400 skotum hleypt af við morðið á blaðamanni og fjölskyldu hans

Frá árinu 1992 hafa yfir 1.400 blaða­menn verið myrtir víðs vegar um heim­inn. Sett hefur verið á stofn sér­stök rann­sókn­ar­nefnd innan alþjóða glæpa­dóm­stóls­ins sem mun fjalla um nokkur morð­anna.

Á tæplega þrjátíu árum hafa yfir1.400 blaðamenn verið myrtir.
Á tæp­lega þrjá­tíu árum hafa yfir1.400 blaða­menn verið myrtir. Mynd: Sameinuðu þjóðirnar

Síðasta skoð­ana­grein mexíkóska blaða­manns­ins Miguel Angel Lopez Velasco fjall­aði um morð á konum, frænd­hygli og mengað drykkj­ar­vatn. Greinin birt­ist í dag­blað­inu Notiver og í henni skrif­aði Velasco að yfir­völd hefðu heitið því að taka á öllum þessum málum og greinin væri áminn­ing um að standa við þau lof­orð. Aðeins nokkrum klukku­stundum síðar var hann lát­inn.

Á jún­ín­óttu árið 2011 brut­ust menn inn á heim­ili hins 55 ára gamla blaða­manns er hann var í fasta svefni og skutu hann til bana. Þeir létu ekki þar við sitja heldur myrtu einnig eig­in­konu hans og yngsta son þeirra hjóna. Þeir hleyptu sam­tals 400 skotum af í árásinni. Nú, ára­tug síðar, hafa morð­in­gj­arnir enn ekki fund­ist. Balbina Flores, sem fer fyrir sam­tök­unum Frétta­menn án landamæra í Mexíkó, segir að í yfir 90 pró­sent til­vika kom­ist morð­ingjar blaða­manna upp með glæpi sína í land­inu.

[adspot]

Morðið á Velasco er nú hins vegar komið til með­ferðar rann­sókn­ar­nefndar á vegum alþjóða glæpa­dóm­stóls­ins í Haag og í dag hófust opin rétt­ar­höld hans um brot á fjöl­miðla­frelsi víðs vegar um heim­inn. Morð á þremur blaða­mönnum verða tekin sér­stak­lega fyrir. Morðið á Velasco er eitt þeirra. Morðið á blaða­kon­unni og rit­stjór­anum Lasantha Wickrematunge frá Sri Lanka er annað og það þriðja er morðið á sýr­lenska blaða­mann­inum Nabil al-Sharbaji.

Nokkur alþjóð­leg sam­tök blaða­manna komu að stofnun rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar enda morð á blaða­mönnum tíð, hafa verið yfir 1.400 tals­ins frá árinu 1992. Átta af hverjum tíu eru óupp­lýst.

Flest voru þau framin í Mið- og Suður-Ameríku og á þeim slóðum er einnig lík­leg­ast að morð­ingjar kom­ist upp með verknað sinn. Ástandið er verst í Mexíkó og er landið eitt það hættu­leg­asta í heimi fyrir blaða­menn að starfa í.

Morðið á Velasco var öðrum til við­vör­unar og aðeins byrj­unin, segir Flores. Í kjöl­far þess voru fleiri blaða­menn drepnir í Veracruz-ríki Mexíkó þar sem Velasco starf­aði. Blaða­konan Yolanda Ordaz de la Cruz, sem vann með Velasco á dag­blað­inu Notiver, var einnig drepin og það aðeins mán­uði síðar. Árið 2012 var önnur blaða­kona, Regina Martinez Perez, sem starf­aði á viku­blað­inu Proceso, myrt.

Allt gerð­ist þetta í valda­tíð rík­is­stjór­ans Javier Duarte de Ochoa. Á meðan hann gegndi emb­ætti á árunum 2010-2016 voru sautján blaða­menn myrtir í Veracruz og þrír hurfu spor­laust. Hann var þekktur fyrir að láta njósna um blaða­menn og hélt „svartan lista“ yfir þá sem gagn­rýndu hann og honum mis­lík­aði.

Lítið breyttist með nýjum forseta

Rík­is­sak­sókn­ar­inn í Veracruz hélt því fram að morðið á Velasco væri tengt valda­miklum eit­ur­lyfja­barón á svæð­inu. Rannsókn máls­ins var síðar látin niður falla án þess að nokkur botn feng­ist í málið. Duarte var hins vegar ákærður fyrir spill­ingu árið 2018 og dæmdur til níu ára fang­els­is­vistar.

Er Andres Manuel Lopez Obrador varð for­seti Mexíkó árið 2018 hét hann því að auka öryggi blaða­manna í land­inu og taka fastar á málum en lítið hefur breyst. Frá því hann tók við emb­ætti hafa 43 blaða­menn verið myrtir og 69 akti­vistar, m.a. fólk sem er að berj­ast fyrir mann­rétt­indum, nátt­úru­vernd og öðrum umhverf­is­málum.

Morð á blaða­mönnum eru tíð í löndum þar sem póli­tísk ólga ríkir eða vopnuð átök geisa. Blaða­menn eru hins vegar ekki heldur öryggir í öðrum ríkjum. Morðið á blaða­kon­unni Daphne Caruana Galizia á Möltu árið 2017 er dæmi um slíkt. „Enginn á von á því að nokkuð slíkt geti gerst í Evr­ópu­sam­bands­ríki,“ segir systir hennar, Corinne Vella. „Við getum aðeins dregið þá ályktun að ef þetta er slæmt í ríkjum sem almennt verja rétt­indi fólks, gildi þess og tján­ing­ar­frelsi, þá hljóti þetta að vera enn verra á stöðum þar sem ekk­ert slíkt er í hávegum haft.“

Blaða­konan hafði verið að rann­saka Panama­skjölin og spill­ingu í heima­land­inu um það leyti sem hún var myrt. Lög­reglan hefur hand­tekið þrjá í tengslum við morðið og einn þeirra var fyrr á þessu ári sak­felldur fyrir þátt sinn í því. Í ágúst til­kynntu yfir­völd svo að við­skipta­maður sem Galizia hafði verið að rann­saka áður en hún lést verði einnig dreg­inn fyrir dóm.

Vald að greina opinberlega frá

Rann­sókn­ar­nefndin sem fjalla mun um fjöl­miðla­frelsi og morð á blaða­mönnum hefur ekki vald­heim­ildir til að sak­fella fólk en getur, í ljósi nið­ur­staðna sinna, þrýst á rík­is­stjórnir að vernda blaða­menn. Starf hennar mun einnig setja kast­ljósið á þau ríki þar sem fjöl­miðla­frelsi er fótum troðið og rann­sóknir morða á blaða­mönnum í molum. „Það felst vald í því að nafn­greina opin­ber­lega, upp­hátt, land þar sem yfir­völd hafa ekki tekið ábyrgð og van­rækt ákveðnar rann­sóknir,“segir mann­rétt­inda­lög­fræð­ing­ur­inn Almudena Bernabeu sem mun leiða rann­sókn­ar­nefnd­ina og rétt­ar­höldin. „Enginn vill heyra slíkt um sín eigin kerfi og sínar eigin stofn­anir. Ég held að það hafi gildi að tala um þetta opin­ber­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Blaðamennska

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár