­lands Eystra um lög­mæti aðgerð­anna.

Tveir þeirra blaða­­manna sem eru með stöðu sak­­born­ings í rann­­sókn lög­­regl­unnar á Norð­­ur­landi eystra starfa á Kjarn­an­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár