Fermetraverðið hæst á stúdentagörðunum

Ef tekið er til­lit til stærðar íbúða eru dýr­ustu teg­undir leigu­í­búða hér­lendis á stúd­enta­görðum, en fer­metra­verðið þar er 17 pró­sentum hærra en á almennum leigu­mark­aði.

Stúdentagarðar Háskóla Íslands á Sæmundargötu.
Stúd­enta­garðar Háskóla Íslands á Sæmund­ar­götu. Mynd: Af vef Félagsstofnunar Stúdenta

Með­al­fer­metra­verð leigu­í­búða á stúd­enta­görðum nam 2.545 krónum í sept­em­ber og var hærra en á nokkrum öðrum leigu­mark­aði hér­lendis á sama tíma. Þetta kemur fram í nýlegri leigu­mark­aðs­könnun Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS).

Greint var frá nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar í frétt á vef HMS, en sam­kvæmt þeim greiða leigj­endur sem eru búsettir í stúd­enta­görðum 17 pró­sent meiri leigu fyrir hvern fer­metra heldur en þeir sem leigja af ein­stak­lingi á almennum leigu­mark­aði. Verð­mun­ur­inn er 18 pró­sent ef leigt er af einka­reknu leigu­fé­lagi, en 37 pró­sent ef leigt er af óhagn­að­ar­drifnu leigu­fé­lagi.

Þeir sem leigja af ætt­ingjum og vinum greiða svo 38 pró­sent minna fyrir fer­metr­ann heldur en leigj­endur á stúd­enta­görðum, á meðan þeir sem leigja af sveit­ar­fé­lagi greiða rúm­lega helm­ingi minna.

Borga þó lægstu leiguna

Þrátt fyrir hátt fer­metra­verð greiða leigj­endur á stúd­enta­görðum lægstu upp­hæð­ina í leigu, sökum þess hversu litlar íbúðir þeirra eru. Með­al­stærð íbúða á stúd­enta­görð­unum er 48 fer­metrar, á meðan stærð íbúða á öðrum leigu­mörk­uðum er vana­lega í kringum 80 fer­metra.

Heild­ar­upp­hæðin er mest hjá þeim sem leigja hjá einka­reknu leigu­fé­lagi, en þeir greiddu að með­al­tali tæpar 200 þús­und krónur í leigu í sept­em­ber. Leigj­endur á almennum leigu­mark­aði greiddu aftur á móti að með­al­tali 178 þús­und krónur í leigu og þeir sem leigðu hjá óhagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum eða hjá ætt­ingjum og vinum gátu vænst þess að greiða um 140 þús­und krónur í leigu. Leigj­endur á stúd­enta­görð­unum greiddu hins vegar að með­al­tali 122 þús­und krónur í leigu í sept­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár