Lagt til að prestum landsbyggðar verði fækkað í hagræðingaraðgerðum

Í hag­ræð­ing­ar­til­lögum sem liggja fyrir kirkju­þingi er gengið út frá því að prestum á lands­byggð­inni fækki um tíu, en að stöðu­gildum fjölgi hins vegar um 3,5 í presta­köllum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Heilt yfir myndi stöðugildum presta fækka um 10,7, samkvæmt þeirri tillögu sem liggur fyrir kirkjuþingi.
Heilt yfir myndi stöðu­gildum presta fækka um 10,7, sam­kvæmt þeirri til­lögu sem liggur fyrir kirkju­þingi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem liggur fyrir kirkju­þingi Þjóð­kirkj­unnar, sem hefst á laug­ar­dag, er lagt til að gripið verði til breyt­inga á fjölda stöðu­gilda sem sparað geti kirkj­unni um það bil 180 til 190 millj­ónir króna á árs­grund­velli.

Hag­ræð­ing­ar­til­lögur sem settar eru fram gera ráð fyrir því að stöðu­gildum í pró­fasts­dæmum á lands­byggð­unum fækki um 10, en á móti er lagt til að stöðu­gildum fjölgi um 3,5 í presta­köllum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Í minn­is­blaði um hag­ræð­ingu í manna­haldi kirkj­unnar, sem unnið var af for­manni fjár­hags­nefndar kirkju­þings og skrif­stofu­stjóra bisk­ups­stofu, með umboði frá bisk­upi Íslands, er útli­stað hvaða breyt­ingar er lagt til að gerðar verði.

Eigi ekki að þurfa að koma til uppsagna

Í minn­is­blað­inu segir að lagt sé til að stöðu­gild­unum verði fækkað á næstu tveimur árum og á því tíma­bili verði „heim­ildir til að færa fólk til í störfum nýttar eins vel og fram­ast er unnt auk þess sem samið verði um starfs­lok og/eða skert starfs­hlut­fall þar sem það geti átt við.“

Ef þessar leiðir verði mark­visst nýttar ætti ekki að þurfa að koma til upp­sagna nema í algjörum und­an­tekn­ing­ar­til­fellum, sam­kvæmt því segir í minn­is­blað­inu, en stefnt er að því að með þessum breyt­ingum fari stöðu­gildi presta niður í 134,7, sem sé fækkun um 10,5 stöðu­gildi, en auk breyt­inga í presta­köllum landið eru lagðar til breyt­ingar á stöðu­gildum sér­þjón­ustu­presta.

Í Reykja­vík­ur­pró­fasts­dæmi vestra er lagt til að fjöldi stöðu­gilda verði óbreyttur og að þau verði 17 tals­ins. Í Reykja­vík­ur­pró­fasts­dæmi eystra er lagt til að stöðu­gildi verði 24, sem er fjölgun um 1,5 stöðu­gildi. Í Kjal­ar­nes­pró­fasts­dæmi sem nær m.a. yfir Reykja­nesið, Garðabæ, Hafn­ar­fjörð og Mos­fellsbæ, er lagt til að stöðu­gildum fjölgi um tvö þannig að þau verði 20 tals­ins. Alls myndu því 3,5 stöðu­gildi að bæt­ast við í pró­fasts­dæmum á suð­vest­ur­horn­inu.

Í Vest­ur­lands­pró­fasts­dæmi er lagt til að stöðu­gildi verði 10, sem er fækkun um eitt stöðu­gildi. Lagt er til að fækk­unin verði við sam­ein­ingu Ólafs­víkur- og Ingj­alds­hóls-, Setbergs-, Staða­staðar- og Stykk­is­hólms­presta­kalla.

Í Vest­fjarða­pró­fasts­dæmi er lagt til að stöðu­gildi verði 5,5, sem er fækkun um tvö stöðu­gildi. Í Breiða­fjarðar- og Stranda­presta­kalli er lagt til að fækkað verði um eitt stöðu­gildi, sem ekki er setið í dag og í Ísa­fjarð­ar­presta­kalli er lagt til að fækkað verði um eitt stöðu­gildi.

[adspot]

Í Húna­vatns- og Skaga­fjarð­ar­pró­fasts­dæmi er lagt til að stöðu­gildum fækki um tvö, þannig að þau verði sex tals­ins. Fækkunin á sér stað við sam­ein­ingu Mel­staðar-, Hvamms­tanga-, Skaga­strandar- og Þing­eyr­ar­presta­kalla og við sam­ein­ingu Glaum­bæjar-, Hófsós-, og Hóla-, Mikla­bæjar- og Sauð­ár­króks­presta­kalla.

Í Eyja­fjarðar- og Þing­eyj­ar­pró­fasts­dæmi er lagt til að stöðu­gildum fækki um tvö og þau verði alls 14. Fækkað verður um eitt stöðu­gildi við sam­ein­ingu Ólafs­fjarðar-, Siglu­fjarðar- og Dal­vík­ur­presta­kalla og sömu­leiðis um eitt stöðu­gildi við sam­ein­ingu Húsa­víkur-, Grenja­staðar-, Skútu­staða- og Langanes og Skinna­stað­ar­presta­kalla.

Í Aust­ur­lands­pró­fasts­dæmi er lagt til að fækkað verði um tvö stöðu­gildi og að þau verði alls átta tals­ins. Fækkunin er ráð­gerð í Aust­fjarða­presta­kalli, þar sem stöðu­gildum fækkar um eitt, auk þess sem lagt er til að stöðu­gildi hér­aðs­prests verði lagt niður.

Í Suð­ur­pró­fasts­dæmi er lagt til að stöðu­gildum fækki um eitt og þau verði 16. Fækkunin á sér stað við sam­ein­ingu Breiða­ból­staðar-, Fells­múla-, og Odda­presta­kalla.

Fækkað um fjögur stöðugildi í sérþjónustu

Hvað sér­þjón­ustu varðar er lagt til að fækka stöðu­gildum um fjögur. Sér­þjón­ustu­prestar yrðu því tólf tals­ins í 11,2 stöðu­gildum.

Svoköll­uðum samn­ings­prestum fækkar um þrjú stöðu­gildi, niður í eitt og hálft stöðu­gildi, prestur sátta verður aflagður, sjúkra­hús­prestur sömu­leiðis og prestur kvenna­kirkju verður færður í hálft stöðu­gildi, sam­kvæmt til­lög­unni.

Á móti kemur verður stöðu­gildum far­presta fjölgað um eitt og hálft, upp í tvö.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár