Fasteignir Félagsstofnunar stúdenta eru metnar á um 42 milljarða króna

Félags­stofnun stúd­enta, sem rekur 1.495 leigu­ein­ingar, hagn­að­ist um 4,8 millj­arða á síð­asta rekstr­ar­ári. Fram­kvæmda­stjór­inn segir að þegar búið sé að draga frá við­halds­kostnað og afborg­anir á lánum frá matsvirð­is­hækkun sé rekst­ur­inn nán­ast á núlli.

Oddagarðar við Sæmundargötu eru á meðal þeirra stúdentagarða sem eru í eigu Félagsstofnunar stúdenta.
Odda­garðar við Sæmund­ar­götu eru á meðal þeirra stúd­enta­garða sem eru í eigu Félags­stofn­unar stúd­enta. Mynd: Af vef Félagsstofnunar Stúdenta

Félags­stofnun Stúdenta hagn­að­ist um 4,8 millj­arða króna á starfs­ár­inu 2020 til 2021. Þar af var mats­breyt­ing fjár­fest­inga­eigna, sem er hækkun á fast­eigna­mati þeirra fast­eigna sem stofn­unin á milli ára, rúm­lega 4,1 millj­arður króna að frá­töldum við­halds­kostn­aði, sem var 441 milljón króna á rekstr­ar­ár­inu.

Virði fjár­fest­inga­eigna Félags­stofn­unar Stúdenta, sem eru stúd­enta­garðar, var 41,6 millj­arðar króna í lok maí síð­ast­lið­ins, en rekstr­arár stofn­un­ar­innar er frá 1. júní á hverju ári og út maí. Til sam­an­burðar var virði fjár­fest­inga­eigna í eigu hennar 30,1 millj­arðar króna í lok maí 2018. Taka verður til­lit til þess að leigu­ein­ingum stofn­un­ar­innar hefur fjölgað á þessu tíma­bili. Stærsti stúd­enta­garður á Íslandi og jafn­framt fjöl­menn­asta íbúð­ar­hús á land­inu á einu hús­núm­eri, Mýr­ar­garður sem rúmar nálægt 300 manns, var til að mynda tek­inn í notkun í febr­úar í fyrra. Í dag eru leigu­ein­ingar í eigu Félags­stofn­unar stúd­enta 1.495 tals­ins. Því er stofn­unin risa­stór leik­andi á íslenskum leigu­mark­aði.

Í upp­hafi árs var að fólk sem er ekki í námi gæti sótt um her­bergi til leigu hjá Félags­stofnun stúd­enta. Vegna áhrifa COVID-19 voru biðlistar eftir her­bergjum með sam­eig­in­legum eld­hús­um og dval­ar­rýmum sem hún býður til leigu í nokkrum af sínum stúd­enta­görðum styttri en venju­lega og því var gripið til þeirra aðgerða.

[adspot]Auk þess á Félags­stofnun stúd­enta þrjár aðrar fast­eignir: Mánagarð, Háskóla­torg og Stúd­enta­kjall­ar­ann sem eru sam­an­lagt bók­færð á 632,4 millj­ónir króna. Þeir stúd­enta­garðar sem eru í bygg­ingu eru svo metnar á rúm­lega 1,6 millj­arða króna.

Velta stofn­un­ar­innar var rúm­lega 3,2 millj­arðar króna og jókst um 6,5 pró­sent milli rekstr­ar­ára. Þar af vöru sölu og leigu­tekjur um 98 pró­sent tekna en það sem upp á vantar voru skrán­ing­ar­gjöld.

Að með­al­tali störf­uðu um 122 starfs­menn hjá stofn­un­inni á tíma­bil­inu júní 2020- maí 2021 miðað við heils­dags­stöðu­gildi. Laun og launa­tengd gjöld voru rúm­lega einn millj­arður króna sem er fjögur pró­sent kostn­að­ar­aukn­ing frá rekstr­ar­ár­inu á undan.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingum Félags­stofn­unar Stúdenta sem Kjarninn hefur fengið afhenta hjá skrif­stofu stofn­un­ar­innar, en þeim er ekki skilað inn til árs­reikn­inga­skrár.

Rekið um það bil á núlli

Félags­stofnun Stúdenta er óhagn­að­ar­drifið félag sem lætur allan hagnað renna til bættrar þjón­ustu og búsetu­skil­yrða fyrir stúd­enta við Háskóla Íslands. Í dag rekur hún Bóksölu stúd­enta, Leik­skóla stúd­enta, Stúd­enta­garða, Stúd­enta­kjall­ar­ann, Hámu, Hámu Salatbar, Bóka­kaffi stúd­enta og Kaup­fé­lag stúd­enta.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans segir Guðrún Björns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri stofn­un­ar­innar að hagn­aður hvers árs þurfi að standa undir afborg­unum lána og að rétt fram­lag til við­halds skili sér.

Þegar horft sé á sjóð­streymi Félags­stofn­unar stúd­enda hafi rekst­ur­inn skilað rúm­lega einum millj­arði króna til stofn­un­ar­innar á síð­asta rekstr­ar­ári. Þegar búið sé að draga frá greiðslur vegna við­halds á árinu, afborgun á lang­tíma­lánum og rétt upp­hæð tekin til hliðar í fram­tíð­ar­við­halds­sjóð og öðrum áhöldum árs­ins sé rekst­ur­inn um það bil á núlli.

Hagnaður hvers árs þarf að standa undir afborg­unum lána og að rétt fram­lag til við­halds skili sér. Allar eignir eru metnar á fast­eigna­mati og mats­breyt­ingin er því hækkun á fast­eigna­mati hvers árs.

Sé horft á rekst­ur­inn út frá hagn­aði, sem var tæp­lega 4,8 millj­arðar króna, þurfi fyrst að draga mats­breyt­ingar og við­halds­kostnað frá. Þá standi eftir hagn­aður upp á 184 millj­ónir króna auk verð­bóta upp á 662 millj­ónir króna. Sam­an­lagt geri það 846 millj­ónir króna. Guðrún segir að frá því þurfi að drag­ast frá afborg­anir lána upp á 227 millj­ónir króna og mats­breyt­ing verð­bréfa upp á 225 millj­ónir króna. „Þá standa eftir 394 millj­ónir og fram­lag í við­halds­sjóð­inn þetta rekstr­arár á að vera 391 milljón.“

Um fjórðungi lægra borið saman við sambærilegar íbúðir

Í nýlegri leigu­mark­aðs­könnun Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) kom fram að með­al­fer­metra­verð leigu­í­búða á stúd­enta­görðum væri hærra en á nokkrum öðrum leigu­mark­aði hér­lend­is. Með­al­fer­metra­verð þeirra var 2.545 krónur í sept­em­ber.

Þrátt fyrir hátt fer­­metra­verð greiða leigj­endur á stúd­­enta­­görðum lægstu upp­­hæð­ina í leigu, sökum þess hversu litlar íbúðir þeirra eru. Með­­al­­stærð íbúða á stúd­­enta­­görð­unum er 48 fer­­metr­­ar, á meðan stærð íbúða á öðrum leig­u­­mörk­uðum er vana­­lega í kringum 80 fer­­metra.

Í kjöl­far þess að nið­ur­stöður könn­un­ar­innar voru birtar kall­aði Félags­stofnun stúd­enta eftir upp­lýs­ingum frá HMS um með­alleigu­verð á íbúðum í sam­bæri­legri stærð og þær sem í boði eru á stúd­enta­görð­u­m.

Í svari stofn­un­ar­innar kemur fram að hún hafi fundið til tölur um þing­lýsta leigu­samn­inga á íbúðum af slíkri stærð (á bil­inu 40 til 55 fer­metr­ar) í póst­núm­erum 101, 102, 103 og 105. Þar sé með­alleigu­verð per fer­metra 3.496 krón­ur.

Því er með­al­fer­metra­verð leigu­í­búða á stúd­enta­görðum rúm­lega fjórð­ungi lægra en það er á almenna mark­aðnum í þeim póst­núm­erum sem stúd­enta­garða er að finna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár