Yfirheyrslum yfir blaðamönnum frestað

Lög­reglan hefur ákveðið að fresta yfir­heyrslum yfir blaða­mönnum Kjarnans, Stund­ar­innar og RÚV vegna meintra brota á lögum um frið­helgi einka­lífs eftir að einn þeirra krafð­ist úrskurðar Hér­aðs­dóms Norð­ur­lands Eystra um lög­mæti aðgerð­anna.

Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður Stundarinnar.
Aðal­steinn Kjart­ans­son, blaða­maður Stund­ar­innar. Mynd: Skjáskot

Blaða­menn Kjarnans, Stund­ar­innar og RÚV verða ekki yfir­heyrðir í upp­hafi vik­unnar vegna meintra brota á lögum um frið­helgi einka­lífs­ins eins og til stóð, en lög­reglan hefur ákveðið að fresta yfir­heyrsl­unum þangað til að Hér­aðs­dómur Norð­ur­lands Eystra úrskurði um lög­mæti þeirra.

Þórður Snær Júl­í­us­son rit­stjóri Kjarn­ans og Arnar Þór Ing­ólfs­son, blaða­maður mið­ils­ins, hafa fengið stöðu sak­born­ings við rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi, sem er stað­sett á Akur­eyri, á meintu broti á frið­helgi einka­lífs­ins. Aðal­steinn Kjart­ans­son, blaða­maður á Stund­inni, og Þóra Arn­órs­dóttir, rit­stjóri Kveiks, eru sömu­leiðis með stöðu sak­born­ings í mál­inu og höfðu einnig verið boðuð í yfir­heyrslu vegna máls­ins.

RÚV greindi frá því fyrr í dag að Aðal­steinn hafi skilað kröfu um úrskurð um lög­mæti aðgerða lög­regl­unnar til Hér­aðs­dóms Norð­ur­lands Eystra í morgun, en lög­reglan fær frest til að skila grein­ar­gerð um málið. Á Twitter-síðu sinni greindi Aðal­steinn svo frá því að yfir­heyrsl­unni gegn sér hafi verið frestað þangað til að nið­ur­staða feng­ist í málið. Arnari Þór blaða­manni Kjarnans hefur einnig verið tjáð að hann verði ekki yfir­heyrður á þriðju­dag, eins og til stóð.

Hörð viðbrögð við ákvörðun lögreglu

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, sagði það „óskilj­an­legt og í raun mjög alvar­legt að lög­reglan á Norð­ur­landi eystra hafi ákveðið að kalla blaða­menn til yfir­heyrslu vegna þess eins að skrif­aðar voru fréttir upp úr gögnum sem þeir höfðu undir höndum.“ Sömu­leiðis hefur Félag frétta­manna lýst yfir áhyggjum og undrun yfir aðgerðum lög­reglu.

Íslands­deild Transparency International hefur einnig gefið út yfir­lýs­ingu vegna máls­ins, en þar segir að lög­reglan sendi hættu­leg skila­boð út í sam­fé­lagið með ákvörðun sinni að yfir­heyra blaða­menn fyrir skrif sín. Sams konar yfir­lýs­ingar hafa einnig komið frá Drífu Snædal for­seta ASÍ og stjórn Samtaka kvenna um nýja stjórn­ar­skrá.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, hefur á hinn bóg­inn gagn­rýnt fjöl­miðlaum­fjöllun um þessar aðgerðir. Í Facebook færslu sem hann birti í síð­ustu viku segir hann að svo virð­ist sem önnur vinnu­brögð og lög­mál eigi við hjá fjöl­miðlum í umfjöll­unum um lög­reglu­mál þar sem blaða­menn eru undir en hjá almennum borg­urum. Hann spurði einnig hvort fjöl­miðla­menn væru of góðir til að mæta og svara spurn­ingum lög­reglu eins og almennir borg­arar og hvernig það gæti talist alvar­legt mál að lög­regla óski eftir því að þeir gefi skýrslu.

Blaða­manna­fé­lagið og Félag frétta­manna svör­uðu svo þessum spurn­ingum Bjarna í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu. Í henni bentu fag­fé­lögin á að vissu­lega væru blaða- og frétta­menn sem ein­stak­lingar jafnir öðrum að lög­um, t.d. ef þeir eru grun­aðir um ölv­un­arakst­ur, fjár­svik eða ofbeld­is­brot. „Um störf þeirra gegnir hins vegar öðru máli. Um þau gilda önnur lög og reglur en um önnur störf, vegna hlut­verks þeirra.“

Svandís Svav­ars­dóttir var spurð um ummæli Bjarna í morg­un­út­varpi Rásar 1 í vik­unni, en þar sagði hún það vera „mjög þungt skref“ að blaða­menn séu komnir með rétt­ar­stöðu sak­born­ings. Einnig sagði hún að það skipti „gríð­ar­lega miklu máli“ í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi að fjöl­miðlar séu kjark­aðir- „ekki síst þegar kemur að því að benda á spill­ingu.“

Tveir þeirra blaða­manna sem eru með stöðu sak­born­ings í rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra starfa á Kjarn­an­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár