Oddvitar ríkisstjórnarflokkanna í NA-kjördæmi vilja fjölga kjördæmum

Oddvitar Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Vinstri grænna og Fram­sóknar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi segj­ast vilja fjölga kjör­dæmum lands­ins í við­tali við Aust­ur­frétt.

Njáll Trausti Friðbertsson, Ingibjörg Ólöf Isaksen og Óli Halldórsson, oddvitar ríkisstjórnarflokkanna í Norðausturkjördæmi.
Njáll Trausti Frið­berts­son, Ingi­björg Ólöf Isaksen og Óli Hall­dórs­son, odd­vitar rík­is­stjórn­ar­flokk­anna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Mynd: Samsett

Betra væri að fjölga kjör­dæmum lands­ins í stað þess að fækka þeim, að mati odd­vita þriggja rík­is­stjórn­ar­flokk­anna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Þetta kemur fram í svörum odd­vit­anna við spurn­ingum Aust­ur­fréttar, sem birt voru fyrr í dag.

Samkvæmt Aust­ur­frétt er nú raun­veru­legur mögu­leiki á að eng­inn Aust­firð­ingur verði á Alþingi á næsta kjör­tíma­bili, ef tekið er mið af fram­boðs­listum stjórn­mála­flokk­anna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi og þeim skoð­ana­könn­unum sem gerðar hafa verið í vor. Þetta yrði í fyrsta skiptið sem slíkt gerð­ist í lýð­veld­is­sög­unni.

Líkt og Kjarninn greindi frá sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra fyrr í vor að fyrir sitt leyti kæmi það til greina að fjölga kjör­dæmum í lands­byggð­unum. Í sam­tali við Vísi nefndi Bjarni sér­stak­lega að hægt væri lands­byggð­ar­kjör­dæmum í tvennt, svo að fólk fengi meiri nálægð við sína full­trúa á þingi.

Fyrr í dag birti svo Aust­ur­frétt svar odd­vita Norð­aust­ur­kjör­dæmis um stefnu þeirra varð­andi kjör­dæma­skipan lands­ins, en sam­kvæmt þeim vilja odd­vitar rík­is­stjórn­ar­innar fjölga kjör­dæmum, á meðan odd­vitar Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisnar vilja fækka þeim.

Njáll Trausti Frið­berts­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, segir kjör­dæmin nú vera land­fræði­lega mjög stór og tekur undir orð Bjarna um að fjölgun þeirra myndi færa full­trúum á þingi nær kjós­endum sínum.

Óli Hall­dórs­son, odd­viti Vinstri grænna í kjör­dæm­inu, er sam­mála og segir far­sælla að fjölga kjör­dæmum heldur en að fækka þeim svo að kjörnir full­trúar hafi skýrt umboð frá kjós­endum sínum um allt land. Ingi­björg Ólöf Isaksen, odd­viti Fram­sóknar í kjör­dæm­inu er einnig sama sinnis.

Logi Ein­ars­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, seg­ist hins vegar ekki vera viss um að það yrði gæfu­spor að fjölga kjör­dæmum, þótt margt sé áhuga­vert við þá hug­mynd. Samkvæmt honum eiga íbúar Norð­aust­ur­kjör­dæmis margt sam­eig­in­legt og hafa hags­muni af því að sam­eina krafta sína á þingi.

Eiríkur Björn Björg­vins­son, odd­viti Við­reisnar í kjör­dæm­inu, segir að full ástæða sé til þess að end­ur­skoða kjör­dæma­skipan lands­ins, en leggur áherslu á að efla sveit­ar­stjórn­ar­stigið til þess að koma meira valdi til íbú­anna. Samkvæmt honum mun Viðreisn leggja loka­hönd á stefnu sína í mál­inu á lands­þingi flokks­ins í næsta mán­uði.

Einar Brynj­ólfs­son, odd­viti Pírata í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, seg­ist ekki telja rétt að hrófla við kjör­dæma­skipan að sinni, þar sem aðstæður kjós­enda séu mis­jafnar umhverfis landið og þarfir mjög ólíkar, þótt íbú­arnir séu ekki margir. Hins vegar segir hann að landið ætti að verða eitt kjör­dæmi þegar lands­byggð­irnar verða orðnar nokkuð sjálf­bærar hvað þjón­ustu, menntun, atvinnu, sam­göngur og heil­brigð­is­mál varðar, en enn sé langt í það.

Uppfært kl. 15:32: Ummælum Einars Brynj­ólfs­sonar var bætt við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

norðausturkjördæmi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár