Fulltrúar almennings verði valdir handahófskennt til setu á kirkjuþingi

Prestur og sátta­miðl­ari hefur lagt fram rót­tæka til­lögu til kirkju­þings þess efnis að full­trúar almennra með­lima Þjóð­kirkj­unnar, sem eru í meiri­hluta á þing­inu, verði valdir af handa­hófi. Hann segir bisk­upi Íslands þykja hug­mynd sín skemmti­leg.

Kristinn Ágúst Friðfinnsson prestur hefur lagt róttæka tillögu fyrir kirkjuþing.
Kristinn Ágúst Frið­finns­son prestur hefur lagt rót­tæka til­lögu fyrir kirkju­þing. Mynd: Skjáskot úr kvikmyndinni Hreint hjarta eftir Grím Hákonarson.

Kristinn Ágúst Frið­finns­son, prestur og sátta­miðl­ari, hefur lagt fram til­lögu til kirkju­þings, sem hefst um helg­ina, þess efnis að full­trúar verði valdir handa­hófs­kennt til þess að sitja á kirkju­þingi, sem fer með æðsta vald í mál­efnum Þjóð­kirkj­unnar.

Þetta er ansi rót­tæk til­laga og það við­ur­kennir Kristinn Ágúst sjálfur fús­lega í sam­tali við Kjarnann, en á kirkju­þingi, sem haldið er fjórða hvert ár, eiga sæti 29 full­trúar.

Eins og regl­urnar eru í dag koma tólf full­trúar úr hópi vígðra (þ.e. presta og ann­arra þjón­andi innan kirkj­unnar) og 17 úr hópi svo­kall­aðra „leik­manna“. Leik­maður getur verið hver sem er í hópi almenn­ings að því gefnu að sá hinn sami sé skírður í nafni heil­agrar þrenn­ingar, skráður í Þjóð­kirkj­una, hafi náð 18 ára aldri og hafi óflekkað mann­orð.

Á kirkju­þingi árs­ins hefur komið fram til­laga um breyt­ingar á kjöri til kirkju­þings og segir Kristinn Ágúst, í umsögn um til­lög­una, að hún sé vand­lega unnin, en geri hins vegar ráð fyrir „svip­uðum aðferðum við að velja fólk til kirkju­þings og áður hafa tíðkast.“ Því er Kristinn Ágúst lítt hrif­inn af. Hann seg­ist telja að kirkju­þing end­ur­spegli „alls ekki þann hóp sem í þjóð­kirkj­unni er“ og bætir við að Þjóð­kirkjan sé breið­fylk­ing fólks í land­inu, í henni sé fólk úr öllum stéttum, ungt, á miðjum aldri og eldri borg­arar.

„Á þetta leggjum við áherslu við hátíð­leg tæki­færi. Reynslan sýnir hins vegar að svo dræm er kosn­inga­þátt­taka að varla er hægt að tala um lýð­ræð­is­lega kosn­ingu. Einnig má hafa í huga að þrá­látur orðrómur er um að á þing­inu sitji helst þröngur hópur í tengslum við oft handa­hófs­kenndan hóp sókn­ar­nefnd­ar­fólks,“ segir Kristinn Ágúst í umsögn sinni.

Síðan leggur hann fram til­lögu sína, en hún felur í sér að í hverju kjör­dæmi „verði full­trúar leik­manna valdir handa­hófs­kennt með aðstoð tölvu­bún­aðar Þjóð­skrár eða með aðstoð tölvu­vers Háskóla Íslands úr hópi þeirra leik­manna, 18 ára og eldri, sem hlotið hafa skírn í nafni heil­agrar þrenn­ingar og skráðir eru í íslensku þjóðkirkj­una.“

Hann leggur til að val­inn verði svo stór hópur fólks í hverju kjör­dæmi að fólk geti beðist undan því að setj­ast á þingið og einnig verði hægt að und­an­skilja þá sem ekki hafa óflekkað mann­orð. „Ég skora á þing­full­trúa að hugsa þetta mál mjög vel og opið og láta ekki stjórn­ast af sjálf­hverfum sjón­ar­miðum,“ segir Kristinn Ágúst í umsögn sinni um málið.

„Þarna er verið að segja við þjóðina, þið eruð kirkjan“

Í sam­tali við Kjarnann segir Kristinn Ágúst að hann telji að full­trúar á kirkju­þingi ættu að drífa sig í að gera þetta að í stað­inn fyrir að það sé „ein­hver klíka sem kemur aftur og aftur og stjórnar þessu.“

„Þarna er verið að segja við þjóð­ina, þið eruð kirkjan, kom­iði að stjórna þessu,“ segir Kristinn um til­lögu sína og bætir við að þjóðin viti í dag almennt ekk­ert hverjir það séu sem sitji á kirkju­þingi, sem orðin sé gríð­ar­lega valda­mikil stofnun sem sýsli með gríð­ar­lega fjár­magn og eignir.

[adspot]

Það sé borð­leggj­andi að þjóðin og með­limir Þjóð­kirkj­unnar hafi meiri aðkomu að hennar æðstu stofnun, en í dag eru það ein­ungis vígðir og svo aðal- og vara­menn í kirkju­sóknum lands­ins sem hafa kosn­inga­rétt þegar kosið er til kirkju­þings.

„Núna ræður kirkju­þing alveg yfir öllum fjár­veit­ingum og biskup verður að leggja allt fyrir kirkju­þing. Kirkju­þing er búið að taka við stórum hluta af því sem Alþingi gerði áður fyrr og það eru svo miklir fjár­munir sem renna þarna í gegn að mér finnst að þetta eigi bara að vera í hönd­unum á þjóð­inni,“ segir Kristinn Ágúst.

Segir að Agnesi biskup hafi þótt hugmyndin skemmtileg

Spurður hvort hann hafi viðrað þessa hug­mynd við marga svarar Kristinn Ágúst því neit­andi, en nefnir þó að hann hafi ljáð máls á þessu við Agnesi M. Sig­urð­ar­dóttur, biskup Íslands. „Henni fannst þetta mjög skemmti­leg hug­mynd,“ segir Kristinn Ágúst.

Til við­bótar seg­ist hann hafa orðað þetta við einn eða tvo vini sína, sem hafi tekið undir að þetta væri góð hug­mynd. Nú sé hann hins vegar í fyrsta sinn að prófa hug­mynd­ina á víð­ari hópi, með því að setja hana fram til kirkju­þings­ins.

En væntir hann þess að kirkju­þing taki hug­mynd­inni fagn­andi? „Ég held að það finn­ist þetta öllum mjög sniðug hug­mynd, ég spái því, en það er alltaf ein­hver tregða þegar kemur að því að afhenda völd,“ segir Kristinn Ágúst, sem telur að það sé eitt­hvað í mann­legu eðli sem geri það að verkum að það sé erfitt að sjá eftir vald­inu.

Hann telur að kirkju­þing hefði gott af því að ferskan og góðan hóp inn með slembivali, það væri því hrein­lega hollt. Þá seg­ist hann ekki frá því að það myndi auka áhuga almenn­ings á mál­efnum Þjóð­kirkj­unnar.

Vill leggja niður „tilgangslaus“ vígslubiskupaembætti

Tillagan um handa­hófs­kennt val á kirkju­þing er ekki sú eina sem Kristinn Ágúst leggur fyrir kom­andi kirkju­þing, heldur hefur hann einnig sent inn umsögn um þær hag­ræð­inga­að­gerðir sem liggja fyrir kirkju­þingi, en til stendur að spara 180-190 millj­ónir á ári með því að fækka stöðu­gildum presta um rúm­lega tíu, eins og Kjarninn sagði frá fyrr í vik­unni.[links]

Kristinn Ágúst segir við Kjarnann að hann telji að ná mætti fram sparn­aði með því að leggja niður „algjör­lega til­gangs­laus og inni­halds­laus vígslu­bisk­up­a­emb­ætti,“ og sömu­leiðis sér­stök emb­ætti pró­fasta í fullu starfi. Þannig mætti spara hátt í 100 millj­ónir króna, að hans mati, í stað þess að fækka prests­emb­ættum eins mikið og ráð­gert er.

Blaða­maður, ókunn­ugur því hlut­verki sem vígslu­bisk­upar gegna, spurði hvert hlut­verk þeirra væri í skipu­riti Þjóð­kirkj­unnar. „Þeir myndu telja eitt­hvað upp ef þeir væru spurðir, en þeir gera ekki neitt. Þeir hafa engin völd. Það var slys að þeir voru settir inn í lögin aftur árið 1990,“ segir Kristinn Ágúst, sem telur pró­fasta­kerfið hér á landi vera „sterkt og mikið“ þannig að það sé „algjör óþarfi að vera með vígslu­bisk­upa.“

Hann telur að hag­ræð­ing­ar­til­lög­urnar eins og þær séu settar fram þyngi yfir­bygg­ingu kirkj­unnar og veiki und­ir­stöð­urnar, með fækkun prests­emb­ætta um landið og í sér­þjón­ustu.

„Þetta er bara bull og þetta er vit­leysa,“ segir séra Kristinn Ágúst Frið­finns­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár