Spurði forsætisráðherra út í bréfið til Kára

Þing­maður Pírata spurði for­sæt­is­ráð­herra á þingi í dag hver til­gang­ur­inn með bréfi hennar til for­stjóra ÍE hefði verið og hvers vegna hún tjáði sig um afstöðu sína gagn­vart úrskurði Per­sónu­verndar við for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins sem úrskurð­ur­inn fjall­aði um.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata veltir fyrir sér til­gangi bréfa­skrifta Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra til Kára Stef­áns­sonar for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar (ÍE) en hún spurði í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag hvers vegna for­sæt­is­ráð­herra ákvæði að tjá sig um afstöðu sína gagn­vart úrskurði Per­sónu­verndar við for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins sem úrskurð­ur­inn fjall­aði um.

Katrín svar­aði og sagði meðal ann­ars að fram kæmi í bréfi hennar til Kára að það væri hlut­verk dóm­stóla að leggja mat á rétt­mæti ein­stakra úrlausna. „Það er að sjálf­sögðu bara það lagaum­hverfi sem við búum til og eðli­lega hlut­ast ráð­herra ekki til um slíka úrskurði.“

Þór­hildur Sunna byrj­aði fyr­ir­spurn sína á því að rifja upp grein Kára Stef­áns­sonar sem birt­ist á Vísi fyrir helgi þar sem hann gagn­rýndi nýlega úrskurði Per­sónu­verndar um vinnu­brögð Íslenskrar erfða­grein­ingar.

„Um þrjá úrskurði er að ræða en einn þeirra felur í sér að Íslensk erfða­grein­ing hafi brotið lög þegar hún safn­aði blóð­sýnum úr sjúk­lingum á Land­spít­ala án þess að leyfi Vís­inda­siða­nefndar lægi fyrir. Blóð­sýnin voru tekin úr inniliggj­andi sjúk­lingum á COVID-deild Land­spít­al­ans í kjöl­far þess að Íslensk erfða­grein­ing sótti um leyfi til Vís­inda­siða­nefndar en áður en leyfi nefnd­ar­innar fyrir sýna­tök­unni lá fyrir.

Kári er ósam­mála nið­ur­stöð­unni og útlistar ástæð­urnar fyrir því í fyrr­nefndri grein. En áhuga­verð­asti hluti grein­ar­innar sem Kári birtir er að með henni birt­ist einnig afrit af bréfi sem hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra skrif­aði honum þar sem hún virð­ist taka undir sjón­ar­mið Kára um að umræddur úrskurður sé rangur og segir meðal ann­ars að blóð­sýni hafi verið tekin að beiðni sótt­varna­læknis og með Land­spít­al­anum. Þó kemur fram í úrskurði Per­sónu­verndar að blóð­sýna­tök­una, sem stað­fest er að hafi farið fram, sé hvergi að finna í skrám Land­spít­al­ans og hún hafi þar af leið­andi einmitt ekki verið unnin með Land­spít­al­anum eins og hæstv. for­sæt­is­ráð­herra heldur fram og þar af leið­andi hljóti lög hafa verið brotin við fram­kvæmd sýna­tök­unnar,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Þór­hildur Sunna sagði enn fremur að stofn­anir sem gæta per­sónu­verndar borg­ar­anna ættu undir högg að sækja víðs vegar um heim á tímum kór­ónu­veirunnar. „Það er vegið að sjálf­stæði þeirra og réttur borg­ar­anna til frið­helgi einka­lífs hefur verið skertur veru­lega.“

Vekur það áhyggjur hjá þing­mann­inum að for­sæt­is­ráð­herra „virð­ist ætla að grafa undan sjálf­stæði jafn mik­il­vægrar stofn­unar og Per­sónu­verndar“ og spurði hún því Katrínu hvort hún hefði lesið úrskurði Per­sónu­verndar áður en hún sendi umrætt bréf til Kára Stef­áns­sonar og hvort hún hefði óskað eftir ein­hverjum gögnum eða skýr­ingum frá Per­sónu­vernd um úrskurð­ina áður en hún sendi umrætt bréf.

Ráðherra hlutist ekki til um úrskurði Persónuverndar

Katrín svar­aði og sagð­ist hafa lesið þennan úrskurð Per­sónu­verndar. Hún bætti því við að Per­sónu­vernd heyrði ekki undir hana.

„Í svari mínu við bréfi Kára Stef­áns­sonar kom fram að ráð­herra hlut­ast ekki til um úrskurði Per­sónu­verndar enda er hún sjálf­stæð stofnun. Hins vegar kom fram í svari mínu, og það er sam­kvæmt upp­lýs­ingum sótt­varna­læknis að hann hafði for­göngu um að óska eftir þess­ari rann­sókn. Hans upp­lýs­ingar voru þær að Land­spít­ali og Íslensk erfða­grein­ing væru að vinna að þessu sam­eig­in­lega og heil­brigð­is­ráðu­neytið hefur stað­fest þann skiln­ing við mig.

Þannig að mínar upp­lýs­ingar eru þær að rann­sóknin var unnin að beiðni sótt­varna­læknis til að vera grund­völlur ákvarð­ana­töku hvað varðar sótt­varna­ráð­staf­anir í sam­vinnu Land­spít­ala og Íslenskrar erfða­grein­ingar. Þetta hef ég eftir sótt­varna­lækni og heil­brigð­is­ráðu­neyti, af því að mér fannst hátt­virtur þing­maður fyrst og fremst vera að spyrja um þessar heim­ildir mínar,“ sagði Katrín.

Sjálfstæði Persónuverndar hljóti að vera mikilvægur þáttur í lýðræðissamfélagi

Þór­hildur Sunna kom aftur í pontu og sagði að fram kæmi í bréf­inu sem Kári birti að um bréfa­skipti væri að ræða milli for­sæt­is­ráð­herra og hans – og að Katrín hefði aug­ljós­lega sent Kára Stef­áns­syni fleiri bréf en það sem hann birti vegna þess að þar birt­ist ekk­ert um sjálf­stæði stofn­un­ar­innar Per­sónu­verndar.

„En þar liggur hund­ur­inn einmitt graf­inn, virðu­legi for­seti. Sjálf­stæði Per­sónu­verndar hlýtur að vera mik­il­vægur þáttur í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi, að stofn­anir njóti þess trausts frá ráða­mönnum að þeir virði það að ef fólk er ósátt við nið­ur­stöðu Per­sónu­verndar sé hægt að fara með þá nið­ur­stöðu fyrir dóm­stóla.

Það kemur fram í þessum úrskurði Per­sónu­verndar, sem hæst­virtur ráð­herra seg­ist hafa lesið, að engin skrá sé til um þessi blóð­sýni hjá Land­spít­al­anum. En gott og vel. Ég velti fyrir mér hver til­gang­ur­inn var með þessu bréfi og hvers vegna for­sæt­is­ráð­herra ákveður að tjá sig um afstöðu sína gagn­vart úrskurði sjálf­stæðrar stofn­unar við for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins sem úrskurð­ur­inn fjall­aði um.“

„Algerlega ómetanlegt framlag“ ÍE í baráttu við COVID-19

Katrín svar­aði í annað sinn og sagði að vænt­an­lega birti Kári Stef­áns­son ekki bréfið allt en fram kæmi í því að það væri hlut­verk dóm­stóla að leggja mat á rétt­mæti ein­stakra úrlausna.

„Það er að sjálf­sögðu bara það lagaum­hverfi sem við búum til og eðli­lega hlut­ast ráð­herra ekki til um slíka úrskurði. Ég geri því ekki athuga­semdir við það að því leyti. En hins vegar fannst mér brýnt að það kæmi fram að þær aðstæður sem þarna var unnið undir voru að hér var far­aldur í upp­sigl­ingu sem við höfðum litla sem enga vit­neskju um. Við vorum öll að reyna að leggja okkar af mörkum og þar hefur Íslensk erfða­grein­ing komið gríð­ar­lega sterk inn í því að takast á við þennan far­aldur. Aðdrag­andi þess­arar rann­sóknar var með þeim hætti sem ég lýsti,“ sagði hún.

Telur hún það vera lyk­il­at­riði því að þar með mætti segja að þessi rann­sókn hefði orðið ákveð­inn grund­völlur fyrir áfram­hald­andi ákvarð­ana­töku um sótt­varna­ráð­staf­anir.

„Það var minn skiln­ingur á þessu og eins og ég segi þá byggi ég það ann­ars vegar á sam­tölum mínum við sótt­varna­lækni og síðan upp­lýs­ingum heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins um að Land­spít­al­inn hafi verið þátt­tak­andi í þess­ari rann­sókn með Íslenskri erfða­grein­ingu. Ég vil nota tæki­færið, herra for­seti, til að segja að það er alger­lega ómet­an­legt, fram­lag þessa fyr­ir­tækis í bar­áttu okkar við þennan sjúk­dóm,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár