Skæruliðadeild Samherja, ofsaveður og harðvítugar deilur um launakjör hjá Play

Þótt árið 2021 hafi ein­kennst af kór­ónu­veirunni og kosn­ingum til Alþingis voru önnur mál ofar í huga les­enda Kjarnans. Hér eru mest lesnu frétta­skýr­ingar árs­ins af inn­lendum vett­vangi á Kjarn­anum.

5. Samherji reyndi að hafa áhrif á niðurstöðu í formannskjöri í stéttarfélagi blaðamanna

Í maí birti Kjarninn röð frétta­skýr­inga sem byggðu á gögnum sem sýndu hvernig stjórn­end­ur, starfs­fólk og ráð­gjafar Sam­herja höfðu lagt á ráðin um að ráð­ast gegn nafn­greindum blaða­mönn­um, lista­mönn­um, stjórn­mála­mönn­um, félaga­sam­tökum og ýmsum öðrum til að hafa af þeim æruna, trú­verð­ug­leik­ann eða lífs­við­ur­vær­ið. Þessi veg­ferð var rekin áfram af hópi sem kall­aði sig „skæru­liða­deild Sam­herja“.

Ein frétta­skýr­ingin fjall­aði um það þegar Samherji reyndi að hafa áhrif á nið­ur­stöðu í for­manns­kjöri í stétt­ar­fé­lagi blaða­manna.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

4. 40 ár frá Engihjallaveðrinu 16. febrúar 1981

Í febr­úar voru fjöru­tíu ár eru liðin frá fár­viðri sem olli því að „þak­plötur fóru eins og skæða­drífa yfir Kópa­vog­inn“ og „nokkur hús í Aust­ur­bænum voru yfir­gefin þar sem þakið var að mestu horfið og rúður brotnar,“ eins og sagði í fréttum á þessum tíma. Engi­hjalla­veðrið svo­kall­aða olli einnig skemmdum á hund­ruðum bíla. Tjónið var gríð­ar­legt og víða sátu hús­eig­endur eftir með sárt ennið og óbætt tjón.

Einar Svein­björns­son fjall­aði ítar­lega um þetta ofsa­veður í frétta­skýr­ingu af þessu til­efni.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

3. 10 staðreyndir um deilur ASÍ og Play

Allt frá stofnun hefur flug­fé­lagið PLAY stefnt að því að halda launa­kostn­aði í lág­marki. Fjár­festa­kynn­ing sem stofn­endur PLAY birtu í lok árs 2019 inni­hélt áætl­anir um að greiða starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins allt að 37 pró­sent lægri laun en vori í boði hjá lággjalda­flug­fé­lag­inu WOW air. Félagið hélt því þó fram að allar reglur á íslenskum vinnu­mark­aði yrðu virtar, en að samið yrði við annað félag en Félag íslenskra flug­manna (FÍA) og Flug­freyju­fé­lag Íslands (FFÍ). Það félag heitir Íslenska flug­stétt­ar­fé­lagið (ÍF), sem Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) hefur kallað gult stétt­ar­fé­lag.

[adspot]Í maí­mán­uði ​​tók­ust ASÍ og PLAY harka­lega á um launa­kjör og birtu harð­orðar yfir­lýs­ingar í garð hvors ann­ars. Kjarninn tók af því til­efni saman tíu stað­reyndir um deil­urnar.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

2. Vildu nothæfan lista, afgreiða Ásgeir og safna upplýsingum um stjórn samtaka

Kjarn­inn greindi frá því í einni frétta­skýr­inga­röð­inni um „Skæru­liða­deild Samherja“ að skýr vilji hafi verið til staðar innan Sam­herja til að skipta sér að því hverjir myndu leiða lista Sjálf­stæð­is­flokks í heima­kjör­dæmi fyr­ir­tæk­is­ins, í ljós þess að fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Sam­herja, Kristján Þór Júl­í­us­son, var að ljúka ára­langri veru í því sæti. Í umfjöll­un­inni kom fram að starfs­menn Sam­herja voru með áætl­anir um víð­tæka gagna­söfnun um stjórn félaga­sam­taka sem berj­ast gegn spill­ingu og greint var frá því hvernig Sam­herji hugð­ist bregð­ast við gagn­rýni frá sitj­andi seðla­banka­stjóra á stríðs­rekstur fyr­ir­tæk­is­ins gegn nafn­greindu fólki.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

1. Skæruliðadeild Samherja sem vill stinga, snúa og strá svo salti í sárið

Fyrsta frétta­skýr­ingin í röð slíkra um „Skæru­liða­deild Samherja“ reynd­ist mest lesna frétta­skýr­ing árs­ins á Kjarn­anum. Hún birt­ist 21. maí og í henni var rakið hverjir áttu hlut að máli, hvernig sam­skipti þeirra við helstu stjórn­endur Sam­herj­a­sam­stæð­unnar fóru fram og hver til­gang­ur­inn með athæf­inu var.

Þar sást hversu mikið var í lagt til að safna upp­lýs­ingum um blaða­menn, reyna að gera þá ótrú­verð­uga og jafn­vel van­hæfa til að fjalla áfram um Samherja.

Ástæða þess að þetta stærsta sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tæki lands­ins stóð í þess­­ari veg­­ferð var sú að ofan­­greint fólk hafði annað hvort flett ofan af því sem Sam­herji hafði gert eða gagn­rýnt fram­­ferði fyr­ir­tæk­is­ins á opin­berum vett­vang­i.

Þetta ferli stóð yfir frá því að umfjöllun Kveiks, Stund­ar­inn­ar, Wikileaks og Al Jazeera um Sam­herja og atferli fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu birt­ist og þangað til að frétta­skýr­inga­röð Kjarnans fór í loftið. Sam­herji gaf í kjöl­farið út yfir­lýs­ingu þar sem stóð að ljóst væri að stjórn­­endur félags­­ins hefðu gengið „of lang­t“ í við­brögðum við „nei­­kvæðri umfjöllun um félag­ið“. Um mán­uði síð­ar, í júní, birt­ust svo heil­­síð­u­aug­lýs­ingar frá Sam­herja með fyr­ir­­sögn­inni „Við gerðum mis­­tök og biðj­umst afsök­un­­ar“.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár