Pálmaolía kostar stórfyrirtæki umhverfisvottun

Kóreskt stór­fyr­ir­tæki er sakað um að brjóta á mann­rétt­indum frum­byggja í Papúa hér­aði í Indónesíu sem og að hafa borið eld að regn­skógum á svæð­inu til þess að rýma fyrir olíu­pálma­rækt.

Víða í Indónesíu hafa regnskógar þurft að víkja fyrir olíupálmarækt.
Víða í Indónesíu hafa regn­skógar þurft að víkja fyrir olíu­pálma­rækt. Mynd: Greenpeace

Einn stærsti fram­leið­andi papp­írs í Suð­austur-Asíu, kóreska stór­fyr­ir­tækið Korindo, hefur nú verið sviptur sjálf­bærni­vottun sam­tak­anna Forest Stewardship Council (FSC) vegna umfangs­mik­illar pálma­ol­íu­fram­leiðslu sinnar sem höggvið hefur stórt skarð í regn­skóga Papúa hér­aðs í Indónesíu. Í umfjöllun BBC um málið kemur fram að fyr­ir­tækið hafi rutt í burtu tugum þús­unda hekt­ara af regn­skógum Papúa fyrir olíu­pálma­ræktun sína og að grein­ing FSC bendi til þess að eldar hafi verið bornir að skóg­unum af ásettur ráði. Því hafna for­svars­menn Korindo. [links]

Samkvæmt upp­lýs­ingum á vef Umhverf­is­stofn­unar er í FSC vott­aðri skóg­rækt ekki felld fleiri tré en skóg­ur­inn nær að end­ur­nýja. Þá tryggir slík vottun að dýra- og plöntu­líf sé verndað og að starfs­menn skóg­rækt­ar­innar fái nauð­syn­legan örygg­is­út­búnað og sæmi­leg laun. Allur pappír sem Korindo fram­leiðir hefur, þar til nú, haft slíka FSC vottun.

Ekkert fyr­ir­tæki hefur yfir jafn­miklu land­svæði að ráða í Papúa hér­aði líkt og Korindo. Alls hefur fyr­ir­tækið rutt um 60 þús­und hekt­urum af skógi fyrir ræktun sína á Papúa á því land­svæði sem það hefur nýt­ing­ar­rétt. Kiki Taufik, yfir­maður Greenpeace í Suð­austur-Asíu segir það löngu tíma­bært að FSC svipti Korindo þess­ari vottun. Vanda­málið sé þó ekki bundið við stór­fyr­ir­tæki, líkt og Taufik segir í sam­tali við BBC, því indónesísk stjórn­völd halda áfram að „veita fyr­ir­tækjum líkt og Korindo nýt­ing­ar­leyfi á skógum, og þar með rétt til þess að traðka á rétt­indum frum­byggja.“ [adspot]

Miklir hagsmunir í húfi

Olíu­pálma­ræktun í land­inu er mikið hags­muna­mál fyrir yfir­völd en ekk­ert land í heimi flytur út meira af pálma­olíu en Indónesía. Í fyrra nam virði útfluttrar pálma­olíu frá Indónesíu um 19 millj­örðum Banda­ríkja­dala, sem sam­svarar hátt í 2400 millj­örðum króna. Regn­skógar Papúa höfðu þar til á síð­ustu árum verið ósnertir en stjórn­völd hafa í rík­ari mæli opnað fyrir aðkomu fyr­ir­tækja í hér­að­inu með það fyrir augum að auka hag­sæld á svæð­inu. Þar af leið­andi hefur ótam­inn regn­skóg­ur­inn þurft í miklum mæli að víkja fyrir skipu­lögðum röðum af olíu­pálmum.

Þrátt fyrir að þetta sé gert með hag­sæld í huga hefur þetta haft í för með sér að fólk sem býr á svæð­inu hefur þurft að breyta lifn­að­ar­háttum sínum, líkt og rakið er í ítar­legri frétta­skýr­ingu BBC frá því í fyrra um starf­semi Korindo á svæð­inu. Það að auki hafa þær umbætur sem lofað var af fyr­ir­tæk­inu þegar það fór að gera sig gild­andi á svæð­inu ekki orðið að veru­leika.

Von á lagafrumvarpi um bann við notkun pálmaolíu

Pálma­olía er notuð í stórum stíl í alls kyns vörur sem fólk notar og kaupir jafn vel á hverjum degi, til dæmis í snyrti­vörum, sápum, súkkulaði, brauði, kökum, kexi og elds­neyti. Samkvæmt svari á vef Vís­inda­vefs­ins gefur um einn hekt­ari af olíu­pálma af sér um þrjú tonn af pálma­olíu og 250 kíló af pálma­kjarna­olíu. Svarið fjallar um hvað ein­stak­lingar geti gert til þess að koma í veg fyrir eyð­ingu regn­skóga. Það að snið­ganga vörur með pálma­olíu er eitt af þeim atriðum sem nefnd eru í svar­inu.

Í des­em­ber í fyrra var þings­á­lykt­un­ar­til­laga um ráð­staf­anir til að draga úr notkun pálma­olíu á Íslandi sam­þykkt. Ferða­mála- iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra hefur því verið falið að vinna áætlun um tak­mörkun á notkun pálma­olíu í allri fram­leiðslu á Íslandi og leggja fram frum­varp um bann við notkun hennar í líf­dísil. Í sam­þykktri til­lögu segir að ráð­herra skuli kynna nið­ur­stöður og leggja fram frum­varp til laga um bann við notkun á pálma­olíu í líf­dísil eigi síðar en í lok þessa árs.

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni kemur fram að pálma­olía sé notuð í mat­væla­fram­leiðslu hér á landi þó að dregið hafi úr notkun hennar á síð­ustu árum. Aftur á móti hefur olían verið í auknum mæli verið notuð sem elds­neyti eða íblöndun í elds­neyti. Reiknað hefur verið út að líf­elds­neyti frá jurta­olíu, sem er um 70 pró­sent af líf­elds­neyt­is­mark­aði í Evrópu, losi 80 pró­sent meira af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum en jarð­efna­elds­neytið sem verið er að skipta út. „Pálma­olía trónir þar hæst og er þrisvar sinnum verri en jarð­efna­elds­neyti, en næst á eftir kemur soja­olía sem er tvisvar sinnum verri,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár