Ómíkron gæti kaffært heilbrigðiskerfið

Þrátt fyrir að ein­kenni af völdum sýk­ingar af ómíkron-afbrigði kór­ónu­veirunnar virð­ist væg­ari en af delta gæti hröð útbreiðsla þess sligað heil­brigð­is­kerfi.

Enn er margt á huldu um þær afleiðingar sem ómíkron-afbrigðið gæti haft. En það þarf ekki marga alvarlega veika sjúklinga til að margfalda álag á sjúkrahús.
Enn er margt á huldu um þær afleið­ingar sem ómíkron-afbrigðið gæti haft. En það þarf ekki marga alvar­lega veika sjúk­linga til að marg­falda álag á sjúkra­hús. Mynd: EPA

Álag á sjúkra­húsum í Bret­landi er mjög mikið um þessar mundir og nýt­ing þjón­ust­unnar sem hægt er að veita um 95 pró­sent. Það má því ekki mikið út af bregða þar í landi líkt og víða ann­ars staðar í heim­inum. Heil­brigð­is­ráð­herra lands­ins, Sajid Javid, segir að eng­inn sjúk­lingur smit­aður af ómíkrón-afbrigði kór­ónu­veirunnar hafi lát­ist svo vitað sé en innan við mán­uður er síðan afbrigðið greind­ist og því enn mikil óvissa um áhrif þess á fólk.

Að minnsta kosti tíu sjúk­lingar sem greinst hafa með ómíkrón liggja inni á sjúkra­húsum á Englandi. Javid leggur áherslu á að þótt í ljós komi að afbrigðið valdi mild­ari ein­kennum en delta-afbrigðið gæti fjöldi til­fella engu að síður sligað heil­brigð­is­kerfið.

For­stjóri NHS, rík­is­sjúkra­húsa Bret­lands, segir að vegna far­ald­urs COVID-19 hafi þurft að fækka rúmum á spít­ölum um 30 pró­sent til að draga úr sýk­ing­ar­hættu. Hann vakti enn­fremur athygli á því í við­tali við Sky-frétta­stof­una að sá árs­tími sem nú fari í hönd, mestu vetr­ar­mán­uð­irnir, sé alltaf álags­tími vegna marg­vís­legra þátta á borð við slys og alls lags veik­indi. Þetta sé að ger­ast á sama tíma og ómíkron sé að dreifa sér um landið og þeirri óvissu sem því fylgir.

Heil­brigð­is­ráð­herr­ann segir að ómíkron sé að dreifa sér á „gíf­ur­legum hraða“. Útbreiðslan sé „for­dæma­laus“. Javid segir að margir haldi því fram að ómíkron valdi væg­ari ein­kennum en það eigi ein­fald­lega eftir að koma í ljós. „Og jafn­vel þótt að þau séu væg­ari þá þarf aðeins lítið hlut­fall sjúk­linga að fá alvar­leg ein­kenni svo að fjöldi þeirra verði mik­ill.“ Hann minnti einnig á að ef álagið á sjúkra­húsin auk­ist enn frekar verði að grípa til aðgerða, m.a. að fresta skurð­að­gerðum og rann­sóknum.

Rann­sóknir þykja benda til að þrí­bólu­setn­ing, þ.e. þrír skammtar af bólu­efnum sem þegar eru á mark­aði, veiti umtals­vert betri vörn en tví­bólu­setn­ing. Þá benda rann­sóknir einnig til að þrí­bólu­setn­ing verji fólk mun betur gegn ómíkrón.

Örv­un­ar­her­ferðir eru hafnar víða á Vest­ur­löndum. Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hvatti landa sína til að þiggja slíka bólu­setn­ingu í ávarpi sem hann flutti í gær­kvöldi.

Tæplega 136 þús­und manns hafa þegið örv­un­ar­bólu­setn­ingu á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár