Lífeyrissjóðirnir snúa aftur af alvöru á íbúðalánamarkaðinn

Þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á var gripið til aðgerða sem gerðu við­skipta­bönkum lands­ins kleift að sópa til sín íbúð­ar­lánum. Hlut­deild þeirra á þeim mark­aði jókst úr 55 í 67 pró­sent á einu ári. Nú eru líf­eyr­is­sjóðir lands­ins farnir að keppa á ný.

Húsnæðisverð hefur hækkað gríðarlega undanfarin misseri og framboð á húsnæði er nú minna en elstu menn muna. Lykilbreyta í þeirri þróun hefur verið lægri vextir á húsnæðislánum.
Hús­næð­is­verð hefur hækkað gríð­ar­lega und­an­farin miss­eri og fram­boð á hús­næði er nú minna en elstu menn muna. Lyk­il­breyta í þeirri þróun hefur verið lægri vextir á hús­næð­is­lánum. Mynd: Pexels

Frá því í nóv­em­ber 2015 og fram á mitt síð­asta ár juk­ust ný útlán líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga sinna, aðal­lega vegna íbúð­ar­kaupa, um alls 397,4 millj­arða króna. Á því tíma­bili tóku þeir til sín sífellt stærri hlut­deild á íbúða­lána­mark­að­inum, á kostnað við­skipta­bank­anna sem sátu aðal­lega uppi með að lána þeim sem upp­fylltu ekki skil­yrði líf­eyr­is­sjóða fyrir lánum. Þetta gerðu þeir aðal­lega með því að bjóða upp á verð­tryggð lán á mun lægri vöxtum sem bank­arnir gerðu, en fram á síð­asta ár var verð­bólga lág og verð­tryggðu lánin því í flestum til­vikum mun hag­stæð­ari en óverð­tryggð. Þeir sem gátu ekki tekið lán hjá sjóð­unum voru aðal­lega þeir sem þurftu að taka hærra hlut­fall að kaup­verði að láni en 70 pró­sent. Þeir sátu eftir í hærri vöxtum hjá bönk­unum.

Ásóknin í lán sjóð­anna var svo mikil að á árinu 2019 fóru stærstu sjóð­irnir flestir að þrengja láns­skil­yrði sín. Í til­felli líf­eyr­is­­sjóðs verzlunarmanna, næst stærsta sjóðs lands­ins, var sú skýr­ing gefin að hann væri kom­inn út fyrir þol­­mörk þess sem hann réð við að lána til íbúð­­ar­­kaupa. Annað hvort þyrfti sjóð­ur­inn að fara að selja aðrar eignir til að lána sjóðs­fé­lögum eða tak­marka útlán.

Bankarnir tóku yfir

Þessi staða breytt­ist hratt þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Seðla­banki Íslands lækk­aði stýri­vexti niður í 0,75 pró­sent og afnám sveiflu­jöfn­un­ar­auka á bank­ana til að hvetja þá til frek­ari útlána. Þeir völdu að lána aðal­lega til íbúða­kaupa og þar sem verð­bólga fór hækk­andi voru óverð­tryggðu lán bank­anna skyndi­lega orðin hag­stæð­ustu lánin á mark­aðnum. Fólk flykkt­ist frá líf­eyr­is­sjóðum og til þeirra, aðal­lega í óverð­tryggð lán. Í lok apríl 2021 var hlut­deild þeirra komin upp í 46 pró­sent. Til sam­an­burðar var hlut­deild óverð­tryggðra íbúða­lána 23 pró­sent, eða helm­ingi minni, í byrjun árs 2019.

[adspot]Frá mars 2020 og fram í sept­em­ber 2021 juk­ust hrein ný útlán Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka, með veði í íbúð, um 539 millj­arða króna. Frá lokum apríl í fyrra og fram á mitt þetta ár jókst mark­aðs­hlut­deild bank­anna í öllum útistand­andi lánum til íbúð­ar­kaupa úr 55 í 67 pró­sent.

Á sama tíma dróg­ust ný útlán líf­eyr­is­sjóða til íbúð­ar­kaupa, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðslum, saman um 65,4 millj­arða króna og mark­aðs­hlut­deild þeirra skrapp skarpt saman.

Stórir sjóðir farnir að hreyfa sig á ný

Samhliða nokkuð þrá­látri verð­bólgu hafa stýri­vextir tekið að hækka, og kjör á óverð­tryggðum lánum orðið verri, hvort sem um er að ræða breyti­lega eða fasta vexti.

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur hins vegar farið með með heild­ar­eign­ar­safn líf­eyr­is­sjóð­anna, aðal­lega vegna þess að hluta­bréf jafnt inn­an­lands sem erlendis hafa hækkað mikið í verði. Alls hafa sam­eig­in­lega eignir sjóð­anna auk­ist um 944,2 millj­arða króna frá því í lok ágúst í fyrra. Það hefur aukið svig­rúm þeirra til að fara aftur að lána meira til íbúð­ar­kaupa.

[links]Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, næst stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, ákvað í síð­asta mán­uði að stofna nýjan lána­flokk sjóðs­fé­laga­lána og lánar nú óverð­tryggð lán til íbúð­ar­kaupa með breyti­legum vöxt­um. Um er að ræða þá teg­und lána sem notið hefur mestra vin­sælda hjá íslenskum hús­næð­is­kaup­endum síð­ast­liðin ár. Vext­irnir eru á pari við skap­leg­ustu vexti sem bank­arnir bjóða upp á, en líf­eyr­is­sjóð­irnir njóta þess fram yfir banka að bera engan kostnað vegna fjár­mögn­unar. Bankar þurfa að fá lán­aða pen­inga, annað hvort hjá við­skipta­vinum sínum í formi inn­lána eða frá fjár­festum með skulda­béfa­út­gáfu, og greiða vexti af því fé. Líf­eyr­is­sjóðir eru áskrif­endur að fé almenn­ings sem flæðir inn í hirslur þeirra um hver ára­mót án vaxta, þótt krafa sé gerð um að þeir ávaxti það fé. Það gefur sjóð­unum tæki­færi á að bjóða upp á betri við­skipta­kjör.

Gildi, þriðji stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, býður bestu óverð­tryggðu kjörin sem stend­ur, 3,45 pró­sent vexti, og Brú líf­eyr­is­sjóður býður upp á 3,8 pró­sent vext­i. Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, er því eini af stærstu sjóð­unum sem býður ekki upp á óverð­tryggða breyti­lega vexti á sjóðs­fé­lags­lánum sem stend­ur. Saman eiga þessir þrír sjóð­ir: LSR, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Gildi rúm­lega helm­ing af allri hreinni eign íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins.

Stefnir í jákvæða útlánastöðu

Sam­dráttur í útlánum líf­eyr­is­sjóða var mestur í októ­ber og nóv­em­ber í fyrra þegar sjóðs­fé­lagar greiddu upp lán hjá þeim upp á níu millj­arða króna hvorn mán­uð­inn og fluttu sig annað.

Sam­drátt­ur­inn hefur hins vegar deg­ist hratt saman síð­ustu mán­uði. Í júlí var hann rúm­lega 1,5 millj­arður króna og í ágúst um 1,1 millj­arður króna. Í sept­em­ber­mán­uði var hann ein­ungis 83 milljón króna og ef þróun síð­ustu mán­aða heldur áfram stefnir í að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafi lánað meira í ný útlán í októ­ber en greitt var upp hjá þeim. Gangi það eftir yrði það í fyrsta sinn síðan í maí 2020 sem ný útlána­staða líf­eyr­is­sjóða vegna sjóðs­fé­laga­lána væri jákvæð innan mán­aðar.

Breyt­ingin er til­komin vegna þess að áhugi almenn­ings á töku óverð­tryggðra lána hjá líf­eyr­is­sjóðum hefur tekið stökk upp á við frá því í sumar, en frá jún­í­byrjun og til loka sept­em­ber juk­ust óverð­tryggð útlán líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga um rúm­lega tíu millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár