Seldi bak við luktar dyr - Umfjöllun í eitt og hálft ár

Sala Lands­bank­ans á eign­ar­hlutum í Borgun hefur dregið dilk á eftir sér. Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um málið, en blaða­menn Kjarnans voru til­efndir til verð­launa fyrir það í fyrra einnig. Ekki eru öll kurl komin til grafar enn.

Hinn 27. nóv­em­ber 2014 flutti Kjarninn fréttir af því að Lands­bank­inn hefði selt 31,2 pró­sent hlut í Borgun, bak við luktar dyr, til val­inna fjár­festa. Nákvæmar upp­lýs­ingar fylgdu frétt­inni, sem Magnús Hall­dórs­son skrif­aði, um eig­end­urna sem fengu að kaupa hlut­inn í lok­uðu sölu­ferli, og var hún byggð á stofn­fund­ar­gerðum, samn­ingum um við­skiptin, og upp­lýs­ingum sem aflað hafði verið með sjálf­stæðri heim­ild­ar­vinnu,.

Upplýst um aðalatriði

Í grein­inni kom í fyrsta skipti fram hvernig eig­enda­hóp­ur­inn var sam­settur, og hvernig hann skipt­ist hlut­falls­lega, hvaða eig­endur áttu svo­nefnd A-hluta­bréf og hverjir áttu B-hluta­bréf, og hvaða umboðs­menn eig­enda mættu til stofn­fundar, svo eitt­hvað sé nefnt.

Í umfjöll­un­inni sagði meðal ann­ars orð­rétt:

„Ekkert form­legt sölu­ferli fór fram áður en félagið var selt, en Magnús Magn­ús­son, for­svars­maður félags­ins, var sá sem setti sig í sam­band við Lands­banka Íslands og sýndi áhuga á kaupum á hlut Lands­bank­ans.

Kaupin fóru því fram bak við luktar dyr, þar sem eng­inn annar en hóp­ur­inn sem sýndi áhuga á kaup­unum fékk að reyna að kaupa hlut­inn. Stofnfé Eign­ar­halds­fé­lags Borgunar nemur 500 þús­und krónum sem skipt­ist í þrjá flokka, 100 þús­und í A flokki, 395 þús­und í B flokki og fimm þús­und í C flokki. Í A og B flokki eru eig­endur stofn­fjár með tak­mark­aða ábyrgð en í C flokki er ótak­mörkuð ábyrgð.

B flokk­ur­inn langstærstur

Einu eig­endur A flokks stofn­fjár er félagið Orbis Borgunar slf. Eigendur B flokks hluta­bréfa Eign­ar­halds­fé­lags Borgunar eru þrettán tals­ins, sam­kvæmt samn­ingi um sam­lags­fé­lagið sem Kjarninn hefur undir höndum. Stærsti ein­staki eig­and­inn er Stálskip ehf., þar sem Guðrún Lár­us­dóttir hefur stýrt ferð­inni í ára­tugi, með 29,43 pró­sent hlut. Þá á félagið P126 ehf. 19,71 pró­sent hlut, en eig­andi þess er Einar Sveins­son í gegnum móð­ur­fé­lagið Charamino Holdings Limited sem skráð er á Lúx­em­borg.

Þá á Pétur Stef­áns­son ehf. 19,71 pró­sent hlut, en for­svars­maður þess var Sigvaldi Stef­áns­son á stofn­fundi. Sam­an­lagður eign­ar­hlutur þess­ara þriggja stærstu eig­enda nemur 68,85 pró­sentum af B flokki stofn­fjár.

Á eftir þessum stærstu eig­endum kemur félagið Vetr­ar­gil ehf. með 5,14 pró­sent hlut og TD á Íslandi ehf. 5,15 pró­sent. Afgang­inn eiga AB 426 ehf (2,86%)., þar sem Sigurþór Stef­áns­son er í for­svari, Eggson ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta Geir­finns­dóttir er í for­svari, Bústoð ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta er einnig í for­svari, Fram­tíð­ar­brautin ehf. (4,43%), þar sem B. Jakobína Þrá­ins­dóttir er í for­svari, Iðu­steinar ehf., þar sem Magnús Pálmi Örn­ólfs­son er í for­svari, Holt og hæðir ehf., þar sem Sigríður V. Hall­dórs­dóttir er í for­svari, Spectabilis ehf., þar sem Óskar V. Sig­urðs­son er í for­svari, og Mens Manus ehf., þar sem Hjalti Þ. Krist­jáns­son er í for­svari.

Stofn­fundur í októ­ber

Samkvæmt stofn­fund­ar­gerð félags­ins, frá 23. októ­ber síð­ast­liðnum, voru fjórir ein­stak­lingar mættir fyrir hönd félag­anna Orbis Borgunar slf. og Orbis GP ehf. Þau félög eru þau einu sem eru í eig­endur stofn­fjár í C flokki með ótak­mark­aða ábyrgð. Þau sem mættu á fund­inn fyrir hönd félag­anna voru Magnús Magn­ús­son, Óskar V. Sig­urðs­son, Jóhann Bald­urs­son og Margrét Gunn­ars­dóttir.“

Opnaði á umræðu um sölu á almannaeignum

Í kjöl­far þess­ara frétta hófu fjöl­miðlar í land­inu að spyrja spurn­inga í mál­inu, og fá svör. Kjarninn hélt áfram umfjöllun sinni um málið, og fjall­aði Ægir Þór Eysteins­son, þáver­andi blaða­maður Kjarnans, meðal ann­ars ítar­lega um eig­enda­stefnu rík­is­ins þegar kemur að eign­ar­hlutum í bönkum, og hvort salan á eign­ar­hlutnum, bak við luktar dyr, sam­ræmd­ist henni. Þórður Snær Júl­í­us­son, skrif­aði enn fremur ítar­legar sam­an­tekir um málið, þar sem fjallað var um það, meðal ann­ars í sam­hengi við fyrri við­skipti og sam­keppn­is­sjón­ar­mið sem tengd­ust eign­ar­haldi bank­anna á hlutum í korta­fyr­ir­tækj­unum tveimur, Borgun og Valitor. 

Magnús, Ægir og Þórður Snær, voru til­efndir til blaða­manna­verð­launa árs­ins í fyrra vegna þess­arar umfjöll­unar. 

Áfram haldið

Í fyrra hélt umfjöllun Kjarnans um málið áfram, og voru blaða­menn saman í því að fjalla um ýmsar hliðar þess, meðal ann­ars að reyna að sann­reyna svör Lands­bank­ans um það hvers vegna eign­ar­hlutir bank­ans í Borgun hefðu verið seldir bak við luktar dyr. Undir niðri var stað­reyndin aug­ljósa leið­ar­ljós; almenn­ingur á 98,2 pró­sent í Lands­bank­anum, og þar með var sala á hlutum bank­ans í lok­uðu sölu­ferli mál sem varð­aði almenn­ing miklu.

Hinn 29. apríl í fyrra var síðan frá því greint að nýir eig­endur Borgunar hefðu notið góðs af við­skipt­unum nokkrum mán­uðum fyrr, en sam­þykkt var að greiða 800 millj­ónir til hlut­hafa í arð, í fyrsta skipti frá árinu 2007. Þetta vakti upp spurn­ingar, meðal ann­ars á hinu póli­tíska sviði, um hvort hlut­ur­inn hefði verið seldur á und­ir­verði. 

Hálfum mán­uði síðar, var síðan greint frá því að Lands­bank­inn hefði aug­lýst til sölu lít­inn eign­ar­hlut í Borgun, sem hann eign­að­ist við yfir­töku á Spari­sjóði Vest­manna­ey­inga, sam­tals 0,41 pró­sent hlut. Í þetta skiptið var ákveðið að hafa sölu­ferlið opið, en banka­ráð Lands­bank­ans, með Tryggva Pálsson sem for­mann, hafði þá við­ur­kennt mis­tök við söl­una á eign­ar­hlutnum í Borgun, og að betra hefði verið að selja hlut­inn í opnu sölu­ferli. Kom þetta fram í ræðu hans á aðal­fundi bank­ans. 

Lands­bank­inn neit­aði að gefa upp sölu­verðið á 0,41 pró­sent hlutnum í fyrstu, en upp­lýsti svo um það í jan­úar á þessu ári, þegar salan var aftur í brennid­epli. Þá höfðu Morg­un­blaðið og 365 miðlar fjallað ítar­lega um innra virði Borgunar, meðal ann­ars eftir að upp­lýs­ingar komu fram um það að félagið myndi hagn­ast veru­lega á því að fá hlut­deild í alþjóð­legum við­skiptum VISA Europe og VISA Inc. 

Ekki eru öll kurl komin til grafar ennþá í mál­inu, og sendi Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, Banka­sýslu rík­is­ins bréf á dög­unum þar sem hann minnti á að Lands­bank­inn þyrfti að njóta trausts. Í bréf­inu segir orð­rétt: „Það er mat ráð­herra að umræða und­an­far­inna vikna vegna sölu Lands­bank­ans á hlut sínum í Borgun sé til þess fallin að skaða bank­ann. Því sé nauð­syn­legt áður en lengra er haldið í því ferli að hvað­eina er máli skiptir og varðar sölu Lands­bank­ans á Borgun verði upp­lýst og málið afgreitt með þeim hætti að traust til bank­ans og stjórn­enda hans verði tryggt.“

Eig­enda­stefna rík­is­ins, er varðar fjár­mála­fyr­ir­tæki, er nú til end­ur­skoð­unar og ekki ólík­legt að til tíð­inda getið dregið í þeim málum, og öðrum er tengj­ast Borgunar-mál­inu sér­stak­lega, á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Blaðamennska

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár