Hanna Katrín: Er hér farið vel með skattfé almennings?

Þing­maður Við­reisnar spyr hvort kaup rík­is­ins á Hótel Sögu sé „hag­stæður gjörn­ingur fyrir hið opin­bera“.

Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar.
Hanna Katrín Frið­riks­son þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Hanna Katrín Frið­riks­son þing­flokks­for­maður Við­reisnar gerði kaup stjórn­valda á Hótel Sögu að umtals­efni á Alþingi í dag undir liðnum störf þings­ins. Hún spurði meðal ann­ars hvort vel væri farið með skattfé almenn­ings í þessum gjörn­ingi.

Kjarninn greindi frá því í morgun að í frum­varpi til fjár­auka­laga, sem birt var í gær­kvöldi, er lagt til að tæp­lega fjórum millj­örðum króna verði ráð­stafað úr í rík­is­sjóði á þessu ári í að kaupa á ann­ars vegar Hótel Sögu við Haga­torg, sem keypt yrði með Félags­stofnun stúd­enta, og jörð­ina Mið-­Fossa undir starf­semi Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands.

Í Frétta­blað­inu í dag er jafn­framt haft eftir Jóni Atla Bene­dikts­syni, rektor Háskóla Íslands, að áætl­aður heild­ar­kostn­aður í kaup­verði og end­ur­bótum á hlut háskól­ans sé um 6,5 millj­arðar króna. Vert er að taka fram að kaup­endur á eign­inni eru tveir, ann­ars vegar rík­is­sjóður og hins vegar Félags­stofnun stúd­enta.

Hanna Katrín sagði að heim­ild væri í fjár­lögum upp á 6,5 millj­arða króna fyrir kaup og end­ur­bætur en hið rétta er að gert er ráð fyrir að rík­is­sjóður og Félags­stofnun stúd­enta standi að kaup­unum sam­eig­in­lega. Ríkið mun eiga 73 pró­sent í bygg­ing­unni en stofn­unin 27 pró­sent.

Í nýbirtu frum­varpi til fjár­auka­laga kemur fram að miðað sé við að fast­eigna­fé­lag háskól­ans, sem komið var á fót á þessu ári, muni standa straum af kostn­aði vegna við­halds og end­ur­bóta á þeim hluta eign­ar­innar sem mun til­heyra háskól­anum. Hlut­deild rík­is­ins í kaup­verð­inu greið­ist hins vegar með sér­stakri fjár­heim­ild úr rík­is­sjóði. Félags­stofnun stúd­enta hyggst nýta sinn hluta af hús­næð­inu undir stúd­enta­í­búðir.

Óútfylltur tékki

„Við vitum öll að það mun taka mörg ár að breyta þessu forn­fræga hús í skóla­hús og reynslan sýnir okkur líka að raun­kostn­aður er yfir­leitt mun hærri en áætl­anir. Það má jafn­vel tala um óút­fylltan tékka í þessu sam­hengi við svona gjörn­inga,“ sagði hún.

[links]Spurði hún í fram­hald­inu hvort þetta væri hag­stæður gjörn­ingur fyrir hið opin­bera. „Er hér farið vel með skattfé almenn­ings? Er það betri með­ferð opin­bers fjár að kaupa, gera upp og gjör­breyta sögu­frægu hús­næði sem er að sögn mikið skemmt, frekar en að reisa bygg­ingu sem er sér­stak­lega hönnuð með þarfir háskól­ans í huga?“ spurði hún.

„Þessar vanga­veltur um for­gangs­röðun verk­efna eru ekki gripnar úr lausu lofti. Tökum dæmi: Rík­is­stjórnin stefnir í að reka rík­is­sjóð með 170 millj­arða króna halla á næsta ári. Hún telur sig ekki hafa svig­rúm til að nið­ur­greiða sál­fræði­þjón­ustu líkt og Alþingi hefur farið fram á og hún ætlar að lækka fram­lög til mennta- og menn­ing­ar­mála um 2,3 millj­arða kr. á milli ára. Svo má líka horfa á þetta með þeim augum að víða um land er hús­næð­is­skortur og önnur hótel en Hótel Saga eru í rekstr­ar­vanda.

Ætli rík­is­stjórnin stefni að því með sömu rökum að kaupa þau hótel og gera að íbúðum? Eða eru rekstr­ar­að­ilar Hótel Sögu í sér­stöðu þegar kemur að rán­dýrum redd­ingum eins og þessum sem almenn­ingur greiðir fyrir á end­anum?“ spurði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár