Ráðast í hópfjármögnun til að halda einu þekktasta kennileiti Bilbao í blóma

Eitt af þekkt­ari verkum í saf­n­eign Gug­gen­heim safns­ins í Bilbao er tólf metra hár hvolpur sem sam­anstendur af blómum. Hvolp­ur­inn sem hefur staðið við inn­gang safns­ins í bráðum ald­ar­fjórð­ung þarfn­ast nú við­gerða.

Frá heimsókn spænsku konungshjónanna í Guggenheim safnið í Bilbao í júlí í fyrra.
Frá heim­sókn spænsku kon­ungs­hjón­anna í Gug­gen­heim safnið í Bilbao í júlí í fyrra. Mynd: EPA

Gug­gen­heim safnið í Bilbao hefur hrint af stað fjár­öflun til þess að fjár­magna við­gerðir á einu fræg­asta lista­verki safns­ins, Hvolpnum eftir Banda­ríska lista­mann­inn Jeff Koons. Hvolp­ur­inn er tólf metra hár skúlp­túr sem sam­anstendur af hinum ýmsu blóma­teg­undum, til að mynda begón­íum, tóbaks­hornum, brúð­ar­augum og flauels­blómum. Útlit lista­verks­ins tekur reglu­lega breyt­ingum en blómunum er skipt út tvisvar á ári. Lista­verkið er meðal þekkt­ustu kenni­leita borg­ar­innar og það sama má segja um safn­bygg­ing­una sem hönnuð er af Frank Gehry. [adspot]

Stefnt er að því að safna 100 þús­und evrum, tæpri einni og hálfri milljón króna, til þess að hægt sé að ráð­ast í þarfar end­ur­bætur á þeim hluta verks­ins sem alla jafna er fal­inn handan við lit­ríkt blóm­skrúðið. Undir blómunum er burð­ar­virki úr stáli auk sér­staks frá­veitu­kerfis.

„Ysti hluti verks­ins er í frá­bæru ástandi og honum hefur ekk­ert hrakað,“ er haft eftir Ainhoa Sanz, yfir­for­verði safns­ins, í umfjöllun The Guardian um lista­verkið. Engu að síður hefur frá­veitu­kerfi lista­verks­ins farið að leka svo því þarf að skipta út ásamt hluta af stál­inu í grind verks­ins.

Listaverk og lóðréttur blómagarður

Að sögn upp­lýs­inga­full­trúa safns­ins, Begoña Martínez Goyenaga, er þetta í fyrsta skipti sem safnið aflar fjár­muna með þessum hætti. „Við ákváðum að not­ast við hóp­fjár­mögnun vegna þess að verkið er svo þekkt og dáð, það er mikið ljós­myndað og orðið að tákn­mynd fyrir borg­ina svo við vildum gefa öllum þeim sem elska Hvolpinn tæki­færi til þess að taka þátt í við­gerð­unum á þessu lista­verki sem jafn­framt er lóð­réttur blóma­garður.“

Lista­verkið var fyrst sýnt í borg­inni Kassel í Þýska­landi árið 1992 í tengslum við lista­há­tíð­ina Documenta sem þar er haldin á fimm ára fresti. Verkið var síðan end­ur­reist við höfn­ina í Sydney árið 1995. Solomon R Gug­gen­heim stofn­unin festi loks kaup á verk­inu árið 1997 fyrir safnið í Bilbao en það opn­aði í októ­ber það sama ár. Síðan þá hefur Hvolp­ur­inn staðið við inn­gang safns­ins og boðið gesti þess vel­komna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár