Af hverju sleppti WHO tveimur stöfum gríska stafrófsins?

Á eftir Mý kemur Ný og þá Xí. En eftir að Mý-afbrigði kór­ónu­veirunnar fékk nafn sitt var það næsta sem upp­götv­að­ist nefnt Ómíkron. Hvað varð um Ný og Xí?

Þeir eru takmörkuð auðlind, stafirnir í gríska stafrófinu.
Þeir eru tak­mörkuð auð­lind, stafirnir í gríska staf­róf­inu.

Kína­veiran. Breska afbrigðið og það suð­ur­a­fríska. Svo hið brasil­íska. Jafnvel það franska. Þegar ný afbrigði SARS-CoV-2 kór­ónu­veirunnar fóru að dúkka upp er líða tók á far­aldur COVID-19, oft mögu­lega talin skæð­ari en þau sem á undan komu, voru þau bæði í fréttum og af tals­mönnum yfir­valda kennd við þau lönd sem þau fyrst upp­götv­uð­ust í. Það var vissu­lega þjálla að tala um breska afbrigðið en B.1.1.7, það suð­ur­a­fríska í stað B.1.351 og hið ind­verska en ekki B.1.617.2. Hin vís­inda­legu heiti sem vísa til upp­runa og eig­in­leika með tölum og bók­stöfum eru óskilj­an­leg í eyrum venju­legs fólks.

En að kenna veiru­af­brigði við lönd var ávísun á rugl­ing og jafn­vel reiði. Hvað ef annað afbrigði myndi upp­götvast á Bret­landi? Við hvað ætti að kenna það? Og hvað geta Ind­verjar gert að því að nýtt afbrigði fannst fyrst þar?

[adspot]

Til að bregð­ast við þessu ákvað Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin, WHO, að nefna afbrigði nýju kór­ónu­veirunnar eftir stöfum úr gríska staf­róf­inu. Þetta til­kynnti stofn­unin í lok maí á þessu ári. Þannig varð breska afbrigðið að Alfa, það suð­ur­a­fríska að Beta og það brasil­íska að Gamma. Þetta var gert um það leyti sem ljóst var að „ind­verska afbrigðið“ – B.1.617.2, yrði ráð­andi. Meira smit­andi en önnur. Hættu­legra. Það fékk líkt og hvert manns­barn veit nafnið Delta.

WHO valdi gríska staf­rófið því það er þekkt fyr­ir­bæri víð­ast í heim­inum og kerfið því nokkuð ein­falt. Á eftir Alfa kemur Beta og svo Gamma. Nið­ur­staðan var fengin eftir sam­ráð við fólk og stofn­anir frá mörgum löndum.

[links]Kór­ónu­veiran er í stöðugri þróun. Hún er stans­laust að breyt­ast. En það er þó ekki fyrr en stökk­breyt­ingar sem henni fylgja verða miklar og var­huga­verðar að WHO setur ný afbrigði undir sér­staka smá­sjá og gefur þeim nafn. Þau eru svo þegar við þykir eiga sett á tvo lista: Athygl­is­verð afbrigði (vari­ants of inter­est) eða afbrigði sem valda áhyggjum (vari­ants of concern).

Í augna­blik­inu eru tvö afbrigði, Mý og Lambda, talin athygl­is­verð og fimm til við­bótar á lista yfir þau sem valda sér­stökum áhyggjum: Alfa, Beta, Gamma, Delta og nú nýverið Ómíkron.

Nokkur önnur afbrigði hafa fengið nöfn (Epsílon, Eta og fleiri) en er þó ekki að finna á list­unum tveimur. Þau ein­fald­lega eiga ekki heima þar, þrátt fyrir að hafa verið talin var­huga­verð í fyrstu.

Pí og Hró eru næstir í röðinni

Meiri athygli hefur þó vakið að WHO ákvað að stökkva beint úr Mý og yfir í Ómíkron og sleppa tveimur bók­stöfum. Engin afbrigði hafa fengið nöfnin Ný og Xí. Tals­maður WHO svar­aði því til spurður út í þetta að Ný hefði verið rugl­ings­legt. Ný-afbrigðið. Nýja afbrigðið (Nu, skrifað á ensku, lík­ist „new“ í fram­burði). Það var því fljót­afgreitt að sleppa því. Xí (stundum skrifað Ksí á íslensku) hefur valdið meiri heila­brotum og kenn­ingar verið settar fram um að það hafi verið gert til að hlífa for­seta Kína, Xi Jinping. Nóg var talað um „Kína­veiruna“ í upp­hafi þótt ekki væri svo farið að blanda nafni for­set­ans í afbrigði hennar. Tals­maður WHO segir hins vegar að Xí sé algengt eft­ir­nafn í Kína og því hafi verið tekin ákvörðun um að sleppa því. Hann bætti svo við að WHO legði sig fram við að reyna að kom­ast hjá því að móðga nokkurn mann eða hóp með nafn­giftum sínum.

Sagan segir okkur að nafn­giftir geti verið vill­andi. Sjúk­dóm­ur­inn ebóla er t.d. kenndur við á sem rennur langt frá þeim stað þar sem veiran sem sjúk­dómnum veldur á upp­tök sín. Spænska veikin er annað dæmi. Sá skæði far­aldur átti ekki upp­tök á Spáni heldur lík­lega í Banda­ríkj­unum.

[adspot]

En hvað mun næsta afbrigði kór­ónu­veirunnar heita?

Næsti stafur í gríska staf­róf­inu á eftir Ómíkron er Pí. Miðað við þróun far­ald­urs­ins hingað til og þeirrar stað­reyndar að enn er stór hluti heims­byggð­ar­innar óbólu­settur sem aftur er kjör­lendi fyrir kór­ónu­veiruna að fjölga sér og stökk­breyt­ast, mun ekki líða á löngu þar til Pí-afbrigðið skýtur upp koll­inum. Ef WHO leggur ekki blessun sína yfir Pí mun næsta afbrigðið heita Hró.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár