Fjórir milljarðar úr ríkissjóði vegna kaupa á Hótel Sögu og Mið-Fossum

Rík­is­sjóður borgar millj­arða króna til að kaupa Hótel Sögu fyrir Háskóla Íslands, og mun eiga 73 pró­sent í bygg­ing­unni eftir kaupin á móti Félags­stofnun stúd­enta. Bygg­inga­réttur á lóð­inni fylgir með.

Í frum­varpi til fjár­auka­laga, sem birt var í gær­kvöldi, er lagt til að tæp­lega fjórum millj­örðum króna verði ráð­stafað úr í rík­is­sjóði á þessu ári í að kaupa á ann­ars vegar Hótel Sögu við Hagatorg, sem keypt yrði með Félags­stofnun stúd­enta, og jörð­ina Mið-Fossa undir starf­semi Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands.

Ef af kaup­unum á Hótel Sögu verður, sem virð­ist afar lík­legt, mun ríkið eiga 73 pró­sent í bygg­ing­unni á móti Félags­stofnun stúd­enta, sjálfs­eign­ar­stofn­unar sem á og rekur stúd­enta­garða. Sá hluti húss­ins sem verður nýttur af Háskóla Íslands mun að mestu leyti fara undir starf­semi mennta­vís­inda­sviðs Háskóla Íslands.

Land­bún­að­ar­há­skól­inn hefur frá árinu 2006 leigt aðstöðu á jörð­inni Mið-Fossum undir starf­semi skól­ans á sviði reið­mennsku og umhirðu hrossa. í fjár­auka­laga­frum­varp­inu segir að Mið-Fossar hafi verið til sölu á almennum mark­aði um nokk­urt skeið og því óvíst um fram­tíð­ar­að­gengi skól­ans að þess­ari kennslu­að­stöðu. „Af þeim sökum er talið æski­legt að ríkið eign­ist jörð­ina og þær bygg­ingar til að tryggja aðgengi skól­ans að aðstöð­unni.“

Byggingarréttur fylgir með

Háskóli Íslands óskaði eftir því í byrjun árs­ins 2021 að skoðuð yrðu kaup á Hótel Sögu undir starf­semi mennta­vís­inda­sviðs háskól­ans. Í frum­varp­inu segir að háskól­inn meti sem svo að um sé að ræða ein­stakt tæki­færi til að flytja mennta­vís­inda­sviðið inn á aðal­svæði háskól­ans á til­tölu­lega skömmum tíma ásamt því að skapa önnur tæki­færi til að styrkja starf­semi skól­ans á heild­stæðu svæði sem nær frá Vatns­mýri og yfir Suð­ur­göt­una að Haga­torgi.

[adspot]Núver­andi hús­næði mennta­vís­inda­sviðs við Stakka­hlíð og Skipholt sé um 14 þús­und fer­metrar sem þyki óhent­ugt en auk þess sé gert ráð fyrir að hægt sé að losa Neshaga 16 sem háskól­inn hefur nýtt undir stoð­þjón­ustu. „Áætlað er að bæta hús­næð­isnýt­ingu háskól­ans tals­vert eða fara úr 15 þús. m² niður í 13 þús. m². Þar til við­bótar er verið að tryggja háskól­anum yfir­ráð á heild­stæðu svæði sem nær frá Vatns­mýri og yfir Suð­ur­göt­una.“

Í frum­varp­inu er sér­stak­lega tekið fram að Hótel Sögu fylgi bygg­ing­ar­réttur sem hægt sé að nýta undir aðra starf­semi háskól­ans til fram­tíðar litið.

Fasteignafélagið greiðir fyrir endurbætur og viðhald

Gert er ráð fyrir að rík­is­sjóður og Félags­stofnun stúd­enta standi að kaup­unum sam­eig­in­lega.

[links]Í Frétta­blað­inu í dag er haft eftir jóni Atla Bene­dikts­syni, rektor Háskóla Íslands, að áætl­aður heild­ar­kostn­aður í kaup­verði og end­ur­bótum á hlut háskól­ans sé um 6,5 millj­arðar króna.

Í fjár­auka­lög­unum kemur fram að miðað sé við að fast­eigna­fé­lag háskól­ans, sem komið var á fót á þessu ári, muni standa straum af kostn­aði vegna við­halds og end­ur­bóta á þeim hluta eign­ar­innar sem mun til­heyra háskól­anum. Hlut­deild rík­is­ins í kaup­verð­inu greið­ist hins vegar með sér­stakri fjár­heim­ild úr rík­is­sjóði.

Félags­stofnun stúd­enta hyggst nýta sinn hluta af hús­næð­inu undir stúd­enta­í­búðir. Kjarninn fjall­aði ítar­lega um umfang Félags­stofn­unar stúd­enta í frétta­skýr­ingu sem birt­ist í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár