Segir hátt vægi ferðaþjónustu og stífa kjarasamningagerð vera áhyggjuefni

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn segir að auk­inn sveigj­an­leiki á vinnu­mark­aði, til dæmis með því að láta laun fylgja fram­leiðni­þróun í meira mæli, gæti komið í veg fyrir að far­ald­ur­inn valdi lang­tíma­skaða í hag­kerf­inu.

AGS býst ekki við að jafnmargir muni ferðast á næstu árum og á árunum fyrir faraldurinn.
AGS býst ekki við að jafn­margir muni ferð­ast á næstu árum og á árunum fyrir far­ald­ur­inn. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kreppan sem skall á vegna far­ald­urs­ins gæti orðið mikil og þrá­lát hér á landi, þar sem til­tölu­lega stór hluti hag­kerf­is­ins reiðir sig á ferða­þjón­ustu. Nauð­syn­legt er að auka sveigj­an­leika á vinnu­mark­aðnum, til dæmis með breyttri kjara­samn­inga­gerð, til að koma í veg fyrir lang­tíma­skaða.

Þetta kemur fram í skýrslu Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins um stöðu og horfur í íslenskum efna­hags­málum, sem birt var á vef Seðla­bank­ans fyrr í vik­unni.

Kjarninn hefur áður fjallað um skýrsl­una, en hún gerir ráð fyrir hægum bata í ferða­þjón­ust­unni að far­aldr­inum loknum. Máli sínu til stuðn­ings vísar sjóð­ur­inn í spár ferða­mála­stofu Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNWTO) um að það taki tvö og hálft til fjögur ár fyrir grein­ina að verða jafn­stór og hún var árið 2019.

AGS segir einnig að stórum efna­hag­skreppum fylgi oft lang­tíma­skaði fyrir hag­kerið, sem lýsi sér í við­var­andi fram­leiðslutapi. Að mati sjóðs­ins er hætta á að fram­leiðslutapið verði mikið og þrá­látt hér á landi vegna hás vægis ferða­þjón­ust­unnar.

Samkvæmt skýrsl­unni getur mikið atvinnu­leysi dregið úr sveigj­an­leika á vinnu­mark­aði og aukið hætt­una á lang­tíma­at­vinnu­leysi. Sjóð­ur­inn segir einnig að íslenska kjara­samn­inga­líkanið geti einnig hægt á efna­hags­bat­anum hér á landi, þar sem mikil völd stétt­ar­fé­laga hafi leitt til þess að laun hafi ekki vaxið í takt við fram­leiðni síðan árið 2015.

Aukinn sveigj­an­leiki í kjara­samn­inga­gerð, til dæmis með því að leyfa ein­stökum fyr­ir­tækjum að semja beint við laun­þega um ein­stök akvæði samn­ing­anna í meira mæli, eða með því að láta laun fylgja fram­leiðni­þróun í geir­anum, gæti komið í veg fyrir að áhrif krepp­unnar verði lang­vinn, að mati AGS.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ags

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár