Icelandair vill koma upp milljarða bónuskerfi fyrir lykilstarfsmenn svo þeir fari ekki annað

Samkvæmt til­lögu sem lögð verður fyrir aðal­fund Icelandair Group á hópur lyk­il­starfs­manna að geta fengið hluta­bréf í kaupauka á næstu árum. Núver­andi virði þeirra hluta sem á að gefa út er um tveir millj­arðar króna.

Stjórn Icelandair Group vill að sett verði á fót hvata­kerfi fyrir fram­kvæmda­stjórn félags­ins og valda lyk­il­starfs­menn. Samkvæmt til­lögu stjórnar sem lögð verður fyrir næsta aðal­fund félags­ins snýst kerfið um að hóp­ur­inn muni geta fengið allt af 25 pró­sent af árs­launum sínum í bónus í formi kaup­réttar á hlutum í Icelandair Group. Fyr­ir­hugað er að gefa út 250 milljón hluti í ár vegna kerf­is­ins og alls 900 milljón hluti á þriggja ára tíma­bili. Miðað við mark­aðsvirði Icelandair Group í dag er virði þeirra hluta sem greiða á út sem kaupauka um tveir millj­arðar króna. Hægt verður að inn­leysa umrædda kaup­rétti að þremur árum liðnum.

Þetta kemur fram í dag­skrá aðal­fundar Icelandair Group, en aðal­fund­ur­inn fer fram 3. mars næst­kom­andi og var birt í dag.

Þar segir að mark­miðið með inn­leið­ingu­hvata­kerf­is­ins sé meðal ann­ars sá að draga úr líkum á að lyk­il­starfs­menn yfir­gefi Icelandair Group með litlum fyr­ir­vara.

Töpuðu 13,7 milljörðum í fyrra

Icelandair Group tap­aði 13,7 millj­­­örðum króna á árinu 2021 miðað við gengi krónu í lok þess árs en félagið gerir upp í Banda­­­ríkja­döl­­­um. Þar af tap­aði félagið 5,1 millj­­­arði króna á síð­­­­­ustu þremur mán­uðum árs­ins.

Rekstr­­­ar­tap á síð­­­asta ári var 17,7 millj­­­arðar króna, en end­an­­­legt tap dróst saman vegna þess að aðrar tekjur voru jákvæð­­­ar. Þar á meðal voru sala eigna, í Iceland Travel og Icelandair Hotels, og tekju­­­færsla vegna reikn­aðra vaxta á vaxta­­­lausri frestun á greiðslu skatta.

[adspot]Tap Icelandair Group á árinu 2020 var 51 millj­­­­arður króna, árið 2019 tap­aði það 7,8 millj­­­­arðar króna og á árinu 2018 var tapið um 6,8 millj­­­­arðar króna. Því hefur sam­­­­stæðan tapað yfir 79 millj­­­­örðum króna á síð­­­­­­­ustu fjórum árum.

Í skýrslu til­nefn­inga­nefndar Icelandair Group, sem var birt í Kaup­höll Íslands á mánu­dag, er lagt til að stjórn félags­ins verði áfram skipuð sömu fimm ein­stak­lingum eftir næsta aðal­fund. Þar segir einnig að það sé við­var­andi áhætta fyrir félagið að lyk­il­starfs­menn hætti þar sem þeir fá ekki nægi­lega vel greitt fyrir störf sín, en þrír úr fram­kvæmda­stjóri Icelandair Group hafa hætt störfum frá síð­asta aðal­fundi. Í við­tölum sem nefndin tók við stjórn­endur og stjórn­ar­menn í félag­inu kom fram að þeir teldu þörf á „sterk­ari varð­veislu­á­ætlun ásamt end­ur­skoð­uðu starfs­kjara­fyr­ir­komu­lagi æðstu stjórn­enda“.

Laun forstjóra hækkuðu um næstum 50 prósent

Einn lyk­il­mann­anna sem myndi fá kaupauka- og kaup­rétt­ar­greiðslur ef bónus­kerfið verður sam­þykkt á kom­andi aðal­fundi er Bogi Níls Bogason, for­stjóri Icelandair Group.

Kjarn­inn greindi frá því í vik­unni að ​hann hafi fengið 518 þús­und Banda­­ríkja­dali í laun og hlunn­indi á síð­­asta ári. Á árs­loka­­gengi árs­ins 2021 eru það 67,5 millj­­ónir króna eða 5,6 millj­­ónir króna á mán­uði. Til við­­bótar fékk Bogi Nils 119,6 þús­und Banda­­ríkja­dali í líf­eyr­is­greiðsl­­ur, eða 15,6 millj­­ónir króna á ofan­­greindu gengi. Það þýðir að laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­greiðslur hans á síð­­asta ári voru sam­tals 83,1 millj­­ónir króna, eða rúm­­lega 6,9 millj­­ónir króna að með­­al­tali á mán­uð­i.

[links]Laun Boga hækk­­uðu umtals­vert milli ára. Hann var með 355 þús­und Banda­­ríkja­dali í laun á árinu 2020 og fékk þá 76 þús­und Banda­­ríkja­dali í líf­eyr­is­­sjóðs­greiðslur frá félag­inu. Þegar þessar tölur eru umreikn­aðar í íslenskar krónur á árs­loka­­gengi síð­­asta árs þýða þær að laun og hlunn­indi Boga voru 46,3 millj­­ónir króna á árinu 2020, eða tæp­­lega 3,9 millj­­ónir króna á mán­uði, og líf­eyr­is­­sjóðs­greiðsl­­urnar alls 9,9 millj­­ónir króna. Sam­tals voru laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­­sjóðs­greiðslur Boga á árinu 2020 því 56,2 millj­­ónir króna miðað við árs­loka­­gengi 2021, eða 4,7 millj­­ónir króna á mán­uð­i.

Laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­­sjóðs­greiðslur Boga hækk­­uðu því um 48 pró­­sent í Banda­­ríkja­dölum talið milli ára.

Kjarn­inn sendi fyr­ir­­spurn til Icelandair Group vegna máls­ins og óskaði eftir útskýr­ingum á launa­hækkun for­­stjóra. Í svari upp­­lýs­inga­­full­­trúa félags­­ins sagði að breyt­ing­una megi „lang­­mestu leyti rekja til þess að á árinu 2020 tók for­­stjóri á sig 30 pró­­sent launa­­lækkun stærstan hluta árs­ins. Þess má geta í þessu sam­hengi að árs­­reikn­ingur félags­­ins er í USD en öll laun á Íslandi, þ.m.t. for­­stjóra eru greidd í íslenskum krón­­um. Með­­al­­gengi íslensku krón­unnar gagn­vart USD styrkt­ist á milli ára og ýkir það hækk­­un­ina í árs­­reikn­ingn­­um.“

Gengi íslensku krón­unnar gagn­vart Banda­­ríkja­­dal veikt­ist um 2,5 pró­­sent á síð­­asta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár