Icelandair Group hefur tapað næstum 80 milljörðum á fjórum árum

Stærsta flug­fé­lag lands­ins tap­aði yfir 13 millj­örðum króna á síð­asta ári. Það skuldar yfir 30 millj­arða króna í flug­ferðum sem búið er að borga fyrir en sem hafa ekki verið farnar.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group
Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group Mynd: Skjáskot

Icelandair Group tap­aði 13,7 millj­örðum króna á árinu 2021 miðað við gengi krónu í lok þess árs en félagið gerir upp í Banda­ríkja­dölum. Þar af tap­aði félagið 5,1 millj­arði króna á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins. Elds­neyt­is­verð á síð­asta árs­fjórð­ungi árs­ins var að með­al­tali tólf pró­sent hærra en á þriðja árs­fjórð­ungi og 91 pró­sent hærra en á fjórða árs­fjórð­ungi árið á undan og hafði þar af leið­andi umtals­verð áhrif á afkomu Icelandair Group. EBIT, afkoma félags­ins fyrir fjár­magns­gjöld og skatta á fjórða árs­fjórð­ungi batn­aði veru­lega milli ára og var sú besta frá árinu 2016.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands vegna upp­gjörs síð­asta árs sem birt var í gær­kvöldi.

Rekstr­ar­tap á síð­asta ári var 17,7 millj­arðar króna, en end­an­legt tap dróst saman vegna þess að aðrar tekjur voru jákvæðar. Þar á meðal voru sala eigna, í Iceland Travel og Icelandair Hotels, og tekju­færsla vegna reikn­aðra vaxta á vaxta­lausri frestun á greiðslu skatta.

Icelandair flutti 1,5 millj­ónir far­þega í milli­landa- og inn­an­lands­flugi á árinu 2021 og jók fram­boð í 65 pró­sent af því sem það var 2019.

Mikið tap á síðustu árum

Tap Icelandair Group á árinu 2020 var 51 millj­arður króna, árið 2019 tap­aði það 7,8 millj­arðar króna og á árinu 2018 var tapið um 6,8 millj­arðar króna. Því hefur sam­stæðan tapað yfir 79 millj­örðum króna á síð­ustu fjórum árum.

[adspot]Lausa­fjár­staða Icelandair Group í lok árs 2021 var 56,7 millj­arðar króna miðað við árs­loka­gengi Banda­ríkja­dals. Þar af voru hand­bært fé og mark­aðs­verð­bréf upp á 34,3 millj­arðar króna. Til við­bótar hefur Icelandair Group aðgengi að lána­línum upp á 22,4 millj­arða króna. Þar af er lána­lína upp á 15,6 millj­arða króna hjá Íslands­banka og Lands­bank­anum sem íslenska ríkið ábyrgist að 90 pró­sent leyti. Ekkert hefur verið dregið á umræddar lána­línur.

Tvær hlutafjáraukningar í faraldrinum

Icelandair Group fór tví­vegis í hluta­fjár­aukn­ingu eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Félagið safn­aði alls 23 millj­örðum króna í útboði sem fór fram í sept­em­ber 2020, en það hefur átt í miklum rekstr­ar­vanda um ára­bil sem jókst veru­lega þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn reið yfir.

Icelandair Group gerði svo bind­andi sam­komu­lag við banda­ríska fjár­fest­ing­ar­sjóð­inn Bain Capital um að hann keypti nýtt hlutafé í flug­fé­lag­inu í fyrra­sumar. Sam­kvæmt sam­komu­lag­inu greiddi Bain Capital 8,1 millj­arð króna og eign­aðist fyrir vikið 16,6 pró­sent hlut í Icelandair Group. Bain Capital átti 15,7 pró­sent hlut í Icelandair Group um síð­ustu ára­mót og var lang stærsti eig­andi félags­ins.

Þrátt fyrir mik­inn tap­rekstur hefur hluta­bréfa­verð í Icelandair Group rúm­lega tvö­fald­ast frá því að hluta­bréfa­út­boðið í sept­em­ber 2020 fór fram. Hlut­hafar í árs­lok voru 15.287 og fjölg­aði um 1.779 í fyrra.

Reikna sér tekjur af frestuðum skattgreiðslum

Í upp­gjöri Icelandair Group kemur fram að það hafi gefið út inn­eignir, gjafa­bréf eða flug­punkta til við­skipta­vina sinna fyrir alls rúm­lega 259 millj­ónir dala, alls 33,7 millj­arða króna miðað við árs­loka­gengi Banda­ríkja­dals.

Það þýðir að félagið hafi fengið greiðslu fyrir flug að þeirri upp­hæð sem það hefur ekki getað flogið hingað til, en mun þurfa að gera til að standa við gerðar skuld­bind­ingar án þess að fá neinar nýjar tekjur á móti.

Sú upp­hæð hækk­aði úr 24,4 millj­örðum króna í lok árs 2020, eða um 9,3 millj­arð króna á síð­asta ári.

Upp­­hæðin sem Icelandair hefur gefið út í inn­­­eignir sam­svarar tæp­lega 60 pró­sent af öllu lausafé félags­ins í lok síð­asta árs.

Icelandair Group hefur líka nýtt sér úrræði stjórn­valda um að fresta skatt­greiðslum og trygg­ing­ar­gjaldi sem félagið hefur dregið af starfs­fólki. Heild­ar­upp­hæðin sem félagið hefur frestað greiðslu á er 9,3 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða 1,2 millj­arðar króna. Þessi lán vera enga vexti en Icelandair Group reiknar þann vaxta­kostnað sem félagið sparar sér til tekna upp á alls 365 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár