Ómíkron „breiðist út á ljóshraða“

Neyð­ar­á­standi hefur verið lýst yfir í London vegna ómíkron, nýjasta afbrigðis kór­unu­veirunnar. Tvö ár eru um þessar mundir frá því að kór­ónu­veiran fór að láta á sér kræla en veiran er í hröðum vexti bæði í Evrópu og Banda­ríkj­unum.

Hertari sóttvarnaaðgerðum vegna ómíkron-afbrigðisins var mótmælt í London í dag.
Hertari sótt­varna­að­gerðum vegna ómíkron-afbrigð­is­ins var mót­mælt í London í dag. Mynd: EPA

Neyð­ar­á­standi hefur verið lýst yfir í London vegna ómíkron-afbrigð­is­ins sem hefur náð mik­illi útbreiðslu þar í landi. Tíu þús­und ný ómíkron-til­felli greindust í borg­inni í dag, til við­bótar við þau 15 þús­und til­felli sem greindust í gær. Dagleg smit eru um 90 þús­und í Bret­landi þessa dag­ana og er met í fjölda dag­legra smita slegið á hverjum degi.

Sadiq Khan, borg­ar­stjóri London, seg­ist vera gríð­ar­lega áhyggju­fullur vegna stöð­unnar og hafi neyð­ar­á­standi verið lýst yfir til að und­ir­strika alvar­leika far­ald­urs­ins á þessum tíma­punkti. 1.534 liggja inni á spít­ölum í London vegna veirunnar og eru það 28,6 pró­sent fleiri en fyrir viku. Hópur fólks kom saman í Westminster í dag til að mót­mæla frek­ari tak­mörk­unum og slös­uð­ust nokkrir lög­reglu­menn minni háttar í mót­mæl­unum.

Jean Castex, for­sæt­is­ráð­herra Frakk­lands, til­kynnti um hertar sótt­varna­reglur í Frakk­landi í gær­kvöldi og sagði hann ómíkron-afbrigðið „breið­ast út á ljós­hraða“ og var­aði við því að veiran verði lík­lega orðin ráð­andi í Frakk­landi í byrjun í upp­hafi næsta árs. Fleiri eru þeirrar skoð­unar, meðal ann­ars Kári Stef­áns­son, for­stjóri íslenskrar erfða­grein­ingar, sem sagði í sam­tali við RÚV í dag að gera megi ráð fyrir ómíkron-bylgju hér á landi í jan­úar. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni hefur ómíkron-afbrigðið greinst í að minnsta kosti 89 löndum.

[links]Yfirvöld víða í Evrópu hafa gripið til auk­inna tak­mark­ana í þeim til­gangi að hemja útbreiðslu veirunnar. Auknar tak­mark­anir hafa til dæmis tekið gildi í Þýska­landi, Hollandi og á Írlandi. Yfirvöld í Frakk­landi lok­uðu landa­mærum sínum að Bret­landi í gær­kvöldi fyrir ferða­mönnum og þeim sem ferð­ast vegna vinnu. Langar raðir mynd­uð­ust við Dover-höfn­ina og við lest­ar­stöðvar í gær­kvöldi vegna þessa. Castex til­kynnti jafn­framt um átak í bólu­setn­ingum sem mun hefj­ast á nýju ári. Nokkrar millj­ónir Frakka eru óbólu­settir og segir Castex það óásætt­an­legt þar sem það stofni lífi heillar þjóðar í hættu.

Í Hollandi hefur það komið til tals að setja á strangt útgöngu­bann. Mark Rutte, for­sæt­is­ráð­herra Hollands, tekur í sama streng og Castex þar sem hann telur að ómíkron-afbrigðið gæti orðið ráð­andi í jan­úar. Barir, veit­inga­staðir og flestar versl­anir hafa þurft að loka klukkan 17 en stefnt var að því að rýmka afgreiðslu­tíma fyrir jól. Nú hefur verið horfið frá því og munu gild­andi tak­mark­anir verða að minnsta kosti til 14. jan­úar.

Ómíkron eykur vanda sýnatöku í Bandaríkjunum

Ómíkron-afbrigðið hefur einnig sett svip sinn á þróun far­ald­urs­ins í Banda­ríkj­unum, einna helst með auknu álagi í sýna­tökum. Eitt af kosn­inga­lof­orðum Joes Biden Banda­ríkja­for­seta var að gera sýna­tökur ódýrar og aðgengi­legar öllum. Sýna­töku­staðir ná hins vegar ekki að sinna eft­ir­spurn í aðdrag­anda jóla, þegar margir fara í hrað­próf í kj og nýs afbrigðis.

Sýnataka hefur gengið brös­ug­lega frá upp­hafi far­ald­urs­ins í Banda­ríkj­unum og hefur rík­is­stjórn Biden ekki tek­ist sem skyldi að mæta eft­ir­spurn. Á sama tíma hefur til­fellum fjölgað með til­komu ómíkron-afbrigð­is­ins en dag­leg smit hafa verið á bil­inu 140-170 þús­und síð­ustu daga.

Banda­ríkja­menn geta valið milli þess að fara í sýna­töku á við­ur­kenndum stöðum eða með því að kaupa hrað­próf sem ein­stak­lingar geta fram­kvæmt sjálfir, en á annan tug teg­unda eru til í þeim flokki. Mun fleiri teg­undir af slíkum prófum eru aðgengi­leg í Evrópu, eða nærri 50. Hrað­prófin eru sömu­leiðis mun ódýr­ari í Evrópu þar sem þau kosta um einn til tvo doll­ara, eða um 130-160 krónur, en í Banda­ríkj­unum kostar prófið um 12 doll­ara, eða um 1.500 krónur.

Munurinn á stöð­unni í Evrópu og Banda­ríkj­unum liggur fyrst og fremst í mun­inum á rekstri heil­brigð­is­kerf­anna en má einnig rekja til umdeildrar ákvörð­unar sem banda­rísk yfir­völd tóku fyrir nokkrum mán­uðum þegar ákveðið var að nið­ur­greiða ekki sýna­töku, til að mynda hrað­próf, líkt og bólu­setn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár