Með efann að vopni

G. Sverrir Þór, blaða­maður og hag­fræð­ingur, sendi nýlega frá sér bók um hag­fræði. Hvað eru þau fræði að segja okkur um dag­legt líf og sam­fé­lags­gerð­ina?

G. Sverrir Þór
G. Sverrir Þór

Maður er nefndur G. Sverrir Þór, hag­fræð­ingur, blaða­maður, grein­andi, rit­stjóri og nú síð­ast rit­höf­undur. Hann sendi nýverið frá sér bók­ina Warning: Economics - On The Shortcomings of Modern Economics. Í stuttu máli sagt, þá er Sverrir Þór að fjalla um hag­fræði í bók­inni, og hvernig veik­leikar hennar og styrk­leikar birt­ast okkur í dag­legu lífi.

Bókin er afar áhuga­verð, svo það komi skýrt fram, í upp­hafi við­tals. Lip­ur­lega skrifuð og í henni er sterkur og þungur tónn; efa­semda­rödd blaða­manns­ins og fræði­leg nálgun hag­fræð­ings­ins. Augljóst er að Sverrir Þór hefur gott vald á hag­fræð­inni og efnið á brýnt erindi, ekki síst á tímum þar sem túlkun upp­lýs­inga ræður ferð­inni um hvert skuli haldið, ekki síst á hinu póli­tíska sviði.

Sverrir Þór var lengi hluti af öfl­ugri við­skipta­rit­stjórn Morg­un­blaðs­ins, sem meðal ann­ars fékk yfir sig öskr­andi nei­kvæðni og fúk­yrða­flaum frá stjórn­endum í íslensku atvinnu­lífi, þegar „litla“ banka­kreppan árið 2006 var til umfjöll­unar á síðum Morg­un­blaðs­ins. Sagan dæmir þá umfjöllun vel, en við­brögð margra við henni illa.

Hann nýtti sér virkni í Amazon-vef­bóka­búð­inni og gaf nýja bók sína út sjálf­ur, til lest­urs á Kindle-spjald­tölv­um. Hana má einnig panta í stórri kilju hjá Amazon þar sem bók­in er prentuð eft­ir pönt­un.

Hún hefur þegar fengið góð við­brögð les­enda.

Hvers vegna ákvaðstu að gefa pæl­ingar þínar um hag­fræð­ina út á bók? Hvað var það sem rak þig til þess? Þú veltir mikið fyrir þér for­sendum hag­fræð­innnar, og hvernig umræða og ákvarð­ana­taka markast af þeim. Ertu að segja að hag­fræði séu „hættu­leg“ fræði, eða kannski gölluð?

„Frá því að ég hóf nám í hag­fræði við háskól­ann i Skövde í Svíþjóð á vor­önn 2002 hef ég alltaf verið frekar skept­ískur í garð ýmissa þeirra for­sendna sem ég nefni í bók­inni. Ég hef oft velt fyrir mér hvers vegna það er og hef yfir­leitt kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að það séu tveir þættir. Sá fyrri er að ég var orð­inn 27 ára gam­all, hafði farið beint í háskóla eftir stúd­ents­próf og síðan hætt og farið að vinna fyrir mér, verið atvinnu­laus og þar fram eftir götum. Þannig lærði ég að lífið er ekki alltaf dans á rósum og að engin tvö líf eru eins og engar tvær mann­eskjur eru eins. Við bregð­umst á mis­mun­andi hátt við mis­mun­andi aðstæðum,“ segir Sverri Þór, og heldur áfram: „Hinn þátt­ur­inn er sá að mér hefur alla tíð verið kennt að hugsa sjálf­stætt og draga allt sem kenn­arar segja mér í efa, það sé besta leiðin til að læra og skilja efnið. Það má eflaust deila um nota­gildi þess og stundum hefur mér tek­ist að koma mér í ónáð vegna þessa en á móti kemur að ég nálg­ast vanda­mál og spurn­ingar á annan hátt en margir aðrir. Ég tel að það hafi verið sam­spil þess­ara tveggja þátta hafi orðið til þess að ég var oft mjög skept­ískur, alls ekki alltaf og margt af því hag­fræðin kennir okkur er rök­rétt en annað er í mínum huga tómt bull. Þrátt fyrir það heill­að­ist ég mjög af fag­inu og ákvað að klára námið og ég reyndi oft að telja mér trú um að þó þetta sé kennt svona í grun­nám­inu þá þýði það ekki endi­lega að fræði­menn not­ist við full­komna, skil­virka mark­aði og þess háttar þegar verið er að byggja líkön og fræði­kenn­ingar. Ég hef samt alltaf haft mínar efa­semdir og held að ég hafi nálg­ast hag­fræð­ina á annan hátt en margir aðrir gera. Þegar ég fór svo að vinna fyrir mér sem hag­fræð­ingur, eða rétt­ara sagt hag­fræði­blaða­maður á við­skipta­rit­stjórn Morg­un­blaðs­ins juk­ust efa­semdir mínar. Ég sá hag­fræð­ina frá öðru sjón­ar­horni en þegar ég var í nám­inu, það lá í eðli starfs­ins að ég þurfti að fylgj­ast með umræðu um hag­fræði og við­skipti á annan hátt en áður og ég þurfti að eiga sam­skipti við hag­fræð­inga í ýmsum fyr­ir­tækjum og stofn­unum sem og útlenda fræði­menn sem komu til land­ins, eins og til dæmis Arthur Laffer og auð­vitað Robert Aliber. Eins og ég skrifa í inn­gangi bók­ar­innar þá fannst mér margt skrítið sem var að eiga sér stað á Íslandi, og ég held að það hafi komið skýrt fram í mörgu af því sem ég skrif­aði í Moggann á þeim tíma, en ég taldi mig ekki hafa for­sendur til þess að „debatt­era” það við fræði­menn sem höfðu lokið dokt­ors­námi.“

Efinn leiddi til doktorsnáms

Skömmu áður en hrunið skall á á Íslandi, í októ­ber 2008, þá ákvað Sverrir Þór að fara til Sví­þjóðar í dokt­ors­nám í hag­fræði. „Þegar þangað var komið sá ég með eigin augum hvernig rann­sókn­ar­að­ferð­irnar eru byggðar upp. Ég ræddi þetta oft við sam­nem­endur mína, reifst um það við kenn­ar­ana, og þegar ég var sjálfur að kenna hamr­aði ég á því við nem­end­urna að draga allt í efa sem ég og aðrir kenn­arar reyndu að troða inn í haus­inn á þeim. Mynda sér eigin skoðun, það var það mik­il­væg­asta. Ég átt­aði mig á því að dokt­ors­nám er í raun ekk­ert annað en und­ir­bún­ingur fyrir starfsævi í aka­dem­í­unni (líkt og Martin Wolf forðum daga) og þar lang­aði mig ekki að vinna.“

Á nær sama tíma­punkti og dokt­ors­námið hefst þá skellur á dýpsta efna­hag­skreppa á fjár­mála­mörk­uðum um allan heim. Sverrir Þór segir þetta hafa verið lær­dóms­ríkt. Veik­leik­arnir í hag­fræð­inni hafi orðið aug­ljós­ari. „Þegar ég fylgd­ist með umræð­unni þá blöskr­aði mér hversu getu­laus hag­fræðin var að bæði sjá krepp­una fyrir og að bregð­ast við henni. Menn þrös­uðu meira um póli­tíska hug­mynda­fræði og reyndu í fullri alvöru að kenna almenn­ingi um hvernig hafði farið. Í Banda­ríkj­unum tók fátækt fólk lán til þess að reyna að koma undir sig fót­unum og fá sinn skerf af amer­íska draumnum, í Grikk­landi fór fólk snemma á eft­ir­laun sem voru ríf­lega skömmtuð og á Íslandi var talað um að almenn­ingur hefði eytt um efni fram, meðal ann­ars í flat­skjái. Það sem eng­inn nefndi var að þetta gerði fólk vegna þess að kerfið (sam­fé­lagið) bauð upp á það og hvatti til þess. Í Grikk­landi hefði fólk ekki farið á eft­ir­laun um fer­tugt nema af því að það var í boði. Á Íslandi hefði fólk ekki keypt flat­skjái og jeppa nema af því að því var leyft að nota hús­næðið sitt sem hrað­banka (og taka yfir­drætti þess til við­bótar) og í Banda­ríkj­unum hefði lág­stétt­ar­fólk ekki reynt að kaupa sér hús með lán­uðu fé ein­göngu nema af því að bank­arnir buðu upp á það (og hvöttu til þess) og földu síðan áhættu­mestu lánin í flóknum vafn­ingum sem þeir skildu ekki sjálfir. Eitt af því sem fór ógur­lega í taug­arnar á mér var að þessi áhættu­miklu lán í USA voru kölluð subprime (und­ir­málslán á íslensku). Með því er verið að ýja að því að fólk sem tók lánin en átti í raun aldrei mögu­leika á að borga þau upp, eða einu sinni borga vext­ina, hafi verið ann­ars flokks fólk, und­ir­máls­fólk,“ segir Sverrir Þór.

Ekki neytandanum að kenna

Þó vita­skuld megi færa fyrir því rök að hinn almenni neyt­andi hafi átt að átta sig á því að þetta væri ekki sjálf­bær þróun, eins og hag­fræðin gerir raunar ráð fyrir - að fólk sé alltaf skyn­samt og rök­rænt - Þá sé þetta líkar ofboðs­lega barna­leg heims­mynd. „Vita­skuld voru ein­hverjir sem ekki tóku þátt í brjál­æð­inu og hafa eflaust ekki beðið neitt tjón þegar allt hrundi en þorri almenn­ings hafði engar for­sendur til þess að meta stöð­una rétt. Bankinn sagði þeim að þetta væri allt í lagi, blöðin sögðu þeim að þetta væri allt í lagi, meira að segja rík­is­stjórnin sagði þeim að þetta væri allt eðli­legt (og það ekki bara á Íslandi). Mik­il­væg­ast af öllu er að mað­ur­inn í næsta húsi sagði þeim að þetta væri allt í lagi og það er hann sem við miðum okkur við, við öfundum hann ef hann á flott­ari bíl (jafn­vel þótt okkur finnst hann snobbuð pjatt­rófa) og við viljum líka eiga þannig bíl.

Ramminn verður að halda

Sverrir Þór segir að vanda­málið sé ekki hinn almenni neyt­andi, þegar kemur að hinum ýmsum málum, heldur þurfi að móta umgjörð­ina í sam­fé­lag­inu rétt. „Vanda­málið er ekki að hinn almenni neyt­andi neyti innan þess ramma sem honum er veittur heldur að ramm­inn er snið­inn eins og hann er og það er á ábyrgð þeirra sem sníða rammann, það er stjórn­mála­manna. Þeim er hins vegar vor­kunn, hinn almenni stjórn­mála­maður hefur ekki meira vit á hag­fræði en hinn almenni neyt­andi en samt er ætl­ast til þess að stjórn­mála­menn móti efna­hags­stefnu. Sér til stuðn­ings hafa þeir ráð fræði­manna, sem þeir reyna að lesa sér til um en án þess þó að vita eða skilja hvaða for­sendur liggja að baki nið­ur­stöðum hag­fræði­lík­an­anna. Eitt af því sem ég rak mig á í nám­inu var að fræði­menn eru alls ekki allir nógu dug­legir við að greina frá því hvaða for­sendur liggja að baki, sér­stak­lega ekki í sam­an­tekt­inni sem í raun er eina sæmi­lega auð­lesna efnið í skrifum þeirra,“ segir Sverrir Þór. „Það má segja að þetta hafi verið kveikjan að bók­inni. Ég hafði lengi velt því fyrir mér að skrifa bók um van­kanta hag­fræð­innar og hafði ákveðið titil bók­ar­innar löngu áður en ég byrj­aði að skrifa. Þótt ég hafi alls ekki viljað við­ur­kenna það á þeim tíma þá var ég senni­lega búinn að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu snemma árs 2011 að ég myndi aldrei klára dokt­ors­námið (að minnsta kosti í und­ir­með­vit­und­inni). Ég vildi samt ekki að þessi ár yrðu til einskis og ég vildi ekki flytja til Íslands þannig að ég þrjóskað­ist við í átta mán­uði og vann sem sam­hliða nám­inu við blaða­mennsku. Mig minnir að það hafi verið í maí 2011 sem ég fann þörf til að byrja á bók­inni og eftir á að hyggja held ég það sem hafi orðið til þess að ég ákvað það á end­anum hafi verið þörfin fyrir að setja pæl­ing­arnar mínar á blað, sem eins konar and-dokt­ors­rit­gerð. Það sem rak mig áfram var síðan umræðan um ábyrgð almenn­ings og dag­legar fréttir um hvernig vald­hafar heims­ins þrös­uðu um hvernig leysa ætti vand­ann en þeir komust aldrei að neinni nið­ur­stöðu enda öðru fremur að þrasa um póli­tíska hug­mynda­fræði. Umræðan var um vissu­lega um efna­hags­mál og þar af leið­andi einnig um hag­fræði en út frá póli­tískum gildum.“

Fyrir leikmanninn

Sverrir Þór segir að með bók­inni hafi hann viljað setja fram efa­semda­rödd um hag­fræði, en með skýrum og auð­skilj­an­legum hætti. Hvað eru þessi atriði að segja okkur? Hvers vegna er þetta svona? 

Þessar spurn­ingar köll­uð­ust oft á móti text­anum í bók­inni, þegar hún var lesin. Í raun rúm­ast þessar raddir innan hag­fræði alveg eins og ann­arra fræða. Í því liggur styrkur þess­arar bókar. Hún er afbragðs­grein­ing á alls konar álita­málum hag­fræð­innar, sem eru allt um lykj­andi alla daga. Þegar við förum í búð, þegar við ræðum saman á kaffi­stof­unni, þegar við erum að vinna, þegar við sitjum á skóla­bekk og kannski síð­ast en ekki síst; þegar við hlustum á stjórn­mála­menn og veljum svo á milli þeirra í kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Blaðamennska

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár