AGS telur að við verðum enn ekki komin á fyrri braut hagvaxtar árið 2026

Samkvæmt Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum gæti það tekið allt að fjögur ár fyrir ferða­þjón­ust­una að ná fyrri styrk hér á landi og fimm ár fyrir íslenska hag­kerfið að ná sömu braut hag­vaxtar og það var á fyrir far­ald­ur­inn.

Gita Gopinath, aðalhagfræðingur AGS
Gita Gopinath, aðal­hag­fræð­ingur AGS Mynd: EPA

Ekki er lík­legt að lands­fram­leiðsla Íslands árið 2026 nái því marki sem lang­tíma­hag­spár gerðu ráð fyrir áður en far­ald­ur­inn skall á sam­kvæmt nýrri úttekt Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS) á stöðu íslenska hag­kerf­is­ins.

Í úttekt­inni, sem birt­ist á vef Seðla­bank­ans í gær­kvöldi, er búist við hóf­legum efna­hags­bata á næst­unni, en að hann verði ein­ungis drif­inn áfram af stuðn­ings­að­gerðum rík­is­stjórn­ar­innar í pen­inga­málum og rík­is­fjár­málum.

Allt að fjögur ár fyrir ferðaþjónustuna að ná bata

Að mati sjóðs­ins verður fram­lag utan­rík­is­við­skipta til hag­kerf­is­ins jákvætt, þar sem búist er við nokkrum vexti í útflutn­ingu áls og sjáv­ar­af­urða. Hins vegar er AGS ekki bjart­sýnn á að mik­ill bati náist skjótt í ferða­þjón­ust­unni og vísar hann á spár ferða­mála­stofu Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNWTO) um að það taki tvö og hálft til fjögur ár fyrir ferða­þjón­ust­una að verða jafn­stór og hún var árið 2019 á heims­vísu.

Samkvæmt sjóðnum benda sögu­leg gögn frá fyrri far­öldrum, líkt og far­aldri SARS-veirunnar árið 2003 og svínaflensunnar árið 2009, að virð­is­auk­inn í ferða­þjón­ustu muni hald­ast minni í mörg ár eftir að yfir­stand­andi far­aldri lýkur.

Eldgos og áhættufælni gæti dregið úr bata

AGS bætir við að mikil áhætta sé á að hag­vöxt­ur­inn verði enn minni en spár gera ráð fyrir vegna fjölda óvissu­þátta. Þeirra á meðal er þróun heims­far­ald­urs­ins, en einnig gæti verið að óvissu­á­standið sem honum fylgir muni leiða til auk­innar áhættu­fælni, bakslag í alþjóða­væð­ingu, auk­innar spennu í þjóð­fé­lag­inu og óstöð­ug­leika í stjórn­málum. Einnig segir sjóð­ur­inn að íslenska hag­kerfið sé ber­skjaldað gagn­vart nátt­úru­vám og nefnir þar sér­stak­lega eld­gosið í Geld­inga­dölum.

Sökum hægs end­ur­bata í ferða­þjón­ustu telur AGS að hag­kerfið muni ekki ná sömu stærð og árið 2019 fyrr en á næsta ári og að slak­inn í lands­fram­leiðslu muni ekki hverfa að fullu fyrr en eftir árið 2026. Þangað til mun lands­fram­leiðslan hér á landi á föstu verð­lagi verða undir lang­tíma­spám sem gerðar voru áður en far­ald­ur­inn skall á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ags

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár